Alþýðublaðið - 12.11.1919, Síða 4
4
íyrirtæki. BrauÖgerðin er eign veik-
lýð-ifélaganna hér í bænum og
stofnuð og undirbúin af Fulltrúa
ráði verklýðsfélaganna. í nefndinni
sem vann að fyrsta undirbúningi
í>essartnáls, voru þeir Ólaf«r;,^ð
riksson og Þorvarður Þorvaiðsson
sem nú eru frambjóðendur A1
þýðuflokksins við þingkosningarnar
15 nóv; þriðji maður í nefndinni
var Eiríkur Helgason nú prestur
að Sandfelli í Öræfum.
Egill.
lerkílegt tímanna tákn.
Það er vert að veita því eftir-
tekt, að flestir yngri mentamenn
hér í bæ munu ætla að kjósa
fulltrúa Alþýðuflokksins. Þetta er
ekkert kosningagaspur, því eg hefl
reynt að kynna mér hug þeirra
manna, sem seinna meir munu
eiga að verða leiðandi menn þjóð-
arinnar. Eg hefi einkum viljað
sjá, hvort þeir trúi lengur þeim
sem efst setja gullið, en láta
mentun og gáfur sig litlu skifta.
Ekki hvað sízt eru allir stúdentar
og Mentaskólapiltar þeir, er um
stjórnmál hugsa, sárgramir yfir
málgagni Coplands og Thorsteins-
son, Einari Arnórssyni prófessor
juris, sem bæði er starfsmaður
hins íslenzka Háskóla-og ritstjóri
Morgunblaðsins, sem vill setja
gullkálfinn fyrir altarið og láta
oss krjúpa honum. Einar Arnórs-
son hefir fyrri lotið gullinu og
gerir það nú aftur, en vér hinir
yngri, vér gerum það aldrei. Yér
höfum þá sannfæringu, sem ekki
íæst fyrir peninga!
Stúdent.
Fyrirspurn.
Morgunblaðið mælir fastlega
með þremur frambjóðendum hér.
Veit ekki lagaprófessorinn, að það
má ekki kjósa nema 2.
Svar: Einar ætlar að eftirláta
Árnesingum 1, því öllum fram-
bjóðendum þess kjördæmis mælir
hann í móti.
ALÞÝHUBLAÐIÐ
l.augaveg 43 15.
Jóla- og nýjárskort stórt og
fjölbreytt úrval. Einnig afmælis-
og fleiri tækifæriskort. Heillu-
óskabréf.
Von á nýjum tegundum innan
skamms.
Friöfinnur Guöjónsson,
TII sölu svellþykk peisa og
ágæfur skinnjakki. TækifSerisverð.
Til sýnis á afgr. Alþýðublaðsins.
Olítiofnar eru „lakkeraðir"
ogyg^rðir sem nýir. Gert við ■lampa
og lampagrindur á Laugaveg 27.
Ágæt sítrónuolía, á 5 kr.
pelinn, fæst í Alþýðubrauðgerðinni.
01
I
I
0
Háttvirtu kjósendur!
1
0
T
I
Þið eruð milli vonar og ótta. Á kjördegi verður mikill
fjöldi yðar fyrir vonbrigðum.
Leitið hughreystingar á meðan óvissán kvelur yður
og lítið inn í
lírtsölmia í verzlun
Árna Eiríkssonar
og skoðið það sem þar er um að velja. Og svo á
siðan, þegar vonbrigðin á kjöidegi leggjast eins og farg á hjarta
yðar þá kaupið heimilisgleðina fyrir fáeinar krónur.
Eg er til sýnis í glugganum.
Vinsamlegast
„Charles Chaplin11.
01
Sala á bæjarmónum
fer framvegis fram á Slökkvistöðinni á skrifstofu
bæjargjaldkera. Par verða og afgreidd önnur mál,
sem til þessa voru afgreidd á seðlaskrifstofunni, en
hún er nú lögð niður. Afgreiðslumaður þessara mála
hefir síma nr. 693 (ekki nr. 17).
Borgarstjórinn í Reykjavík 11. nóv. 1919.
K. Zimsen.
Wataillajil „Ftisltf
heldur opinn fund fimtudaginn 13. þ. m. kl 8í G.-T.-húsinu.
Á fundinum mæta baðir frambjóðendur alþýðunnar og tala.
Allar alþýðukonur velkomnar á fundinn.
Félagskonur ámintar um að mæta. Sljórnin.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Ólafur Friðriksson.
Prentsmiðjan Gutenberg.