Laugardagsblaðið - 11.06.1955, Page 4

Laugardagsblaðið - 11.06.1955, Page 4
Ritatjórí og íbyrgtTarmaður: Arni bjarnarson, Akureyri. Laugardagsblaðið Laugardagur 11. júní 1955 Kemur út á laugardöguai *'«jð kr. 10 á ársfjórð. í lausasölu kr. 1. Prentsmiðja Bjöms Jónssonar h.f. prentaðL Páll II. Jónsson Dagbók vikunnar — bóndi og hreppstjóri á Stóruvöllum Minningarorð. Varðborg Bjart var yfir Bárðardal hinD 1. júní s. 1. Hlý vorgolan bar þungan ilm laufs og lygs. Grund- irnar og móarnir voru óðum að grænka og fannir að leysa úr efs'.u fjallabrúnum. í miðjum dal dunaði Skjálfandafljót og vall fram í hrokavexti á leið sinni að ósi. Þennan dag voru Bárðdælir og aðrir frændur og vinir að kveðja aldinn sveitar- og héraðsstólpa, Pál Hermann Jónsson óðalsbónda á Stóruvöllum. Hér var kvaddur maður, sem lokið hafði merku, heilladrjúgu og nær aldarlöngu ævistarfi sem bóndi, hreppstjóri og stofnbúi sveitar sinnar. Páll fæddist hinn 13. október árið 1860 á Stóruvöllum. For- eldrar hans voru Aðalbjörg Páls- dóttir frá Hólum í Laxárdal og Jón söðlasmiður og bóndi Bene- diktsson á Stóruvöllum. Páll ólst upp í glaðværum hópi 6 systkina fram á unglingsár, en brá sér þá til Danmerkur að sjá fleira og kynnast öðru en umhverfi og hugsunarhætti heimahaganna. — Heimkoman 1885 var ekki glæsi- leg. Hafísar lágu fyrir öllu Norð- urlandi, grasspretta það sumar með rýrasta móti, harðindi og bágindi almenn. Um þetta leyti stóðu þjóðflutningaríslendinga til Ves*urheims sem hæst. Flykktust menn unnvörpum frá fátæktinni og vonleysinu á Fróni vestur á hinar víðu sléttur Bar.daríkjanna og Canada, þar sem þeim hafði verið lofað gulli og grænum skóg- um. En Páll Hermann glataði aldrei trúnni á landkosti ættlands síns, þótt á móti blési. Þetta sum- ar hóf hann búskap á ættaróðal- inu og bjó þar siðan til dauða- dags að undanskildum nokkrum árum um aldamótin, sem hann bjó á Ljósavatni. Haustið 1888 gekk hann að eiga Sigríði Jónsdóttur frá Bald- ursheimi í Mývatnssveit, en hún lézt vorið 1948. Börn þeirra voru þessi: 1. Jón, f. 1889, kvæntur Guðbjörgu Sigurðardóttur frá Yztafelli, bóndi á Stóruvöllum. 2. Aðalbjörg, f. 1891, gift Agli Þorlákssyni kennara á Akureyri. 3. Hermann, f. 1895, bóndi á Hlíðskógum í Bárðardal, kvænt- ur Huldu Jónsdóttur frá Mýri. Hann lézt 1951. 4. Þuríður, f. 1900, gift Baldri Jónssyni frá Sigurðarstöðum, hónda á Stóru- völlum. 5. Dagrún, f. 1905, sem staðið hefir fyrir búi með föður sínum hin síðustu ár og annazt hann í ellinni. Páll var hinn mesti framfara- maður í búskap sínum. Hann bætti bújörð sína á marga lund, ræk'aði hana, hýsti og lýsti. Hann reisti þar stórt og myndarlegt í- búðarhús úr höggnum steini á 9. tug 19. aldar í félagi við bræður sína Albert og Sigurgeir og mág sinn Karl Friðriksson. Þetta hús mun vera hið fyrsta eða eitt hið fyrsta sinnar tegundar á íslandi, og sýnir það stórhug þeirra fé- laga. En kunnastur mun bóndinn Páll H. Jónsson vera fyrir fjár- ræktarstörf sín, enda var Stóru- v’allafé annálað fyrir afurðagæði. Páll mun hafa orðið elzlur allra íslenzkra bænda um sína daga. Mörg trúnaðars'.örf voru Páli falin, þótt þau verði ekki öll tal- in hér. Hreppstjóri Bárðdæla- hrepps var hann 44 ár, lét af því starfi níræður að aldri og var þá elztur íslenzkra hreppstjóra. í flestum hlutum var hann forvígis- maður sveitunga sinna og barð- ist fyrir mörgum góðum málum. Síðasta stórvirkið var brúin mikla, sem nú er að rísa yfir Skjálfandafljót fram undan Stóru völlum, þótt honum auðnaðist ekki að fara hana sína hinztu för. Ilann var sæmdur riddarakrossi Fálkaorðunnar árið 1939. Páll H. Jónsson var fremur lágur vexti, en knálegur, andlitið sviphreint og broshýrt, festulegt og göfugmannlegt. Hann var glaðvær alvörumaður og trúði á íramtíð landsins og Lfsins. Hann var söngvinn í bez'.a lagi og undi sér jafnan hezt með ungu fólki, enda gerði hann sér far um að skilja það og lyfta hugum þess. Dýravinur var hann jafnan af einlægu hjarta og átti afbragðs- góðhesta. Hann bar elli sína flestum mönnum betur, enda var hann löngum heilsuhraustur. Hann var alla ævi ungur í anda og var sem hann ykist að bjarl- sýni og trú á framtíðina með hækkandi elli, enda hélt hann andlegum kröftum óskertmn til hinzta dags. Ellin varð honum léttbær, því að sjaldan hafa silf- urhærur skýlt jafn-ungri sál. Hann andaðist aðfaranótt 10. maí s. 1. og skorti þá 5 ár og 5 mánuði á öld. Hinzta för hans um hlýlegan og sólstafaðan Bárð ardal var sigurför hins glæsta foringja, heimför hins dygga þjóns, sem hafði varðveitt trúna á gróðurmagn lífsins. Sunnudaginn 22. maí s. 1. var opnuð sýning í Æskulýðsheimili Templara, Varðborg á munum, sem unnir hafa verið á námskeið am heimilisins í vetur. Margt var þar vel unninna muna, sem sýndu íð þarna hafði verið starfað af ihuga og kunnáttu. Námskeiðin í /arðborg eru ekki einungis hugs- rð sem dægradvöl, heldur e'.nnig jða öllu fremur sem hagný'ur skóli. Verður þeim haldið áfram aæsta ár, og er vonandi að þarna geti smám saman vaxið upp eglulegur skóli í alls konar hand- íðum. Aðalfundir Búnaðar- Mbsnds S-Þingeiringa Búnaðarsamband Suður-Þing- eyinga hélt aðalfund að Laugum mánudaginn 6. júní s. 1. Mörg mál voru rædd á fundinum. Meðal þeirra voru: Hækkun bún- aðarsj óðsgj aldsins, Bændadagur- inn, steinefnaáburðartilraunir, girðingamál o. fl. Samþykkt voru mótmæli gegn hækkun á skatt- mati búfjár. Þá var einnig sam- þykkt ályktun til næs'a Búnaðar- þings um að taka til athugunar. hvort ekki sé tímabært að s'yrkja skógar-skjólbelti hjá heimilum á svipaðan hátt og aðra ræktun. Fundinn sátu 18 fulltrúar frá 8 búnaðarfélögum. Bílstjóradeilan Vinnudeila hófst milli vörubíl- stjórafélagsins Valur og atvinnu- rekenda hér á Akureyri, nú í vik- unni. Málið var afhent héraðs- sáttasemjara og sat hann á fundi með deiluaðilum til klukkan hálf þrjú á föstudagsnótt. Sáttasemj- ari lagði fram miðlunartillögu og fékk fres’að verkfalli, sem boðað hafði verið þangað til báðir aðil- ar hefðu greitt atkvæði um hana. Á föstudagsmorgun greiddu deilu aðilar atkvæði um tillöguna, og var hún samþykkt af þeim báð- um, en með naumum meirihluta hjá bílstjórunum. í tillögunni er gert ráð fyrir að bílstjórar hér fái svipuð kjör og í Reykjavík. Hdsetohlotur um 40 þús. kr. d 4 mínuðum Ágætur fiskafli hefir verið undanfarna daga á línu á Húsa- víkurbáta og mun hásetahlutur á suma þeirra síðustu 4 mánuðina vera um og yfir 40 þús. kr. Nœlurvörður á laugardag og sunnudag, 11. og 12. júní, er í Stjörnu Apóteki, sími 1718. Annars alla næstu viku í Akureyrar Apóteki, sími 1032. Nœturlœknar nœstu viku. Laugardag og sunnudag, 11. og 12. júní Sigurður Ólason, Hrafnagilsstræti 21, sími 1234. Mánudag 13. júní Bjarni Rafnar, Skólastíg 11, simi 2262. Þriðju dag 14. júní Pétur Jónsson, Hamarstig 14, sími 1432. Miðvikudag 15. júní Sig- urður Ólason. Fimmtudag 16. júní Frosti S.'gurjónsson, Helgamagrastræti 17, sími 1492. Föstudag 17. júní Frosti Sigurjónrson. Leið'rétting. — f afntælisgrein um Sævald Valdimar:son, hónda í Siglu- vík á Svalbarðsströnd, í s'ðasta blaði var sagt að hann hefðl átt sjötugsaf- mæli þann 19. júní. Þetta átti auðvitað að vera 19. maí, og leiðréttist þetta hér með. Pétur Jónsson, læknir, hefir beðið blaðið að geta þess, að hann verði fjarverandi næstu viku. Gjöj til væntanlegrar kirkju í Flatey á Skjálfanda, kr. 25,00 frá ungri stúlku á Akureyri. Hjúskapur. Mánudaginn 6. júní s.I. voru gefin saman í hjónaband í Kaup- angskirkju af sóknarprestinum séra Benjamín Kristjánssyni, Laugalandi, ungfrú Mary Hunt, kennari við Stan- ford Univer ity, Stanford Bandaríkjun- um og Earl Gunnar Jensen, lögfr. frá San Francisco. Brúðguminn er sonur Ingvars heitins Guðjónssonar útgerð- armanns, alinn upp í Vesturheimi. Akureyrartogararnir. Svalbakur landaði á íimmtudaginn á f aflrði 185 tonnum af ísfiski. Fór á veiðar aftur í gær. Harðbakur er í fiskileit á vegum ríkisstjórnarimur. Svalbakur er á veiðum. Kaldbakur er í aðgerð. íörosÉ Koupfélags Eyfirðinga 60 milljónir krönii s.l. dr Endurgreiðsla K.E.A. til félagsmanna sinna nemur 1 miilj. og 250 þús. kr Aðalfundur Kaupfélags Eyfirð inga, var haldinn á Akureyri dagana 7. og 8. júní síðastl. Fundinn sátu 165 fulltrúar frá 22 félagsdeildum, auk 6tjórnar, endurskoðenda og framkvæmda- stjóra. Heddarvörusala félagsins, ásamt afurðasölu, sölu verk- smiðja og annarra starfsgreina og delida nam á árinu 1954 rúm- lega 150 milljónum króna. Fund- urinn samþykkti að endurgreiða félagsmönnum 5% af ágóða- skyldri vöruúttekt fyrra árs, þar af 2% útborgað í viðskiptareikn- inga og 3% í stofnsjóð. Ennfrem- ur gieiðist í reikninga félags- manna 5% af skiluðum brauð- arðmiðum og 5% af úttekt fé- lagsmanna í Stjörnu Apóteki, er þeir greiða sjálfir. Nemur heild- arupphæð endurgreiðslunnar tæp lega 1 milljón og 200 þús. krón- um. Sameignarsj óðir félagsins höfðu aukizt á árinu urn tæplega 700 þús. krónur, og stofnsjóðir höfðu aukizt um tæpar 900 þús. kr. Fastráðnir starfsmenn hjá fé- laginu og starfsdeilduin þess voru í árslok 345. Stjórn félagsins lagði fram eftirfarandi tillögu, er samþykkt var í einu hljóði: „Stjórnin samþykkir að leggja til við aðalfund, að Kaupfélag Eyfirðinga veiti kr. 10,000,00 sem styrk til við- halds byggingar í Fremri- Kotum í Norðurárdal." Þá samþykkti fundurinn einnig eftirfarandi tillögu: „Aðalfundur KEA haldinn á Akureyri 7. og 8. júní 1955 lýsir megnri óánægju yfir skattmati ríkisskattanefndar á búpeningi. Lítur fundurinn svo á, að við ákvörðun mats- ins verði fyrst og fremst að leggja til grundvallar afurða- verð. Skorar fundurinn á rík- isskat’anefndina að endur- skoða matið fyrir næsta fram- tal til skatts.“ Ur s'jórn áttu að ganga Þórar- inn Kr. Eldjárn og Eiður Guð- munlsson, og voru þeir báðir endurkosnir. Endurskoðandi til tveggja ára var endurkosinn, Hóhngeir Þorsteinsson, og sömu- leiðis til tveggja ára varaendur- skoðandi Marteinn Sigurðsson. I stjórn Menningarsjóðs til þriggja ára í stað dr. Kristins Guðmundssonar ráðherra var kosinn séra Sigurður Stefánsson á Möðruvöllum, og varamaður í stjórn Menningarsjóðs Þorsteinn M. Jónsson, skólastjóri. Fundarmönnum og gestum var boðið í Leikhúsið bæði fundar- kvöldin og var leikritið „Skóli fyrir skattgreiðendur“ sýnt við mikinn fögnuð áheyrenda. ___*_____

x

Laugardagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Laugardagsblaðið
https://timarit.is/publication/889

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.