Unga Ísland - 01.01.1920, Side 8

Unga Ísland - 01.01.1920, Side 8
6 UNGA ÍSLAND aði í fyrstú af ofþreytu. En hestur- inn mundi ekki verða verri en þetta og gæti því ósköp vel lifað og gert gagn. En bóndasyni þótti lítið til Bleiks koma, þegar svona var orðið ástatt um hann, og ákvað að selja hann. Ekkert varð nú samt af því fyrir vorið eftir. Þá sendi hann hann norð- ur í sveitir með hestaprangara nokkr- um. Bleikur var þá vel útlítandi og óhaltur að kalla, en það var að byrja aö hnýta innan á vinstra afturfætinum. Hestaprangarinn lofaði Bleik mjög þegar norður kom, og sagði að hann hefði þótt afbragð annara hesta vest- ur þar og seldur að eins vegna fá- tæktar eigandans. Leið því eigi á löngu áður en hann hafði selt Bleik. Var það ungur vinnu- maður sem hrepti hann. Sá liann engin missmíði á hestinum og þótt- ist heldur en ekki hafa gert happa- kaup, þó verðið væri hátt. En ekki liafði hann átt Bleik lengi áður en heltin kom í Ijós. Þóttist þá vinnu- maður illa svikinn, en fékk auðvitað ekki að gert. Samt álti hann Bleik eitt ár. Þá hafði hann hestakaup á honum við prangara að vestan. Varð hann hart úti í skiftunum, því hann varð að gefa mikið á milli Bleiks og þriggja vetra fola, enda var hnútur- inn á fætinum orðinn svo áberandi, að hann hlaut að sjást við fyrstu at- hugun. Prangarinn fór með Bleik vestur og seldi hann þar fátækum bónda fyrir litið verð. Eg þekti Bleik þegar vinnumaður- inn átti hann, og var viðstaddur þegar prangarinn fékk hann í hend- ur. Bjóst eg þá ekki við að sjá hann oftar. Þremur árum siðar var eg á ferð vestur í sveitum. Þá mætti eg manni, sem reið á bleikum hesti og reiddi allmikið í hnakknum. Hesturinn var auðsjáanlega latur, að minsta kosti barði maðurinn fótastokkinn og sló við og við i með stórri fjalldrapa- hríslu, til að árétta aðgerðir fót- anna. Mér varð starsýnt á aðfarir mannsins og mér fanst að eg kann- ast við vesalings bleika dýrið. Mað- urinn fór fram hjá mér. Eg sneri mér við í hnakknum og leit á eftir honum. Pá sá eg að það var stór hnútur innan á vinstra afturfæti hestsins. Petta var Bleikur. Konráð Kristjánsson. Snjallræði. Einu sinni komu þrír menn sér saman um það, að leggja allan ágóða vinnu sinnar í sameiginlegan sjóð, er þeir svo síðar meir skyldu leggja í eitthvert fyrirtæki. Að nokkurum tíma liðnum höfðu þeir safnað álit- legri upphæð. Urðu þeir þá ásáttir um það að koma sjóðnum til geymslu hjá gamalli konu þar í þorpinu, þar til þeir þyrftu að nota féð. Peir fengu nú konunni peningana, og sögðu henni um leið, að hún mætti ekki afhenda þá, nema þeir væru allir við- staddir. Einn þessara manna var þjófur. Hann langaði til þess að ná í alla peningana einn, og var ekki lengi að átta sig á þvi hvað gera skyldi. »Bíðið þið við, vinir mínir«, sagði hann við félaga sína, »mig langar til þess að fara í bað, og eg ætla að skreppa inn til konunnar þarna og biðja hana að Ijá mér sápu«. Hann gekk svo inn til konunnar, en hinir stóðu eftir á götunni og biðu hans. Pegar hann fann konuna, bað hann

x

Unga Ísland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.