Unga Ísland - 01.11.1909, Side 3

Unga Ísland - 01.11.1909, Side 3
UNGA ÍSLAND. 83 símskeyti, eitt einstakt orð, sem síma átti hvern klukkutíma að nóttunni til, til þess aðlátavita, að símaþjónarnir væru vakandi, en svo svaf hann þá og þetta komst upp, þegar einu sinni þurfti að nota símann að nóttu til, og nú var hann atvinnulaus heilan vetur. Aftur komst liann þá að síma- starfi vegna þess, hve afarfljótur hann var að síma og nú var hann 25 ára gamall búinn að Ijúka fyrstu stór- feldu uppfundningu sinni, sem var að senda mörg skeyti í einu með sama síma. Eftir það skorti hann ekki fje, rak nú hver uppgötvunin aðra og varð hann brátt lieimsfrægur. Setti hann nú á stofn verkstöð í Menlo Park í New Jersey og starfar þar enn. Uppgötvanir hans skifta nú liundr- uðum og verður hinna helstu getið síðar. Pr'ir drengir og klukkan. Þrír drengir úr sama liúsi voru beðnir að ná rjettum tíma af klukku hsejarins. Fyrsti di'engurinn fór af stað, leit á klukkuna og sagði þegar hann kom aftur: »KIukkan er 12«. ~~ Ur honum varð ekkert. Næsti drengur var nákvæmari. Þeg- ar hann kom aftur sagði hann að klukkan væri þrjár mínútur gengin «1 eitt. — Hann varð læknir. Þriðji drengurinn leit á klukkuna, gekk svo heim að húsinu og að klukk- unni aftur og reiknaði eftir því hve iengi hann var að ganga heim ogbætti Því við það sem klukkan var er hann stóð við hana. Þegar hann kom heim nftur sagði hann: Þetta augnablik er klukkan 10 mínútur og 15 sekúndur gengin til eitt. — Sá drengur varð frægurvísindamaður. Hann hjet Helm- (Eftir Fraintiðinni). \r eðleikar. (Sjá 11. og 12. blað f. á.). Dómar: Áður hafa verið taldar allmargar veðleikaþrautir og hjer koma nokkrir dómar. 1. Hvern líkar þjer best við af leik- endum og hvers vegna? Þetta er ekki eins auðvelt að segja eins og sýnist í fljótu bragði, en er hægt að leysa vel úr, af greind- um manni. 2. Standa á öðrum fœti og lesa fjórar linur i bók. Bókin á að liggja á hnjenu, sem upp er tekið, og liendurnar fyrir aftan bakið. Þó að þetta takist ekki i fyrsta sinn verður að reyna áfram. 3. Horfast i augu við einhvern til- tekinn. Sá sem fyr lítur undan verður að leggja fram veð. 4. Biðjast ölmusu. Sá ógæfu-gæfu- sami fellur á hnje fyrir framan einhverja stúlkuna í leiknum og klappar laust á linje hennar. Hún tekur þá að spyrja hann um livað hann vilji t. d. »Viltu horða?« — »Viltu dreklca?« — »Viltu ganga með mjer«, en hann liristir höfuðið í hvert sinn, þar til hún segir »Viltu koss?« Þá stekkur liann glaður á fætur og tekur á móti ölinusunni. 5. Sýna glatt og þungbúið andlit á víxl. 6. Hoppa á öðrum fceti fram fyrir hvern einstakann og slá honum gullhamra. 7. Hjerakossinn. Á miðjuna á all- löngum tvinnaspotta (2—3 al.) er settur hnútur. Sá sem dæmdur er velur sjer maka og bíta þau með tönnum sitt í hvorn endann á spottanum, svo eiga þau að reyna sig að ná upp í sig spott- anum fram yfir hnútmn, það sem hnútnum nær hefur unnið, en

x

Unga Ísland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.