Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.10.2010, Page 15

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.10.2010, Page 15
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í október 2010 Þau hjónin Malene og Sivert voru langalangafi og langalangamma Fred Ekeli sem á heiðurinn af þess- um ættrakningum. Malene lést 1917. 1939 er talið að allir íbúar Svanelvmoen séu komnir af Sivert Rusthaug. Sonur Malene og Siverts var Bernt Andreas sem fæddur var 1864, en þá bjó fjölskyldan á Svanelvmoen. Kona hans var Simonæthe Pettersdatter. Dóttir þeirra var Berntine Simonette Berntsdatter Sivertsen fædd 1894. Hún bjó í Bergen ásamt manni sínum Bendik Yndestad. Dóttir þeirra er Bergliot Yndestad móðir Fred og amma Fredriks Laland Ekeli, Norðmannsins unga sem fyrirspurnina sendi. Níundi ættliðurinn Fredrik Laland Ekeli er sem sagt níundi ættliðurinn frá Vigfúsi Þórðarsyni, festingarþrælnum sem kom frjáls maður til Finnmerkur árið 1763 Vigfús Þórðarson fæddur um 1717 Þórður Vigfússon fæddur um 1768 Anders Thordarson fæddur um 1800 Malene Kathrine Kirstine Andersdatter Sivertsen fædd 1834 Bernt Andreas Sivertsen fæddur 1864 Berntine Simonette Berntsdatter Sivertsen fædd 1894. Bergliot Yndestad fædd 1922 Fred Ekeli fæddur 1949 Fredrik Laland Ekeli fæddur 1979 Vikkus frá íslandi Það var ekki fyrr en árið 2009 sem Fred Ekeli, norsk- ur maður á miðjum aldri, fór að huga að forfeðrum sínum. í gömlum pappírum frá föður sínum fann hann nafnið Anders sem sagður var sonur Tordel Vikkunson sem aftur væri sonur Vikkus og að sá Vikkus hefði af ókunnum ástæðum komið frá Islandi um miðja átj- ándu öld. Lengra náðu þær upplýsingar ekki. Frekari athuganir á kirkjubókum sýndu svo að Anders var ekki Tordelsen heldur Thorderssen og að sá Thorder var Vigfussen. Fred fann svo Vigfus í manntali frá 1801 ásamt konu og þrem börnum. Aframhaldandi leit á netinu og sögusagnir um að Vigfús þessi hefði komið frá Islandi varð til þess að sonur Fred, Fredrik, skrifaði Fréttabréfinu og spurð- ist fyrir um þennan ættföður sinn. Og þá fór boltinn að rúlla. Niðurstöðurnar voru ef til vill ekki þær sem búist hafði verið við, í fyrstu nokkuð óþægilegar og óvæntar. Þjóðin týnda í ljósi sögunnar og örlaga íslensks alþýðufólks sem lenti í klóm réttvísinnar á þessum tímum, verður að teljast ótrúlegt að komast að slíkri vitneskju urn forföður sinn. Bjöm Th. Björnsson segir frá því að íslenskir valdsmenn létu sér ekkert koma við hvað varð um fólkið sem þeir dæmdu og bendir á að hvergi sé ýjað að þessu fólki fremur en það aldrei hafi verið til. „Enginn slíkur er ættfaðir neins, móðir, sonur né bróðir. í þeim fræðum er þetta þjóðin týnda“. En Vigfús Þórðarson týndist ekki. I dag er hann ættfaðir ótal Norðmanna, Fred giskar á að þeir séu ekki færri en 500 talsins og Vigfús er svo sannarlega kominn á spjöld sögunnar. Sagan hefur líka kennt okkur að líta á sakamenn fortíðarinnar ólíkt mildari og víðsýnni augum en samtími þeirra. Þar á bókin Haustskip og fróðleikur og staðreyndir þær sem Björn Th. Björnsson hefur grafið fram stóran hlut að máli. Sýslumannaæfirnar á Netinu Lausnin fundin í síðasta Fréttabréfi Ættfræðifélagsins ræddu Benedikt Sigurðsson á Akranesi og ritstjóri um vandræði sín við notkun Sýslumannaæfa á Netinu. En nú er lausn- in komin. Dóttir Benedikts, Ólöf Benediktsdóttir, bókasafns- og upplýsingafræðingur við Stofnun Arna Magnússonar í íslenskum fræðum, komst að vandræð- um okkar og leysti úr þeim. Eg birti hér bréf hennar til föður síns (sem hann sendi Fréttabréfinu) og vona að það komi öllum að gagni: Ég sá fyrirspurn þína og svar Guðfinnu í Fréttabréfi Ættfræðifélagsins. Mér fannst rétt að setja slóðirnar í Gegnisfærsluna og fann öll bindin nema það fimmta sem er registursbindi á Internet Archive. Ef þú leitar að ritinu í Gegni og smellir á færsluna sérðu að það er hægt að smella á bindin og þá birtast bindin á Internet Archive. Þar þarf að velja (vinstra megin) á hvaða formi maður vill skoða þau. Ég prófaði að velja Read online og þá er leitargluggi hægra megin. Það er líka hægt að fletta ritinu síðu fyrir síðu nreð því að smella á örvarnar. Ef maður leitar að skírnar- og föðurnafni þá kemur hvort tveggja en leitin er ekki samsett svo það koma þá upp öll skírnar- og öil föðurnöfn, svo það er þá jafn gott að leita bara að öðru hvoru. Það má ekki nota íslenska stafi í leitinni. Hér er slóðin á Gegnisfærsluna http://gegnir.is/F/ HVBLJ571YSNQCQ6YC7GITYXNRMS3RRQ D7K2ESEBGPMS4L6KRD6-00149?func=find- b&find_code=WOR&request=s%C3%BDslu- manna%C3%A6fir og þú smellir á titilinn. Fréttabréf Ættfræðifélagsins þakkar Ólöfu innilega fyrir þessar frábæru upplýsingar því það er ómet- anlegt öllum sem leita upplýsinga að hafa aðgang að Sýslumannaæfum, þessu undirstöðuriti íslenskrar ættfræði. http://www.ætt.is 15 aett@aett.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.