Laugardagsblaðið - 11.06.1955, Blaðsíða 3

Laugardagsblaðið - 11.06.1955, Blaðsíða 3
Laugardagur 11. júní 1955 LA UGARDA GSBLA ÐIÐ 3 JOHN REESE: Fjörutíu stúlhur og treir korlmcni Spennandi ástarsaga. 5 þeim, var þýðingarlaust að elta hana. Þeir sáu spor eftir dýrið, þar sem það hafði hafið sig á loft til næsta stökks. Er lengra kom var það ekki á færi annarra en æfðra veiði- hunda, að fylgja slóð rándýrsins. Eigi að síður hlupu þeir áfram. Þeir sáu púmunni enn bregða fyrir, og Tom skaut aftur. Ekki vegna þess að hann hefði minnstu von um að hitta, heldur til þess að tilkynna dýrinu, að því væri heppilegra að halda sig fjarri veiðihöll- inni. Þá stóðu þeir um stund og horfðu hvor á annan. Þeir voru næstum því komnir upp til „Lost Squaw Canyon“. Doug mælti: „Þetta ber þann árangur, að dömurnar munu halda sig í mikilli fjarlægð frá námunni minni.“ Hann var móður. „Að líkindum,“ sagði Tom. Það var á þessum slóðum, sem hann hitti Glenn kvöldið áður. Það var í runnanum þarna, sem peysan hennar hékk. Hún hafði rekið upp óp. Hann hafði snúið sér við. Hún bjóst við að sjá púmuna, en ekki hann. Þá kom hann auga á hana vegna þess að hún var ljósklædd og fæturnir berir. Þarna höfðu þau staðið. Hann var reiður af því, að hún skyldi dirfast að fara svona langt frá veiðihöllinni. Það var hættulegt. Hann ýtti henni af stað, og mælti reiðilega: „Farðu heim, kjáninn þinn. Þú kærir þig, að líkindum ekki um, að ég berji þig.“ „Reyndu það,“ sagði hún, og sveiflaði digru eikarpriki. „Ef þú gerir það, brýt ég höfuðið á þér með þessu barefli.'1 Hann reyndi að snúa prikið úr hendi hennar. Skyndi- lega lagðist hún niður á jörðina, hallaði sér að honum og hvíslaði: „Þú ert mikill heimskingi. Reyndu til þess að láta mig gleyma því að ég sé háskólagengin. Kysstu mig svo, asninn þinn.“ En hann hafði haldið af stað niður stiginn, stóð þar og beið þar til hann var viss um, að hann væri úr allri hættu. Þetta átti hann viljastyrk sínum að þakka. Án viljastyrks var ekki hægt að komast áfram. En stundum kom þetta svo fyrir sjónir, að hann var álitinn drumbur. Hann andvarp- aði, lét byssuna á öxlina og lagði af stað heim á leið til veiðihallarinnar. Doug fór með honum. Áður en þeir voru komnir alla leið, kom frú Ester á móti þeim. Er hún kom auga á þá, nam hún staðar, og hélt höndunum á mjöðmun- um. Tom var ljóst hvað þessi stilling frúarinnar þýddi. Hún mælti: „Hvað er hæft í þessum frásögnum um, að púma sé hér í grennd?" Glenn sagði, að púman hefði fylgt í kjölfar þeirra meirihluta leiðarinnar. Tom svaraði: „Það er nú orðum aukið.“ Frúin mælti: „Hve mikið er satt af þessum púmuorð- rómi? Við getum sannarlega ekki haft púmu rétt við veiði- höllina, þar sem fjöldi kvenna dvelur. Það er óþolandi.“ Tom mælti: „Eigum við ekki heldur að segja að það sé óþolandi, að dömurnar fari um allt, þótt þær geti átt von á að púma verði á vegi þeirra? Ef til vill geturðu talið þær á að fara varlega. Okkur er það ekki fært. Segðu þeim, að þær verði að halda sig í nánd við veiðihöllina, einkum eftir að dimma fer. Þær verða að forðast að koma í nánd við „Lost Squaw Canyon“.“ „Já, en þar er svo dásamlega fagurt,“ sagði frúin. „Það er satt. Og púman er á sama máli,“ sagði Tom. „Skjóttu púmuna,“ mælti frúin. „Við verðum að fá frið fyrir þessu óargadýri. Hvað annað áttu að gera með byss- una? Ég hefi ákveðið að fara upp til Lost Squaw Canyon áður en ég fer og hafa allar stúlkurnar með mér.“ Don rak upp óp, gekk til frúarinnar og rak hnefann rétt upp að andliti hennar og hrópaði: „Þér hættið við það. Eg hefi aðvarað yður.“ Skólavi§t I iYoregii Félaginu hefir verið faliS í samráði við félagið Norsk-Is- landsk Samband í Osló að velja 2—3 unga menn til ókeypis skóla vistar í Noregi. 1 piltur getur fengið skólavist í Búnaðarskólanum á Voss næsta haust. Námstíminn er 2 vetur. Umsóknir með afritum af vott- orðum um nám og undirbúning jg meðmæli sendist formanni fé- .agsins Árna G. Eylands, Reykja- vík. 1 eða 2 piltar geta fengið skóla /ist í Statens Fiskarfagskole Auk- re við Molde. Skóli þessi starfar í þremur deildum: a. „Fiskeskipperlinje", 10 mán. nám. b. „Motorlinje", 5 mán. nám. c. „Kokkelinje", 5 mán. nám. Því miður mun nám ( a- og b- deild skólans ekki veita nein sér stök réltindi til starfa hér á lan.ii hliðstætt því sem er í Noregi, en matreiðslunámið mun veita starfs aðstöðu eins og hliðslætt nám hér á landi. Þeir sem vilja sinna þessu geta sent umsóknir sinar beint til skólans, en æskilegt er að þeir geri formanni féiagsins ísland- Noregur, Árna G. Eylands, við vart um leið og þeir sækja um skólavist þessa, helzt með því að senda honum afrit af umsókn og upplýsingum, sem þeir kunna að senda skólanum. Utanáskrift skólans er: Statens Fiskarfagskole, Aukre, pr. Molde, Norge. (Fréttatilkynning frá Félaginu fsland-N oregur.) Iþróttaíélagið Þór 40 ára íþró!tafélagið Þór átti 40 ára afmæli hinn 6. júní s. 1. Félagið var stofnað af nokkrum drengj- um á Oddeyri og fékkst fyrstu ár- in eingöngu við knattspyrnu. Þór er nú elsta starfandi íþrótta- og æskulýðsfélag bæjarins. Hefir það á‘t góðan þátt í íþróttalífinu þessa áratugi og mundi þar stórt rúm autt, ef Þórs hefði ekki not- ið við. Afmælisfagnaður félagsins verður í haust. Fyrsta áætlunarflugið til Grímseyjar Eins og áður er frá sagt hefir Flugfélag íslands fastar flug- ferðir til Grímseyjar á sunnudög- um í sumar. Ákveðið er nú, að fyrsta ferðin þangað verði 19. júní n. k. ___*____ Víða flýgur orðstír Akureyringa Þessi frétt birtist 30. marz s. 1. í canadisku vikublaði: „Lögreglan á Akureyri telur að héraðsbann á áfengi hafi gert mikið gagn þar.“ Ný Ijóðabók eftir Snæbjörn Einarsson á Raufarhöfn, kemur út innan skamms. Bókin er 8 arkir að stærð, og birtast þar 47 kvæði. Vormót í frjálsíþróttum Vormót í frjálsíþróttum fór fram hér á íþróttavellinum laug- ardaginn 21. og mánudaginn 23. maí síðastliðinn. Úrslit í einstök- um greinum urðu þessi: 100 m. hlaup: 1. Höskuldur Karlsson KA 11,5 sek. 2. Hörður Lárusson MA 11,7 - 3. Leifur Tómasson KA 11,9 - 4. Stefán Hermannsson MA 12,6 — Stangarstökk: Valgarður Sigurðsson Þór 3,40 m. Langstökk: 1. Hörður Lárusson MA 6,35 m. 2. Leifur Tómasson KA 6,10 — 3. Höskuldur Karlsson KA 5,98 — 4. Helgi Valdimarcson MA 5,97 — Hástökk: 1. Helgi Valdimarsson MA 1,70 m. 2.-3. Leifur Tómasson KA 1,65 — 2.-3. Hörður Jóhannsson UMSE 1,65 — 4. Höskuldur Karlsson KA 1,65 — 400 m. hlaup: 1. Hörður Lárusson MA 54,5 sek. 2. Leifur Tómasson KA 55.4 — 3. Stefán Skagfjörð UMSE 56,5 — Kúluvarp: 1. Einar Helgason KA 13,13 m. 2. Þóroddur Jóhannss. UMSE 12,54 — 3. Höskuldur Karlsson KA 11,43 — 4. Helgi Valdimarsson MA 11,28 — 4x100 m. boðhlaup: 1. KA 47,2 sek. 2. M. A. 47,3 — Frjálsíþróttaráð Akureyrar sá um mótið. „Hvers vegna á ég að hætta við þessa ferð?“ „Ég á nefnilega gullnámu þarna uppfrá,“ sagði Doug. „Gullnámu?“ „Já, einmitt. Eg hefi unnið við hana síðastliðin tUttUgu ár, og hún hefir kostað mig 30,000 dollara. En hefði ég nokkru meiri peninga til þess að leggja í námuna, mundi hún að hálfu ári liðnu verða arðberandi. En ég vil komast hjá því, að þér, og allar yðar dömur komi í nánd við nám- una.“ Frú Ester brosti svo andlit hennar ljómaði. „Nei, hugsa sér. Þetta er spennandi, Doug. Hvers vegna hafið þér ekki sagt mér að þér þyrftuð á peningum að Björn Jörundsson lótinn Hinn 31. maí s. 1. andaðist í Hrísey Björn Jörundsson fyrrum útvegsbóndi á Selaklöpp. Var hann langelzti íbúi Hríseyjar eða nær 96 ára að aldri. Björn var fæddur að Hléskógum í Höfða- hverfi 2. júlí 1859. Foreldrar hans voru Svanhlidur Jónasdótlir og Jörundur Jónsson, sem síðar varð útvegsbóndi og hákarlafor- maður í Hrísey og gerði þann garð frægan um langan aldur. Er foreldrar Björns flu'.tust til Hrís- eyjar, fluttist Björn þangað einn- ig og var hann þá 5 ára að aldri. Hefir hann átt heima í eynni síð- an. Björn kvæntist 22 ára gamall Guðrúnu Jónsdóttur, hinni mes‘u myndarkonu. Nokkru síðar eða 1884 reisti hann húsið Sela- klöpp, og bjó þar síðan alla ævi, nú síðustu árin hjá fóstursyni sínum og konu hans. Björn stundaði alla æfi meðan kraflar entust bæði sjósókn og landbúnað, þó't sjórinn sæti í fyrirrúmi. Rak hann mikla út- gerð um skeið. En jafnframt því sinnti hann mörgum öðrum störfum. Um skeið hafði hann umsjón með eignum Norðmanna, er stunduðu síldveiði frá Hrísey, salthúss'jóri fyrir Höepfnersverzl- un var hann í 25 ár, fiskimats- maður langalengi, og mörg önn- ur störf leys'i hann af hendi með hinni mestu prýði. Heimilið á Selaklöpp var eitt hið mesta myndar- og rausnarheimili í Hrísey og þótt víðar væri leitað. Margt manna var þar ætið í heimili, og margir gestir komu þar, bæði innlendir og erlendir, og þágu greiða og fvrirgreiðslu, sem ætíð var í té látið af mestu rausn. Þau Björn og Guðrún eignuð- ust 4 börn og eru 3 þeirra látin. Konu sína missti Björn 1925 ef'ir 44 ára sambúð. Sjálfur var hann blindur um allmörg ár. En þótt margar raunir hafi þannig borið honum að höndum, var hann jafnan glaður og reifur, og hafði títt spaugsyrði á vörum og hafa mörg hnyttin tilsvör hans geymst í minni manna. Björn lét af rekstri útgerðar 1938, eftir að hafa stundað hana um 60 ára skeið. Með honum er einn hinn síðasti hinna gömlu ú‘vegsbænda við Eyjafjörð genginn til mold- ar.

x

Laugardagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Laugardagsblaðið
https://timarit.is/publication/889

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.