Unga Ísland - 01.01.1926, Page 9
UNGA ÍSLAND
7
að sýna veslings skepnunum mannúð
og góðvild. Mundu, að þær finna til eins
og þú«.
»Mannúð og góðvild 1« sagði Illugi
hæðnislega. »Geturðu hugsað þjer að
hægt sje að draga sauðþráa kindina
með mannúð og góðvild? Reyndu hara
sj álfur!«
Jóhann varð svipþungur en sagði ekki
neilt. Hann þreif bandið af Illuga og
dró kindina, sem hann hafði leikið svo
grátt, gætilega en ákveðið inn í skýlið.
þar var tekið á móti henni og Jóhann
smeygði bandinu upp á hálsinn á ný-
rúinni kind og teymdi hana að bað-
þrónni. Kindin fylgdi honum viljug og
án nokkurrar þrjósku. Hún virtist glöð
yfir því að sleppa úr skýlinu.
»Sjáðu«, sagði Jóhann. »Svona áttu
að fara að því«. Svo fjekk hann Illuga
bandið og hann tók þegjandi við þvi.
(Frh.)
*
Nonni og Manni.
Nýkomin bók eftir Jón Sueinsson.
Lesendur Unga íslands kannast lík-
lega allir við Jón Sveinsson. Bækur
hans, Nonni, Borgin við sundið og Sól-
skinsdagar, hafa átt miklum vinsældum
að fagna bæði á íslandi og í öðrum
löndum. Pær hafa verið gefnar út á
mörgum tungumálum og alstaðar feng-
ið lof.
Bókaverslun Ársæls Árnasonar hefir
nú gefið út fjórðu bókina eftir Jón
Sveinsson. Hún beitir Nonni og Manni
og gerist í Eyjafiröi. Hún segir frá æfin-
týrum, sem þeir rötuðu í á æskuárum
sínum Nonni (Jón Sveinsson) og Manni
litli bróðir hans. Þá áttu þeir heima á
Akureyri og á Mööruvöllum í Hörgár-
dal. — Eilt sinn var þeim leyft að fara
á smábát fram á höfnina við Akureyri
til þess að dorga fisk i soðið. Þeir
hætta sjer of laDgt, og fyr en varir
skellur á sótsvört þoka. þeir verða átta-
viltir. Straumur ber þá út eftir firði.
Sagan segir frá hrakningum þeirra og
hvernig þeim var bjargað. — í annað
skifti fá þeir að fara skemtiför upp í
fjallið fyrir ofan Möðruvelli. þar kom-
ast þeir í ýmsar mannraunir. Mannýgt
naut verður á vegi þeirra og sleppa
þeir með naumindum undan því. Loks
lenda þeir í helli hjá útilegumanni og
eru þar um nóttina.
Jón Sveinsson segir svo vel frá, að
bæði ungir og gamlir hafa ánægju af
að lesa rit hans.
Annar höfuðkostur bóka hans er sá,
að frá þeim andar jafnan hlýju góðs
og göfugs manns, sem vermir hug les-
andans og ryður braut góðum hugs-
unum.
Unga tsland ræður lesendum sínutn
til þess að afla sjer þessarar nýju bók-
ar. Þeir, sem duglegir verða að útvega
blaðinu nýja kaupendur, eiga kost á að
eignast hana ókeypis.
*
Myndir.
Unga ísland ætlar sjer að flytja margar
og góöar myndir i þessum árgangi og vænt-
ir þess að lesendum blaðsins þyki það góð-
ar frjettir. í þessu blaði áttu upphaílega að
vera fleiri myndir, en voru því miður ckki
lilbúnar.