Unga Ísland - 01.01.1926, Síða 5
UNGA ÍSLAND
3
Á krossgötum,
Allir kannasl 'við þjóðtrúna um að
silja á krossgötum. Það á að gerast á
nýársnólt, og skal setið á hæð eða fjalli,
þar sem sjer til fjögurra kirkna. í þjóð-
sögunum segir svo: »þegar menn sitja
á krossgötum, þá koma álfar úr öllum
áttum og þyrpast að manni og biðja
hann að koma með sjer. En mað-
ur má engu gegna. Þá bera þeir
að manni allskonar gersemar, gull
og silfur, klæði, mat og drykk, en
maður má ekkert þiggja. þar koma
álfakonur í líki móöur og syslur
manns og biðja hann að koma, og
allra bragða er leitað. En þegar
dagur rennur, þá á hann að standa
upp og segja: »Guði sje lof, nú
er dagur^ um alt loft«. í*á hverfa
allir álfar, en allur þessi álfa-
auður verður eftir, og hann á þá
maðurinn. En svari hann eða
þiggi boð álfa, þá er hann lieill-
aður og verður vitstola og aldrei
síðan mönnum sinnandi«.
Eins og sjest af þessari frásögn
er það þrekraun mikil að sitja á kross-
götum og mikið í húfi ef illa tekst. En
það eru heldur engin smáræðis laun,
sem sá hreppir, er staðist fær allar
ginningar og situr rólegur uns dagur
rennur.
t'jóðsögurnar segja frá manni nokkr-
um, er Fúsi hjet. Hann sat eitt sinn á
krossgötum og stóðst vel ginningar álf-
anna fram eftir allri nótt. t*eir báru til
hans og buðu honum ýmiskonar dýr-
SHpi, en Fúsi leit hvorki til hægri nje
vinstri og ljet sem hann heyrði ekki
fagurgala þeirra. Loks kom einni álf-
konunni það snjallræði í hug að bjóða
Fúsa að bíta í flotskjöld. Þá raun slóðst
hann ekki. Hann sneri sjer að álfkon-
unni og mælti: »Sjaldan hefi jeg flotinu
neitað«. Síðan tók hann báðum hönd-
um um flotskjöldinn og beit i, en við
það tryltist hann og varð vitlaus. — Á
myndinni sjáið þið Fúsa, þar sem hann
er að bíta f flotskjöldinn.
í þjóðsögunum eru víða mikil sann-
indi fólgin. Þessi saga sýnir okkur, að
sá sem ætlar að höndla gæfuna má ekki
hvika frá settu marki nje láta ginnast
af fagurgala óboðinna gesta. Hver sigur,
sem nokkurs er virði, kostar áreynslu
og stöðuglyndi. En sá, sem vinnur hik-
laust og kappsamlega að hugsjónum
sínum og áhugamálum og lætur engan
lelja sjer hughvarf, sigrar að lokum.
0
Mynd af Grýlu gömlu eftir Tr. Magnússon
kemur að forfallalausu í næsta blaði.
Af sjerstökum ástæðum getur titilblað
síðasta árgangs ekki komið fyr en með
næsta blaði.