Laugardagsblaðið - 11.06.1955, Qupperneq 1
II. árg.
Laugardagur 11. júní 1955
20. tbl.
Kominn »heim« eftir hálfrar
aldar útivist
Nýkominn er til landsins
Vestur-íslendingurinn S'gbjörn ^
Pálsson frá Winnipeg. Er hann
nú á ferðalagi um æskustöðvar
s'nar á Austurlandi, og mun hann
dveljast hér á landi fram í ágúst-
mánuð.
Sigbjörn er fæddur í Breiða-
vík í Borgarfirði eystra 23. maí
1885. Foreldrar hans voru Páll
Geirmundsson og Guðfinna Guð-
mundsdóttir. Bjuggu þau í Litlu-
Breiðuvík. Voru þau hin mestu
niyndar- og dugnaðarhjón. Sig-
hjörn fór vestur um haf 1902
og settist þá að í Winnipeg. Lagði
hann þar s'.und á smíðar og síðar
húsabyggingar, og fékkst einnig
við margskonar fésýslu. Vegnaði
honum brátt vel, því að bæði var
hann harðduglegur, greindur og
sjálfstæður í hugsun. Prúðmenni
er hann hið mesta, fastur í lund
og hinn öruggasti í öllum skipt-
um, svo að menn sóttust hrátt
eftir viðskiptum við hann, og
hlaut hann traust þeirra að mak-
legleikum. í heimsstyrjöldinni
fyrri gekk hann í kanadiska her-
inn, og varð hann liðþjálfi þar.
Hann tók þátt í bardögum í
Frakklandi á árunum 1916—17.
Særðist han þá hættulega í orustu
í Flandern og týndist samlöndum
sínum um skeið, svo að blöðin i
Kanada birtu lát hans meðal fall-
inna hermanna. En hann komst á
sjúkrahús í Englandi og náði aft-
ur góðri heilsu, þótt óvænlega
horfði um skeið. Hann hvarf aft-
ur til Winnipeg í stríðslokin
1918, og var þá orðinn vinnufær
og tók til óspilltra málanna við
hin fyrri störf sín. Sigurbjörn er
tvíkvæntur. Fyrri kona Sigbjarn-
ar var íslenzk, en hana missti
hann fyrir mörgum árum síðan.
Kvæntist aftur konu af enskum
ættum, og eiga þau tvær uppkomn
ar dætur.
Frd íeikjéloji Ahureyrar
Lokasýning á „Skóla fyrir
skattgreiðendur“ var á miðviku-
dagskvöldið var og sáu á þriðja
þúsund manns alls leikinn. Með
þessari sýningu er starfsemi Leik-
félagsins á þessu leikári lokið.
\lls sýndi félagið fjóra sjónleiki.
Fyrst óperettuna „Meyjaskemm-
una“ í 18 skipti, þá harnaleikinn
„Hans og Gréta“7 sinnum, „Menn
og mýs“ 6 sinnum og nú síðast
„Skóla fyrir skattgreiðendur“ í
9 skipti. Hefir Leikfélagið verið
athafnasamt í bezta lagi á þessu
ari.
Kynnii sér rehstur d ferðdshrijstojum
Stutt viðtal við Jón Egilsson
Jón Egilsson framkvæmdastjóri
Ferðaskrifstofu ríkisins á Akur-
eyri, er nýkominn heim úr Banda
ríkjaför. Dvaldi hann þar ytra
um þriggja mánaða skeið í boði
Bandaríkjastjórnar, að kynna
sér rekstur og fyrirkomulag á
ferðaskrifstofum. Ferðaðist hann
frá hafi til hafs og hafði s'utta
dvöl á fjöhnörgum stöðum, þar
sem honum gafst tækifæri að
heimsækja ferðaskrifstofur og
hóíel. Segir Jón, að viðtökur haíi
hvarvetna verið hinar ákjósan-
legustu, því greiðvikni og gest-
risni Ameríkumanna sé með á-
gæturn og allt hafi verið gert til
að greiða götu hans þar og láta
honum verða sem mest gagn af
ferðinni.
Margt merkilegt og nýstárlegt
segist Jón hafa séð og heyrt í
ferð sinni viðvíkjandi rekstri á
ferðaskrifstofum og fyrirgreiðslu
ferðamanna, en sérstaka athygli
sína hafi það vakið, að um 80%
allra farseðla, sem seldir eru á
vegum ferðaskrifstofa og flugfé-,
laga á lengri leiðum, eru seldlr
gegn afborgun. Furðulega lítið
tapast á þessum viðskiptum eða
tæplega %%• Talið er að þetta
fyrirkomulag auki ferðalög gif-
urlega mikið, og ryður það sér
meira og meira til rúms með
hverju ári. Með þessum hætti
eiga margir þess kost að fara í
langferðir, sem annars gætu
aldrei leyft sér slíkt. Hefir Jón í
hyggju að beita sér fyrir, að 8vip-
að fyrirkomulag verði tekið upp
hér á landi eftir því sem henta
þætti. Innheimtu er svo háttað,
að sérstök fyrirtæki annast hana,
kaupa þau allar kröfur á þá, sem
keypt hafa farseðla með afborg-
unarskilmálum, og hafa hvorki
ferðaskrifstofur eða flugfélög
nokkurn veg eða vanda af inn-
heimtunni.
Er blaðið spurði Jón um hvort
hann hefði heyrt mikið talað um
stríð og ófriðarhorfur, sagði
hann, að hann hefði ekki heyrt
einn einasta mann af öllum þeim
fjölda, er hann átti tal við minn*
jýslojindor Soðor-
Þinoeiringo
var haldinn á Húsavík. dagana 2.
og 3. júní. Mættir voru 11 full-
trúar úr öllum hreppum sýslunn-
ar.
Fjölmörg mál voru á dagskrá
og lokið við að ræða 73 þeirra.
Jafnað var niður til sýsluvega
171 þúsundi, til menntamála 40
þús., heilbrigðismála 24 þús.,
búnaðarmála (þar með talið
frámlag til skógræktar og útrým-
inga refa) 25 þús. og brúarbygg-
inga 30 þús., til Björgunarskú‘u
Norðurlands 1000.00 (hluti af
framlagi).
Að sýslufundi loknum sátu
fulltrúar myndarlegt boð hjá
Júlíusi Havstein sýslumanni.
___
Söfnun örnejno í Þino-
eyjorsýslo
Sýslufundur Suður-Þingeyinga
samþykkti áskorun til allra hrepps
nefnda í sýslunni, að þær hver í
sínum hreppi hafi forgöngu um
söfnun örnefna, og standi hrepp-
arnir straum af kostnaðinum, svo
framarlega sem einstaklingar ekki
vinna verkið endurgjaldslaust.
Sýslunefnd mun síðar leggja fram
fé úr sýslusjóði til þessa starfs.
Félagslieimili vígt í Mý-
vatu§§vcit 1?. Jiinl
Þessa dagana er verið að leggja
síðustu hönd á hið mikla og veg-
lega félagsheimili Mýve'.ninga að
Skútuslöðum. Byrjað var þar á
framkvæmdum árið 1952 og nú
er svo langt komið að verið or
að múrhúða húsið utan, og er
1 ráðið að húsið skuli vígt hinn
17. júní n. k.
Félagsheimili þetta er stór-
myndarleg bygging. Er það í
tveimur álmum. Aðalálma þess er
8,50x27,60 metrar að stærð. Er
þar geysimikill og vandaður cam-
komusalur og leiksvið prýðilega
húið í hvívetna. Er þess vænst að
aðstaða öll til leiksýninga verði
þar hin hezta, hæði fyrir heima-
menn og gestaflokka, er koma
kunna. í kjallara álmunnar eru 2
böð, 2 búningsherbergi fyrir
leikfólk og snyrtiherbergi.
Norðurálma hússins er 16,5 x
8,5 m„ þar er íbúð húsvarðar á
2. hæð en á 1. hæð eru búnings-
herbergi, bókaherbergi, kaffi-
stofa, fatageymsla, snyrting, hit-
unartæki o. fl. Umsjónarmaður
hússins er ráðinn Sigvaldi Guð-
mundsson.
Fullgert mun húsið kosta á
aðra milljón króna. Ungmenna-
félagið leggur til % hluta kostn-
aðarins, ýmist í gjafavinnu eða
peningum. Hitt er kostað af sveit-
arfélaginu, félagsheimilasjóði og
einstaklingum. Yfirsmiður við
bygginguha er Sigurður Egilsson
smiður frá Laxamýri.
Skrúðgarður verður gerður
fyrir sunnan húsið, og öll lóðin
umhverfis það, sem er geysistór,
verður löguð tiL Verða þar m.
a. mörg bílastæði.
Á samkomu, sem haldinn var
á Skútustöðum fyrir nokkru, var
efnt til samkeppni um nafn á fé-
lagsheimilinu. Fjöldi nafna barst,
en ennþá hefir ekki verið tekin
ákvörðun hvert nafnið verði
valið, mun það verða kunngert
við vígslu hússins hinn 17. júní,
eins og fyrr getur.
ast á stríð, fremur en það hefði
aldrei verið til. Fólk vestra segir
hann að njóti geysimikilla lífs-
þæginda, en þurfi að vinna af
kappi. Saman fari þar mikil vinna
og líka mikið í aðra hönd.
Af íslendingum kvaðst hann
hafa hitt þá Akureyringana Sverri
Magnússon og Braga Freymóðs-
son, og Valdimar Biörnsson og
bræður hans í Minneapolis. ^
Á ferðilogi um Vestur-
heiui
Nýlega lögðu þau hjónin
Björgvin Guðmundsson tónskáld
og Hólmfríður kona hans af stað
áleiðis til Vesturheims. Munu þau
dveljast vestra allt að þremur
mánuðum og ferðast víða um
landið. Hyggst Björgvin að heim
sækja flestar byggðir íslendinga
í Kanada og Bandaríkjunum.
Mun hann flytja þar erindi um
ísland og segja fréttir héðan að
heiman. Þá hefir hann með sér á
segulbandi mikið af söng Kant-
ötukórsins og hyggst hann að
flytja hann þar vestra. Margrét
dóttir þeirra dvelst nú í Winni-
peg. Þau hjón eiga fjölda frænda
og vina í Vesturheimi, sem fagna
munu komu þeirra, svo munu cg
allir íslendingar gera þar, því að
enn lifir þar mikill þjóðræknis-
andi, en kunnugt er að sannari
og þjóðræknari íslendingur en
Björgvin Guðmundsson mun
vandfundinn.
Heyskapur byrjaður á
Akureyri
Enda þótt tíðin hafi verið ágæt
nú undanfarið, hefir jörð víðast
sprottið seint sakir þurrka. Þó er
nokkuð siðan að fyrsta túnið var
slegið hér á Akureyri Var það
Eiðsvöllurinn á Oddeyri, en hann
var sleginn fyrir um hálfri ann-
ari viku síðan og var svo vel
sprottinn, að víða nálgaðist sí-
bre:ðu. Eiðsvöllurinn sprettur
æ'íð mjög snemma og hefir verið
sleginn 4—5 sinnum undanfarin
sumur.