Unga Ísland - 01.01.1926, Blaðsíða 6

Unga Ísland - 01.01.1926, Blaðsíða 6
4 UNGA'ÍSLAND Brjsf Lil lesenda Unga íslands. Svo var til ætlast, að Ásgeir Ásgeirs- son, sem ásamt Steingr. Arasyni og Sveinabókbandinu í ltvík er eigandi U. ísl„ annaðist um ritstjórn blaðsins þetta ár. En vegna annríkis getur hann ekki gegnt þessu starfi sjálfur og hefir samist svo um, að jeg taki við ril- stjórninni. Það er að sjálfsögðu ósk ykkar allra, að blaðið verði sem best úr garði gert, fjölbreytt að efni og skemtilegt. Jeg mun gera alt, sem í mínu valdi stend- ur, til þess að svo geti orðið. Jeg hefi í því skyni fengið loforð um stuðning ýmsra góðra manna. Meðal þeirra er Tryggvi Magnússon listmálari. Hann hefir teiknað myndirnar úr þjóðsögun- um, sem birtast i þessu blaði, og mun hann framvegis teikna ýmislegt fyrir blaðið. Að töluverðu leyti er það undir ykk- um sjálfum komið, hve gott blað þið fáið. Eins og þið vitið er mjög dýrt að gefa út blöð, einkum myndablöð. Til þess að þau beri sig þurfa þau að hafa marga og skilvísa kaupendur. Pví dug- legri sem þið verðið að útvega nýja kaupendur, því meiri tima og fje verður hægt aö verja til útgáfu blaðsins. Ef við tökum öll höndum saman er jeg viss um að skapa má Unga íslandi glæsilega framtíð. — Mjer væri kært að fá brjef frá ykkur sem flestum. Látið mig vita hvernig ykkur líkar blaðið og hvernig þið óskið helst að hafa það. Þeir sem pennafærir eru geta sent rit- smíðar sínar. Einkum óskar blaðið að fá skrítlur og stuttar gamansögur. Verð- ur þá valið úr og birt það besta. Með kærri kveðju og ósk um góða samvinnu. Finnur Sigmundsson. Sl Andra-rímur og Hallgrímsrímur. (Úr þjóðsögura Jóns Árnasonar). Vermenn að norðan voru eilt sinn á suðurferð. Fengu þeir hríð mikla á fjöllunum, svo þeir viltust og vissu eigi hvar þeir fóru. Komu þeir loks að hellis- gjögri nokkru. Gengu þeir svo langt inn, að ekki gætti vinds nje úrkomu að ut- an. Þar ljetu þeir fyrirberast, kveiktu ljós og gerðu siðan eld við mosa, er þeir reyttu af steinum. Tóku þeir nú að hressast og hlýna. Menn fóru nú að ráðgast um, hvað hafa skyldi til skemt- unar. Vildu sumir kveða Andra-rímur, en sumir syngja Hallgrímssálma. Fyrir innan sig sáu þeir dimt gjögur og var eins og þar kæmi nýr krókur á hellinn. Feir heyrðu þá, að sagt var inni í myrkrinu. »Andra-rímur þykja mjer fínar, en Hallgrímsrímur vil jeg ekki«. Feir lóku þá að kveða Andra-rímur sem mest máttu þeir. Hjet sá Björn, er best kvað. Gekk svo lengi um kvöldið. Þá var sagt inni í myrkrinu: »Nú er mjer skemt, en ekki konu minni. Hún vill heyra Hallgrímsrímur«. Tóku menn nú að syngja sálmana og endist þá verr það, er menn kunnu. Þá var mælt: »Nú er konu minni skemt, en ekki mjer«. Síðan var mælt: »Viltu sleikja innan ausu mína að launum, kvæða-Björn?« Hann játli því. Var þá stampur mikill á skafti rjettur fram með graut í, og

x

Unga Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.