Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.10.2010, Blaðsíða 22
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í október 2010
Leiðrétting
Oft hef ég dásamað Nelson Gerrard og hans mikla
og óeigingjarna starf í Vesturheimi. Eg fékk enn eina
ástæðuna til þess að gleðjast yfir störfum hans og
þekkingu þegar hann benti mér á að mynd sem ég
birti í grein minni „Heitrof, dauði, ást og örlög” á bls.
5 í síðasta Fréttabréfi væri ekki af Jens Jónssyni og
fjölskyldu hans, heldur af Jóhannesi Magnússyni frá
Arnarbæli á Fellsströnd og síðari konu hans, Kristínu
Sigurbjörnsdóttur Hallgrímssonar (úr Eyjafirði), en
þau voru landnámshjón í Arnesbyggð í Nýja íslandi.
Eg hafði velkst í vafa um þessa mynd, þar sem ég
fékk engan botn í hverjar stóru stúlkurnar á mynd-
inni væru. Eg hafði samband við Valgeir Þorvaldsson
á Vesturfarasetrinu en hann kannaðist ekki við fólk-
ið Eg hélt að þetta væri fjölskyldumynd frá Jens
Jónssyni, en þetta leystist allt með bréfi Nelsons. Það
var ekki að undra þótt þessi mynd væri uppi á vegg,
ásamt fjölskyldumyndinni af Jens, bæði í Túngarði
og síðar í Reykjavík, hjá þeim hjónunum Björg
Magnúsdóttur ljósmóður og manni hennar Magnúsi
Jónassyni, en Jóhannes var föðurbróðir Magnúsar og
hafði flutt vestur um haf.
Þeir Jónas og Jóhannes voru tveir í níu barna
hópi þeirra hjóna Magnúsar Magnússonar bónda og
hreppstjóra í Arnarbæli á Fellsströnd og Guðrúnar
Jónsdóttur konu hans. Þau voru bæði fædd 1820 og
létust frá sínum stóra barnahópi, aðeins 38 ára göm-
ul, á sama árinu, 1858. Þá voru þeir Jóhannes og
Jónas aðeins sex og fjögurra ára gamlir. Sorgin og
foreldramissirinn tengdi þessi systkin afar sterkum
böndum sem héldust þótt úthafið skildi sum þeirra að
um langan aldur.
Þær Guðrún og Vigdís Vigfúsdóttir langamma mín
voru þremenningar og síðar ólst móðir mín upp hjá
Mynd þessi er af Jóhannesi Magnússyni frá Arnarbæli á Fellsströnd og síðari konu hans, Kristínu Sigurbjörnsdóttur
Hallgrímssonar (úr Eyjafirði), en þau voru landnámshjón í Árnesbyggð í Nýja íslandi. Með þeim eru börn Jóhannesar
°g beggja eiginkvenna hans.
http://www.ætt.is
22
aett@aett.is