Unga Ísland - 01.11.1909, Síða 2
UNGA ÍSLAND
82
sýslumannsstörfum í Árnessýslu, Snæ-
fellsnessýslu (5 ár) og Gullbr. og
Kjósarsýslu (5 ár) og var hann á
þeim árum þrisvar sinnum kosinn al-
þingismaður fyrir Snæfellsnessýslu.
Um 23 ára skeið var hann mála-
llutningsmaður hjer og tímakennari
í lærða skólanum aldarfjórðung.
Margar bækur hefur Páll ritað í
sagnfræði og allar skemtilegar lestrar,
svo sem Fornaldarsögu, Miðaldasögu,
Nýusögu og Norðurlandasögu, málið
óvenju lipurt og hreint. Sjálfurhefur
maðurinn verið mesta ljúfmenni og
prúðmenni og er hvers manns hug-
ljúfi þeirra er honum hafa kynnst.
Hann er nú nýlega orðinn alblindur
og lcominn i kör, en minni heldur
hann góðu og er málhress vel.
Hann er heiðursfjelagi bókmenta-
fjelagsins, sæmdur riddarakrossi danne-
brogsmanna og nýtur heiðurslauna
úr landssjóði.
Tómas Alva Edison.
(Niðuri.), Edison fór nú að langa til
að gefa út blað sjálfur, þegar svona
vel gekk fyrir honum með blaðasöl-
una og hann var ekki lengi að koma
þeirri hugsun í verk. Hann keypti
dálítið af aflögðum stíl hjá blaði því
sem hann var vanur að selja og fjeklc
að búa um sig í gömlum járnbraut-
arflutningsvagni, þar var skrifstofa
blaðsins og prentsmiðja. Þetta vakti
mikla eftirtekt, jafnvel lieimsblaðið
»Tímarnir« í Lundúnum gat þessa
einlcennilega blaðs og ekki leið á löngu
áður Edison varð að leggja upp 400
eintök af blaði sínu. Blaðið var ó-
sköp lítið og efni þess var einkum
járnbrautartöflur, verðlag og smáfrjett-
ir, semferðamenn varðaði sjerstaklega.
Járnbrautarþjónarnir höfðu mjög
gaman af fyrirtækinu og aðstoðuðu
Edison eftir föngum við útgáfuna, en
þar sem hann seldi einnig blöð fyrir
aðra, varð hann að fá nokkra drengi
í þjónustu sína því starflð varð brátt
svo umfangsmikið. Frjettirnar í blaði
Edisons voru svo staðbundnar við
járnbrautarleið þá er liann fór, að
aðrir út í frá höfðu þeirra lítið gagn,
þær voru t. d. um breytingar á liag
eins eða annars járnbrautarþjónsins,
um að þessi eða hinn vagninn hefði
verið tekinn til aðgerðar o. s. frv.
Einu sinni fann hann upp á þvi
snjallræði að auglýsa að nöfn allra
áskrifenda yrðu prentuð í blaðinu og
segir hann að við það hafi mjög
fjölgað kaupendum. Þeir höfðu gam-
an af að sjá nafn sitt á prenti. Hann
segist hafa verið mjög upp með sjer
af blaði sínu og skoðað sig áhrifa-
mikinn rithöfund á þeim slóðum,
sem hann ferðaðist.
Edison tók nú að leita sjer meiri
mentunar og keypti aðgöngumiða að
bókasafni og las þar öllum stundum,
var það einkum efnafræði og aflfræði.
Nú fór hann og að gera efnafræðis-
tilraunir í vagnklefa sínum, en end-
irinn varð sá, að í vagninum kvikn-
aði hjá lionum þegar lestin var á
ferðinni. Hann misti þar aleigu sína
og var rekinn burtu. Var haun nú
um kyrt heima um sinn og gerði til-
raunir með ritsíma. Einu sinni bjarg-
aði hann með stöku snarræði, ung-
barni, sem var að verða undir járn-
brautarvagni. Faðir barnsins var
símastjóri og kendi honum í launa
skyni að síma og varð hann svo sím-
ritari. En hann var alt af með ýmis-
konar tilraunir sem yfirboðurum hans
mislíkaði og gat því ekki verið lengi
í sama stað og loks var hann rekinn
algerlega úr símaþjónustu. Hann
hafði þá búið til vjel sem sendi sjálf