Unga Ísland - 01.09.1906, Blaðsíða 4

Unga Ísland - 01.09.1906, Blaðsíða 4
68 UNGA ISLAND sá, sem myndin sýnir, fjell á Þýzka- landi fyrir skömmu og varð náð af honum ljósmynd. Stjörnuhröp og vígalinettir var talin ills viti og var mikil lijátrú á því, en nú eru slík hindurvitni höfð að engu. Vígahnöltur. SíoRRöné er sá fugl af andakyninu, sem einna víðast er kunnur, því að hún á heima um allan norðurhluta hnatt- arins. Hjer á landi hefir hún ýms nöfn, sem eru mjög á reiki og sitt á hverjum stað. Ivalla sumir hana stóru-gráönd eða stóru-móönd, aðr- ir stokkönd, grasönd eða græn- höfðaönd og enn fieiri nöfnum. Steggurinn er alment kallaður grœnhöfði og er hann vel að því nafni kominn, þvi að höfuð hans er allt fagurgrænt langt niður á háls. Hann er dökkmórauður á bring- unni en gráleitur á bak- inu og' um búkinn. Of- an á vængjunum miðj- um eru dökkgrænar smá- fjaðrir með bláleitri slikj u; það heitir »spegill«. A bakinu aftur við vélið eru tvær smáfjaðrir, sem beygjastíhring upp á við. Þær sjást hjer á mynd- inni. Öndin er mórauð á lit með dökkgrænum spegli á vængjunum. Hún er heldur minni vexti en steggurinn. Endur þessar hafast mest við á grunnum tjörnum oggrónum mó- gröfum, eða við læki og kíla, þar sem móar eru eða mýrarflóar. Sjaldan eru þær margar saman. Þær eru styggar og var- ar um sig, sjá og heyra vel og eru þefvísar. Er þvi erfitt að komast nærri þeim. Þær lljúga vel og erugóðir sundfuglar. Þær gela einnig gengið all- vel og özla oft um fióa og seyrur til þess að alla sjer ætis. Eru þær gráðugar og eta bæði gras og ræt- ur, orma, snígla, hrogn og smásil- unga og lleira það, sem fyrir verður. Þær gera hreiður sín helzt í mó- um nálægt tjörnum, ám eða vötn- um, í viðarrunnum eða grasi.

x

Unga Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.