Unga Ísland - 01.05.1905, Síða 2

Unga Ísland - 01.05.1905, Síða 2
34 UNQA ÍSLAND Amma mín Jeg gleymi því aldrei, hversu mjer þótti skemmtilegt og rólegt í rökkrun- um á kvöldin, þegar amma mín var að segja okkur krökkunum sögur og kenna okkur kvæði og stökur. Við söfnuðumst utan um hana eins og ungar umhverfis hænu. Hún sat undir sumum, en hinir stóðu í hvirf- ingu í kring, eins þjett eins og unnt var. Allir kepptust við að vera sem næst henni, til þess að heyra sem allra bezt og geta fylgst með. Pegar frásögnin var byrjuð, vorum við grafkyrr og þögul eins og steinar. það var hægt að kaupa okkur til alls fyrir sögur. þótt við værum opt löt og óþæg, þá urðum við þæg og eptirlát, ef okkur var heitið fallegri sögu. Amma mín kunni mesta sæg af sögum og var full margs konar fróð- leiks, og óspör á það hnossgæti við okkur, enda komum við okkur vel að því að nefna það við hana og minna hana á, ef hún dró á langinn eða gleymdi að efna þess konar lof- orð. Hún stytti okkur marga stundina, blessuð kerlingin, hjelt okkur frá usla og ólátum, — og mjer er óhætt að segja — hafði rnikil og holl áhrif á hugsana- og tilfinninga-líf okkar, sem ekki var svo sjerlega fjölskrúðugt eða víðtækt á þeim árum. Jeg er nú búinn að gleyma mörgu af því, er jeg nam af henni, en áhrif- in, er hún hafði á mig, skilja aldrei við mig og minning hennar lifir æ hlý og Ijúf og hjartfólgin í brjósti mjer. Að vísu er þetta ekki neitt sjerstak- legt, að því er mig snertir, því að flestir hafa áttömmur, sem þeir unna og muna meðan þeir lifa. Amman er eins og barnsins önnur móðir, og opt miklu ástríkari og um- hyggjusamari. Hún ber það á hönd- um sjer, fræðir og gleður með öllu móti. Hún kennir |aví fyrst að skilja og þekkja lífið, vekur hjá því trú og ást á ættjörðinni og því, sem er ein- kennilegt og sjerstætt fyrir þjóð þess og land. Hún gefur því góða leið- sögn og heilræði og segir því, hvað það eigi að varast, og eptir hverju það eigi helzt að keppa, til þess að verða góður og nýtur maður í þjóðfje- laginu á fullorðinsárunum. — AMMA SEGIR SÖGUR. Á fyrstu síðu hjer á undan er mynd af gamalli konu og nokkrum börn- um. Hún er amma þeirra og er að segja þeim sögur. Hún segir þeim aldrei aðrar sögur en þær, sem eru fallegar. En fallegt er allt, sem að einhverju leyti ergagnlegtog nytsamt lífinu. Húner núnaaðsegjaþeimþessasögu. Góð systkin. Einu sinni voru fátæk bændahjón á sveitabæ í Norvegi. Þau áttu tvö börn, sem hjetu Vilhjálmur og María. María var átta ára, en Vilhjálmur sex, þegar þessi saga gerðist. Foreldrarnir voru bæði ungog hraust og kviðu eigi lífinu nje fátæktinni. lJó mátti heita, að börnin væru aleiga þeirra. En þau voru undurgóð og mannvænleg börn og foreldrar þeirra gerðu sjer miklar vonir um þau og reyndu snemma að innræta þeim trú á sjálf sig og ættjörðina og kenna þeim dyggðir og fagra siðu. Þessunr fátæku hjónum hafði allt til þessa farnast vel, og ánægja og frið- ur og blessun ríkti á heimili þeirra. lJau voru því sæl og unduvel hagsínum. En hjer fór sem optar, að hamingju

x

Unga Ísland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.