Foreldrablaðið - 01.03.1951, Side 13
Gætið bamarma í umferðinni og kennið
þeim umfram allt að gæta sín sjólf
Á UNDANFÖRNUM ÁRUM hefur
umferðarkennsla verið aukin í skólunum.
Þó er ekki hægt að segja, að þess gæti
verulega í umferðinni á götum bæjarins,
enda er þess vart að vænta, að börn og
unglingar hafi festu í sér til að halda um-
ferðarreglur, sem þeim hafa verið kennd-
ar á stuttum námsskeiðum, þegar þau sjá
þessar sömu reglur þverbrotnar daglega
af fullorðna fólkinu, foreldrum þeirra
sem öðru. í þessu sem öðru þurfa for-
eldrar að gæta þess að vinna með skólan-
um. Líf barns getur legið við. Fyrsta um-
ferðarkennslan, sem barnið fær, á að vera
veganesti heiman frá. Skólinn á að byggja
þar ofan á. Foreldrar. Kennið börnum
yðar helztu umferðarreglur eins fljótt og
unnt er, en — gætið þess jafnframt að
fara eftir þeim reglum sjálf.
J. B. J
Foreldrar. Það
er skylda ykkar
að fara sjálf með
börnunum út á
götu. og kenna
þeim, hvernig
þau eiga að
ganga rétt yfir
götu. Nemið
staðar á gangstéttarbrúninni, gætið til in ekki sjálfráð um þetta, eins og myndin
beggja handa og gangið beint yfir götuna, til vinstri sýnir.
þegar lát verður á umferðinni. Látið börn- Umferðakennslan fer fram í fimleikasöl-
um skólanna. Þar eru
markaðar götur á gólf-
ið, og sýnir myndin,
hvar börnin, sem látast
vera á reiðhjóli, gefa
umferðarbendingar
með höndunum um
það, á hvora hliðina
þau ætla að beygja
við gatnamót.
Umferðarmyndrnar hef-
ur Jón Oddgeir Jónsson,
fulltrúi Slysavarnafélags
íslands lánað Foreldra-
blaðinu og samið skýring-
ar við þær.
FORELDRABLAÐIÐ 13