Unga Ísland - 01.05.1922, Blaðsíða 4

Unga Ísland - 01.05.1922, Blaðsíða 4
36 0NGA ÍSLAND Síðan þreif maðurinn skóna og stein- öxina og kastaði þeim á eftir kettinum, en hundurinn elti hann þar til hann stökk upp í trje, og siðan hafa þrír karlmenn af hverjum fimm kastað stokkum og steinum í köttinn, þegar þeir hafa sjeð hann, og hundurinn elt hann yfir stokka og steina. En köttur- inn heldur líka það sem hann hefir lofað. Hann er góður við smábörnin, þegar þau draga hann ekki á rófunni. En þegar því er lokið, og tunglið kem- ur upp á kvöldin, þá er hann költur- inn í sjálfsmenskunni, og allir staðir eru honum jafngóðir. Á. Á. Lystigarður Akureyrar, Akureyri er talin vera fegursta þorp þessa lands. Það, sem mest prýðir þorpið, víðsýnt og fagurt um að litast. Eyja- fjörður blasir við eins og hann er langur til, og nokkur hluti dalsins samnefnda innar af. En »Eyjaförður, finst oss, er fegurst bygð á landi hjer«. eru trjá- og blómagarðar bæjarbúa. þeir eru hinir langfegurstu á Iandinu. Akureyri er líka eini bær landsins, sem hefir lystigarð til almenningsnota. Porpið er langt og mjótt — stend- ur á fjöruborði meðfram »Pollin- um«, insta hluta Eyjafjarðar, en bak við það, er brölt brekka. Eru ýms hús uppi í henni. Meðal þeirra er »Sigurhæðir«, hús það, er Matthías skáld bjó i. En uppi á brekkubrúninni, yfir miðjum kaupstaðnum, gnæfir höll mikil við himinn. Er það gagnfræða- skólinn. Sunnan við gagnfræðaskólann, er Lystigarður Akureyrar. Garðurinn stendur hátt; er þáðan Þar sem garðurinn er nú, var áður hólótt tún. Hefir þar verið gróðursett mikið af trjám og aragrúi blóma. Er því öllu vel 'og smekklega fyrir komið. Víðsvegarerubekk- ir milli trjánna, sumir af trje, en aðrir — og þeir miklu skemtilegri — úr grasrót. Geta menn setið þar og notið fegurðar garðs og lands, eða lesið. Austan til í miðj- um garðinum er hæð ein brölt, móti austri, aðlíðandi á aðrar hliðar. í brattanum er gerð grjót- urð, er myndar einskonar tröppur upp á hæðina. íslensk klettablóm þekja urð- ina, og er þetta ekki gangvegur. Uppi á hæð þessari stendur minnisvarði sá,

x

Unga Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.