Unga Ísland - 01.11.1909, Qupperneq 5

Unga Ísland - 01.11.1909, Qupperneq 5
UNGA ÍSLAND. 85 slæmur drengur, alveg eins og eplin skemdust í skálinni af þessu eina skemda epli, sem látið var saman við. Þú heíir lítið hirt um það, þó jeg hafi sagt þjer það, og þvi var jeg nú að láta þig sjálfan þreifa á því með þessu dæmi«. Þelta varð Róbert miklu minnis- stæðara en áminningarnar. Hann þurfti ekki annað eftir það, en að hugsa um skemdu eplin til að forð- ast illan fjelagsskap. [»Nýtt Kirkjublað«J. V etrargestir. Nú er kominn vetur með snjó og frost, og menn halda sig innanhúss, sem mest, en klæða sig ann- ars vel, ef út er farið. En þeir sem ekkert hús eiga til þess að flýja í — og það eru meðal annars snjótitlingarnir okkar — verða að leita sjer svo sem undir steini eða moldarbarði. En þegar snjórinn hylur jörðina, þá eru þessir veslingar svangir, þeir leita þá heim að bæjum, því að þar er stundum hægt að finna eitthvað til bjargar, einkum hjá fjárhúsunum, þegar moð- ið er borið út, því að þar er ætíð töluvert af fræjum, sem er þeirra uppáhalds fæða. Þessir vetrargestir ættu að vera öll- um kærkomnir og einkum þó ung- hngunum, sem tíma hafa afgangs til þess að fagna litla hópnum. skjóls annarsstaðar, Best er að moka ofan af dálitlum bletti í varpanum, eða annarsstaðar, sem lítill snjór legst á, og færa þang- að moð; það ætti að vera í hrúgu, en ekki dreifa úr því, lofa þeim að gera það sjálfum og svo þætti þeim ósköp vænt um brauðmola, einkum hveitibrauðs, og svo bygg, hafra og lirísgrjón. Það er ekki vert að láta mikið út fyr en fuglarnir hafa fund- ið blettinn, en svo venjast þeir brátt á að finna staðinn, og þá er ánægjan fullkomin. Nú vonar U. ísl. að sem flestir taki vel á móti gestunum og skrifi því svo hvernig gengið hefur, hvern- ig móttökunni var hagað og meðal annars hvað þeim þótti best af því sem fram var reitt. U. ísl. vill svo launa þetta á síðan með einhverju. Bónin. Faðirinn lá veikur og bað son sinn að sækja sjer vatn í körfu. Dreng- urinn fór niður að lind með körf- una og fylti hana af vatni, en áður hann komst hálfa leið heim, var allt runnið úr henni, hann reyndi aftur og allt fór á sömu leið, hann reyndi nokkrum sinnum enn og fór svo heim til föður síns og sagði honum að þetta væri ekki hægt. Já, jeg bjóst við því sonur minn, en sjáðu nú hvað karfan er samt orðin hrein. — Það var eiginlega önnur bón, sem jeg vildi biðja þig og hún er sú, að þú lesir sem mest af því sem fallegt er og gott, jeg býst ekki við að þú munir það allt á eftir, en af því verður þú sjálfur góður maður.

x

Unga Ísland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.