Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.10.2010, Blaðsíða 21

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.10.2010, Blaðsíða 21
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í október 2010 Hver gröf á sér 75 ára friðhelgi. í reynd er sú friðhelgi mun lengri, því segja má að hvergi hafi verið endur- grafið í neina kirkjugarða á Islandi allt frá landnáms- öld. Sem dæmi má nefna að þegar grafirnar í gamla Víkurgarðinum í miðbæ Reykjavíkur fóru að rekast á var hafist handa við að útbúa Hólavallagarðinn. Landrými hefur alltaf verið nægt hér á íslandi. Minjavernd -Aðstandendur bera ábyrgð á umhirðu grafa og þar er hverjum og einum í sjálfsvald sett hvort legsteinn, kross eða annað er sett á leiðið, en kirkjugarðarnir veita margskonar þjónustu sé þess óskað. Boðið er upp á að leiði séu tyrfð og blómabeð útbúin, sömuleiðis er sett möl eða sandur á leiði þar sem skuggi er mikill og sigin leiði eru lagfærð. -Þar sem slíkt er mögulegt er leitast við að hafa einn tengilið innan ættingjahópsins við kirkjugarðana, svo kallaðan leiðishafa. Það kernur að sjálfsögðu oft að því að erfitt verður að finna slíkan leiðishafa, stund- urn er komið allt að 5. kynslóð og ættartengslin eru farin að þynnast út. Þá sjá kirkjugarðarnir um leiðið. -Hvað við kemur legsteinum þá falla allir legstein- ar og önnur minningarmörk í kirkjugörðum undir minjavernd um leið og þeir eru orðnir 100 ára gaml- ir. Við höfum aldrei hent eða fargað neinum legstein- um, jafnvel þótt yngri séu, og þeim „heimilislausu" steinum sem við höfum tekið til handargagns bæði í Hólavallagarði og í Fossvogskirkjugarðinum er raðað upp við vegg í görðunum. Götóttar legstaðaskrár -Ég veit að víða í Evrópu eru gamlir legsteinar brotn- ir niður og malaðir og mulningurinn notaður í gang- stíga. Þar er auðvitað oft mun minna landrými og fólksfjöldinn annar og meiri. Á vef Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma kemur fram að kirkjugarðarnir taka að sér lagfæringar á leg- steinum og steyptum reitum, gegn greiðslu, en öllum er velkomið að standa sjálfir að lagfæringum grafanna. Ef hætta stafar af minnismerki eða umbúnaði graf- ar, eða hann er til óprýði, á að gera umráðamanni grafarstæðisins aðvart. Ef það ber ekki árangur, eða ekki næst til hans, má fjarlægja umgjörðina eða minnismerkið. En sé minnismerkið uppistandandi eða umbúnaður legstæðisins í góðu ásigkomulagi skal ekki flytja það eða raska umbúnaði legstæðisins. Þetta gildir eins og áður sagði líka þótt 75 ára graf- arfriðunin sé útrunnin. -Hvað varðar legstaðaskrárnar, segir Þórsteinn, var mikill metnaður í byrjun og vonir stóðu til að hægt væri að ná meiri hluta allra skráðra leiða á öllu land- inu. Þegar til átti að taka kom í ljós að víða var pottur brotinn í skrásetningunni og hafa heimtur því miður verið mjög slæmar. Legstaðaskrárnar eru þess vegna mjög götóttar. Guðfinna Ragnarsdóttir Legsteinn í Astralíu Peter Levarre-Waters starfar sjálfstætt sem ljós- myndari í New South Wales í Ástralíu meðal annars fyrir FHS og ýmsa aðila sem tekið hafa þátt í stríði. Hann rakst nýlega á legstein á gröf Islendings í Rookwood kirkjugarðinum í Sidney í Ástralíu. Hann tók mynd af legsteininum og gaf Ættfræðifélaginu góðfúslega leyfi til að birta þessa mynd og sagðist gleðjast yfir því ef hún kæmi ein- hverjum að gagni. Hann skrifar einnig að hann geti hjálpað til við að finna grafir í Sidney, og taka myndir af þeim, ef einhver óskar þess. Netfang Peter Levarre-Waters er:levarre@gmail.com Ritstjóri reyndi að rýna í textann á legstein- inum og sýnist standa þar eftirfarandi: In Loving Memory Of My Dear Husband JOHAN PETER THORARENSEN Native of ICELAND DIED 11 MAY 1911 AGED 81 YEARS ALSO AGNESTHORNE REBECCA widow of the above DIED 15 SEPTEMBER 1920 AGED 73 YEARS i ic * 1 {Í820 Hér má sjá legsteininn yfir Jóhanni Pétri Þórarins- syni, sem dó 1911 81 árs að aldri, og konu hans Agnesi Þórnýju? Rebekku sem lést 1920, 73 ára að aldri. http://www.ætt.is 21 aett@aett.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.