Unga Ísland - 01.01.1909, Qupperneq 9
UNGA ÍSLAND.
7
fagurt skín hreystin góð,
fegurst skín rósin rjóð
runnin á mel!
Elstu menn.
i.
I bibliunni er sagt frá mönnum er
urðu afargamlir. Metúsalem, langafi
Nóa, varð 969 ára. Ekki verður sagt
með vissu hvernig þessi hái aldur er
talinn, en víst er að styttri tími en
nú hefur í þá daga verið kallaður
ár.
Frá síðari tímum er þessaramanna
getið. Um 1640 lifði á Englandi mað-
ur að nafni Tomas Parr og var hann
þá 152 ára gamall og vel ern. Hann
þótti hið mesta undur fyrir aldurs
sakir, og var kallaður til hirðar Karls
I. Áður hafði hann lifað við óbrej'tta
fæðu, en er hann kom til hirðarinn-
ar, var að lionum haldið ýmsu sæl-
gæti, og fjekk hann af því magaveiki
og dó. Læknirinn sem stundaði hann
var Harvey, sá er fann (1619) hring-
rás blóðsins, og sagði hann að liann
hefði getað lifað í mörg ár enn.
Árið 1670 dó úr innkulsi í York á
Englandi Henry Jenkins skipstjóri, og
var hann á 169. árinu, hann hafði
synt yfir á er hann var rúmlega tí-
ræður (= 100 ára), En fáum árum
fyrir andlátið bar hann vitni fyrir
i'jetti um það, sem skeð hafði fyrir
140 árum, var liann þá með sonum
sinum tveimur, var annar 102 ára
en hinn 100 ára gamall.
Norskur bóndi að nafni Guvington
hefur mjög verið annálaður. Hann
varð 160 ára og átti þá 9 ára dreng
úr síðasta lijónabandi, en elsti son-
ur karlsins var 108 ára.
Elsti núlifandi maður ætla menn að
sje negri að nafni Bruno Cetim. Hann
á heima í Buenos Aires (í Argentínu
í Suðurameríku) og er rúmlega 150
ára að aldri.
Ráö.
Að vita hvað tíma líður i myrkri. Opl ber
svo viö aö ekki verður sjeð á úriö vegna
myrkurs og engin eldspíta er við liendina,
og er þá gott aö kunna þetta ráö. Taktu
einu sinni eptir er þú dregur úrið þitl
upp, hve opt smellur í þvi. Jeggjöriráö
fyrir, að þú gjörir þetta þegar þú háttar,
og að þú háttir venjulega á sama tíma —
deildu nú meö 24 í smellatöluna og hef-
urðu þá hve margir smellir eru fyrir
hvern klukkutima. Siðangeturðu hvenær
sem er lieyrt hvað klukkan er, með því
að draga liana upp og telja smellina. T.
d. 120 smellir eru á 24 tímum, þá 5 á
timanum. Pú háttar kl. 11, vaknar seinna
ogdregur úrið upp og' eru þá 27 smellir,
sem gera 5 tíma og 40 mín. klukkan er
þá 4 og 40 min.
Hefurðu athug'nð
að spegilmyndin er öfug. — Þegar þú horf-
ir í spegi) verður allt vinstra megin i mynd-
inni, sem er hægra megin á þjer, og hægra
megin á myndinni, sem er vinstra megin
á þjer, (t. d. liendin).
að klukkan verður á hverjum degi tvisvar
hið sama nema 12 að eins einu sinni þ.
e. á hádegi. — KI. 12 á miðnætti er aðeins
takmörkin milli daganna og heyri því
hvorugum til.
ad allur tími er annaðhvort liðinn eða
ókominn. (Pú ert t. d. að lesa. Pað, sem
þú hefur þegar lesið, heyrir til liðna tim-
anum, hitt ókomna tímanum).
>
Slii-ítlur.
Unga húsfreyjan: Er það ekki undar-
legt hvað síldin er sölt, það lifa þó íleiri
fiskar i söltu vatni!
I skóla: Presturinn var að líta eptir