Unga Ísland - 01.09.1906, Blaðsíða 2

Unga Ísland - 01.09.1906, Blaðsíða 2
66 UNGA ISLAND. var einstakur maður að iðjusemi og samviskusemi og það kom þess- um bláfátæka unglingi að svo góðu liði, að hann varð heimsfrægur maður og einhver þarfasti maðnr ættjörðu sinni. Þó að hann væri algjörlega sjálfmentaður maður varð hann frægur vísindamaður og heið- ursfjelagi enska og franska vísinda- fjelagsins og upp úr mestu fátækt varð hann auðugur maður, og var þó hans mesta ánægja að liðsinna hágstöddum. En allur hans fi'ami var lians miklu manndygðum að þakka. Hann andaðist 17. apríl 1790. 17. jan síðastliðinn voru mjög mikil hátíðahöld um gjörvöll Banda- ríkin til minningar um 200 ára af- mælisdag hans. Æfisaga þessa mikilmennis er til á islensku og er hún liin hesta bók til lestrar handa unglingum. Hún sannar að hinum umkomulausasta unglingi er kleyft að komast til hins mesta gengis í heiminum. Af því að bók þessi er svo óvíða til nú orðið verða fáeinir kaflar úr henni birtir í Unga íslandi og eru þeir þess verðir, að þeir sjeu lesnir með mikilli athygli. §ampo gitlilappi. Framh.) Framkvæmdin kom þegar á eftir orðunum. Sampo beitti lireininum fyrir sleðann sem hann var vanur. Siðan hjelt hann út á fannirnar. »Eg ælla þó að aka eitthvað á leiðina til Rastekais«, liugsaði hann. Síðan þaut hann yfir ísinn á ánni og þá áfram eftir bakkanum hinumegin. Nú var Sampo kominn til Noregs, því að Tanakvísl skilur Noreg og Lappland. En ekki vissi Sampo neitt um það. Þú sem les þessa sögu um Litla lappa, hefur þú nokkurn tíma sung- ið þessa vísu: »Hlaup þú, hlaup þú hreinninn minn«. Þekkir þú fallega kvæðið, sem blessaður karlinn hann Franzin biskup hefur ort? Þann mann elskar öll Svíþjóð og alt Finn- land. Og hefur þú tekið eftir titil- blaðinu á lcvæðum hans? Þar er mynd af lapplenskum dreng, er læt- ur hreininn draga sig á fleygiferð yfir fannirnar. Sampo Litlilappi er honum líkur. Hann sat með sama hætti á sleðanum sínum og söng : »Dimt er um geim en leiðin er löng; sinn mínum söng, sentu þig heim. Úlfar ýlfra á snjó, engin hjer fæst ró«. Og Sampo sá úlfana, þegar hann söng þetta. Þeir voru að sjá sem gráir hundar í dimmunni, þar sem þeir hlupu umhverfis vagninn og reyndu að glefsa í hreindýrið. En Sampo varð ekki ókvæða við það. Hann vissi vel að úlfarnir voru ekki eins ljettir á sjer sem hans fóthvati hreinn. En nú var gangur á, því að hann fjékk hellu fyrir eyrun af þytnum. Sampo lofaði hreininum að hlaupa. Brast við í fótum hans og máninn rann í köpp við hann og ekki bar á öðru en klettarnir hlypi með. En Sampo stóð alveg á sama. Slíkur akstur var unaðslegur, og hann hugsaði ekki um neitt annað. Nú varð að snarbeygja fyrir hól einn. Valt þá sleðinn um koll og Sampo datt úr honum og lá eftir á skaíli. Hreinninn vissi ekki afþessu óhappi. Hugði hann að Sampo sæti enn í sleðanum og hljóp alt sem af tók. Svo mikill snjór hafði komið í

x

Unga Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.