Unga Ísland - 01.05.1922, Side 8
40
UNAG lSLÁ N D
nm til að rjúka á mig, heldur var hann
að gæta þess, sem hann hafði fundið,
og áleit skyldu sína að varðveita.
Ólafur Pálsson.
Sl
Sönn saga.
Kisa var mjög sorgbitin rétt áður en
þessi mynd var tekin. Það var sem sje
búið að taka frá henni ketlingana, svo
að hún var úrvinda af harmi. Uppi á
borðinu stóð karfa með 22 hænuungum
nýskriðnum úr eggjum. Kisa stökk upp
á borðið og greip einn ungann og stökk
með hann inn undir eldavjelina. Hús-
móðirin lijelt að hún ætlaði að jela
hann, og greip hann því af henni og
barði hana. Fáum mínútum síðar greip
kisa annan unga. Húsmóðirin beið
augnablik, til þess að sjá hvað hún
gerði við hann. Kisa tók ungann og
sleikti hann malandi.
Konan tók nú körfuna og Ijet hana
ofan á gólfið. Kisa fór óðara upp í
hana og lagðist þar niður gætilega.
Ekki meiddi hún einn einasta unga,
þeir hjúfruðu sig að henni og þess
vegna sjást þeir ekki allir 22 á mynd-
inni.
Sl
Ráðningar:
1. tbl.: 1. Skip smíðað úr trje. 2. Annam.
— 2. tbl.: 1. Siam. 2. Eldtöng tekur eld úr
ösku. 3. Hattur. 4. Ullarkambar,
Útgefendurnir þakka fyrir hinar mörgu
úrlausnir á verðlaunaþrautinni. Leikslok
verða birt í næsta blaði og ný verðlauna-
þraut um leið.
Gátur.
1. Holdið skilur seint við sál,
sjá hjer er nafn í felum.
Faðirinn heitir frernst á nál,
fæddur i tveimur pelum.
G. G.
2. Hvað er það sem tollir við alt?
3. Hvert getur reiður maður stokkið, en
óreiður ekki?
4. Pví meira sem úr mjer er tekið, þvi
stærri verð jeg, og þvi minni, sem meira
er í mig látið.
4
Skrítlur.
Kennarinn: Hvaða gagn gerir hryggurinn?
Barnið: Á efri endanum situr höfuðið
en á neðri endanum situr maður.
Langferðamaðurinn segir frá: Villiþjóð-
irnar komast hjá ýmsu böli, sem menningar-
þjóðirnar eiga við að búa. í Ástraliu meðal
negranna, sem ganga alsberir, þekkjast til
dæmis ekki vasaþjófar.
Maðurinn: Hví ertu að erta hundinn,
drengur?
Drengurinn: Hann byrjaði.
Mamma: Ætlið þið að fara að synda i
sjónum svona seint? Þegar sólin er gengin
undir.
Sigga: Já, sólin er gengin ofan í sjóinn
og þá hlýtur hann að hitna.
Prontsmiðjan Gutenberg.