Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.10.2010, Blaðsíða 16

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.10.2010, Blaðsíða 16
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í október 2010 Texti og myndir: Guðfinna Ragnarsdóttir Guð blessi minningu þína elsku amma og langamma Eftir að móðir mín dó fannst mér ábyrgðin færastyfirámig,segirBjörgGunnarsdóttir, sem nýlega hefur sett legsteina á leiði langafa síns og langömmu. Hún hefur líka rakið slóð og sögu langömmu sinnar, sem hún aldrei sá, í kirkjubókum og manntöl- um. En það er margt erfitt og mikið fyrir hverju skrefi haft, því nú er enginn lengur til að spyrja. Tveir nýir, veglegir legsteinar, sem stóðu inn- pakkaðir á hlaðinu á kirkjustaðnum Staðarfelli á Fellsströnd, vöktu athygli ritstjóra Fréttabréfs Ættfræðifélagsins þegar hann var þar á ferð í sumar. Ekki varð undrun hans minni þegar hann sá að á þá var letrað nafn Hallgríms Jónssonar sem fæddur var 1834 og konu hans Valgerðar Jónsdóttur. I ljós kom að það var barnabarnabarn Hallgríms, Björg Gunnarsdóttir, fædd 1951, sem hafði látið útbúa þessa veglegu steina. Ættfræðiblaðið ræddi við Björg um þessa miklu framkvæmd og þá kom ým- islegt óvænt í ljós. Tveir nýir, veglegir legsteinar, sem stóðu innpakkaðir á hlaðinu á kirk justaðnum Staðarfelli á Fellsströnd, vöktu athygli ritstjóra Fréttabréfs Ættfræðifélagsins þegar hann var þar á ferð í sumar. Ekki varð undrun hans minni þegar hann sá að á þá var letrað nafn Hallgríms Jónssonar sem fæddur var 1834 og konu hans Valgerðar Jónsdóttur. Ólétt vinnukona Hvað kom til að þú lést útbúa steina yfir langafa þinn og langömmu, hjónin Hallgrím og Valgerði? -Þetta er nokkuð flókin saga, segir Björg. I fyrsta lagi þá er Valgerður ekki langamma mín, þótt hún væri gift langafa. Hallgrímur var seinni maður hennar. Hún var áður gift Vigfúsi Bjarnasyni Thorarensen, gullsmið og bónda í Gvendareyjum. Vigfús var dóttursonur Boga Benediktssonar, fræðimanns á Staðarfelli. Þau Valgerður og Hallgrímur áttu einn son sem upp komst, Vigfús Thorarensen Hallgrímsson. Hann var fæddur 1863. -Ingibjörg langamma mín varð ólétt eftir Hallgrím, nteðan hún var vinnukona hjá þeim Valgerði á Staðarfelli, og fæddi honum soninn Sylveríus árið 1888 þá um 41 árs að aldri. Langamma mín hét fullu nafni Ingibjörg Sigríður Marísdóttir. Hún var fædd 1847 og var því tutt- ugu árum yngri en Staðarfellsfrúin Valgerður. -Ekki leist Valgerði á að hafa vinnukonuna áfram á heimilinu, svo hún var látin fara, en drengurinn Sylveríus varð eftir hjá föður sínum og konu hans. -Það kom því í hlut Valgerðar að ala afa minn upp til tíu ára aldurs, en þá lést hún sjötug að aldri. Hallgrímur lést svo 1903, þegar Sylveríus var fimm- tán ára. -Hallgrímur langafi minn var merkismaður. Hann var dannebrogsmaður og hreppstjóri. Hann byggði kirkjuna sem enn stendur á Staðarfelli á Fellsströnd. Sagt er að hann hafi vandað svo smíði hennar og gerð að fágætt var í þá daga. Ég lét þessa alls getið á nýja legsteininum. Friðlýstir steinar Móðir mín talaði oft um fólkið sitt fyrir vestan og örlög ömmu sinnar sem varð að skilja drenginn sinn eftir. Eftir að móðir mín dó fannst mér ábyrgðin færast yfir á mig og ég fór vestur að huga að leiðum þessara forfeðra minna. Það eru steinar á leiðum Hallgríms og Valgerðar í gamla kirkjugarðinum á Staðarfelli, en letrið er orðið mjög máð. Þeir eru auk þess skakkir og nánast að falli komnir. Upp að legsteini Valgerðar hall- ast svo laus plata með grafskrift Vigfúsar Bjarnasonar Thorarensen, fyrri manns hennar. -Það veitti því ekki af að hressa upp á þessi gömlu leiði. Ég setti báða eiginmenn Valgerðar, Vigfús og Hallgrím, á nýja steininn. -Ég vildi setja plötur framan á steinana yfir Hallgrím og Valgerði en það mátti ekki, steinarnir eru friðlýstir. Ég ákvað því að láta gera nýja steina og þeir http://www.ætt.is 16 aett@aett.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.