Unga Ísland - 01.08.1912, Blaðsíða 7

Unga Ísland - 01.08.1912, Blaðsíða 7
UNGA ÍSLAND 55 Kári, Njáll, Már(us), Oddgnýr, Ragnar, Skarphéðinn, Steinar, Valtýr, Vil- mundr, Þórir, Önundur, Örn. J. Ö. J. Skagfirðingnr. Báðar hliðarnar. Þeir voru bræður, og hétu Stebbi og Óli. Eitt vorið var þeim lofað í kaupstaðinn. Þeim varð gengið of- an í fjöru. Sjómenn voru nýkomnir að og höfðu með öðrum aíla fengið stóra lúðu. Stebbi varð svolítið á undan Óla ofan í fjöruna; hvíta bliðin á lúðunni sneri upp; hann sá ekki annað og gekk í burt með þá sann- færingu, að Iúðan væri alhvítur fisk- ur. Hann mætti Óla uppi í fjörunni og sagði honum, að hann hefði séð stóran, flatan fisk, sem héti lúða og væri alhvítur. Óla langaði lika til að sjá hana. Þeir skilduþá; en áður en Óli kom, hafði einhver hásetinn snú- ið lúðunni við, svo nú vissi svarta hliðin upp. Óli sá því ekki annað en svarta lúðu. Hann flýtti sér þang- að, sem foreldrar hans gislu. Stebhi var þá í mesta máta að lýsa fyrir systur sinni stóra hvíta fiskinum, sem hann liafði séð í fjörunni og nefndur væri lúða. »Og þú skrökvar Stebbk, sagði Óli; »lúðan er ekki hvít; hún er svört, eg sá hana líka«. »0! nei, það ert þú, sem skrökvar«, sagði Stebbi; »hún er hvít; eg sá hana með með mínum eigin augum«. »Og eg sá liana líka með mínum eigin aug- um«, sagði Óli, »og mín augu eru eins góð eins og þín, og hún er svört«. Eftir langa stælu og mörg orð, sem ekki vóru nærri eins falleg eins og drengirnir sjálfir, ruku þeir í hárið hvor á öðrum; báðir þóttust hafa á fyllilega rétlu að standa — en í því kom pabbi þeirra að þeim. Þá er hann fékk að vita ágreiningsefnið, tók hann sinn við hvora hönd og leiddi þá ofan í fjöruna. Svarta hlið- in á lúðunni vissi enn upp. »Þarna sérðu«, sagði Óli við Stebba, »að eg hafði rétt; lúðan er svört. í sama bili tók faðir þeirra í sporð lúðunnar og velti henni við. Það glaðnaði yfir Stebba, og hann sagði við Óla: »En nú sérðu, að eg hafði líka rétt«. — »Já!« sagði faðir þeirra, »þið liöfðuð báðir rétt að hálfu leyti, en heldur ekki nema að hálfu leyti, aí því að hvorugur ykkar skoðaði nema aðra liliðina. En munið nú eftir því fram- vegis, og þegar þið komist út í lífið, að maður þarf ávalt að skoða báðar hliðarnar hæði á mönnum og mál- efnum, ef maður vill verðskulda að heita sanngjarn og réttlátur maður, og geta lagt það sem rétt er til livers máls. 01. Óla/sson. Hh. * Orðabelgurinn, Islenskir íiáttúrugiinsteinar. Linda litla þótti ósköp vænt um sveil- ina sína, en einkum var það fjallið, sem var fyrir ot'an bæinn lians, sem hann elsk- aði mest. Það var svo hratt, lignarlegt og fagurt, eins og Island er alt. Einkan- lega var það fagurt á vorin, þegar það var að skrýðast sumarskrúða sínum. Þá var gaman að leika sér í hrekkunni og liggja í grasinu, sem tók víða í liné, og horfa á ærnar og litlu lömbin, sem léku sér glöð og ánægð i kring um mæðurnar og böð- uðu sig í sólskininu á milli. Linda þótti gaman, þegar farið var að smala fénu á vorin. Hann fékk þá ott að koma upp á fjallið, og þaðan var lag- urt útsýni. Þaðan sést fram á heiðar, og jöklarnir Hofs- og Langjökull sjást, ef heiðskírt veður er. Einnig sést ofan i dalinn, þar sem bærinn hans stcndur.

x

Unga Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.