Unga Ísland - 01.01.1920, Síða 7

Unga Ísland - 01.01.1920, Síða 7
UNGA ÍSLAND 5 Bleikur. Þegar Bleikur var fimm vetra, þótti hann bera langt af öllum skeiðhest- um sveitarinnar, enda var hann af ágætis kyni. Hann var líka mjög fallegur á að sjá, fífilbleikur á belg- inn, en tagl og fax nokkuð dekkra. Grannur var hann og liðlega vaxinn, en heldur þróttlítill og hafði þó feng- ið gott eldi síðustu tvo veturna. Hann kunni ekki annan gang en skeiðið, svo teljandi væri, stökk að vísu, en var afarseinn^á þvi. Það þótli bóndasyni mikið mein, að geta ekki kent bleik að tölta. Leitaði hann til þess ýmissa bragða, en alt kom fyrir ekki. Bleikur skeiðaði eftir sem áður. Nú bar svo við einn dag snemma sumars, þegar Bleikur var fimm vetra, að unga fólkið í sveitinni stofnaði til skemti- reiðar. Var ferðinni heitið að fossi einum, sem var í næstu sveit og var það all-löng leið. Fólkið safnaðist saman á bænum, sem eigandi Bleiks átti heima á og hóf ferðina þaðan. Þetta var á sunnu- dag og veðrið ágætt. Var því glatt á hjalla í hópnum, og eigi leið á löngu áður en farið var að spretta óspart úr spori. Kom það þá til kasta Bleiks að sanna það, að hann væri fljótasti skeiðhestur sveitarinnar, enda gerði hann það ósleitilega. Var enginn sá hestur í förinni, sem tæki hann á skeiði. Eigandinn gerði sér líka mikið far um að sýna yfirburði hans og var óspar á að reyna, enda var fjör- ið nóg hjá klárnum. Þegar að foss- inum kom, voru hestarnir illa útlít- andi, en Bleikur þó einna verst. Hann titraði talsvert, gekk upp og niður af mæði, svitinn rann ofan skrokkinn á honum og froðan vall úr vitunum. Hann velti sér lengi þegar sprett hafði verið af honum, reis hægt á fætur og liristi sig þunglamalega. Svo lötraði hann nokkur spor, stóð sið- an kyrr og hvíldi annan afturfótinn. Allir hinir hestarnir fóru að bíta. Eigandinn sá þessa tilburði Bleiks og gast ekki að þeim. Sagðist hann ekki skilja í, því klárinn Iéti svona. Svo gekk hann að Bleik og rak hann til hinna hestanna og þá fór hann að bíta, hægt og ólystarlega. Fólkið skemti sér við fossinn lengi dags. En þegar hestarnir voru teknir til heimferðar, var bleikur haltur á vinstra afturfæti. Samt var nú lagt á hann og eftir fyrsta' sprettinn var hann orðinn óhaltur og og vitlaus í fjöri. Daginn eftir heimkomuna var Bleik- ur talsvert haltur, en ekkert sá á fætinum. Síðan var hann ekki snert- ur í hálfan mánuð og var þá orðinn næstum óhaltur. Hvarf sú helti með öllu. er honum hafði verið riðið um stund, en ágerðist aftur ef stansað var, og því meir sem viðdvölin var lengri. Fór þessu fram alt sumarið. Eigandanum þótti þetta slæmt, sem von var. Fór hann með Bleik til dýralæknis, og hann sagði að helti þessi væri ólæknandi og að hún staf-

x

Unga Ísland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.