Unga Ísland - 01.01.1926, Síða 10
8
UNGA ÍSLAND
Skrítlur.
A. : Þú sást kærustuna mína í gær. Hvern-
ig list þjer á hana?
B. : O, ekki þj'kir mjer hún nú falleg.
A. : Já, það getur nú verið að eitthvað
vanti á hennar ytri fegurð, en hennar innri
maður er óviðjafnanlegur.
B. : Hm! Þá ættir þú að snúa henni um.
O
Yíirsetukonan: Jeg nýt þess sóma að láta
yður vita, að það er kominn lítill sonur.
Prófessorinn (önnum kafinn í að skrifa):
Jæja, það er svo, — biðjið þjer hann að fá
sjer sæti og bíða. Jeg kem undir eins.
O
Páll litli: Mamma! Fá börnin hirtingu fyr-
ir það, sem þau ekki gera?
Móðirin: Nei, barnið mitt.
Páll litli: Pað er gott. Jeg liefi ekki litið í
kveríð mitt i dag.
O
Drengurinn: Dýralæknirinn er kominn til
þesg að skoða naulið.
Bóndinn: Já, jeg kem strax.
O
»Mamma, mamma! Bannaðu henni Siggu
að drepa veslings llugurnar í glugganum«.
»Hvers vegna, Nonni minn?«
»Af því að mig langar sjálfan til að gera
það«.
é
Verðlaun og kaupbætir.
Allir nýir kaupendur Unga íslands fá ó-
keypis eftir eigin vali um leið og þeir borga
blaðið Skygnu augun, leikrit eftir Stein Sig-
urðsson, eða síðasta árg. U. ísl., meðan upp-
lagið endist.
Peir sem útvega 5 nýja kaupendur og
standa skil á andvirðinu fá auk sölulauna,
sem eru 20°]o, Æfisögu Benjamíns Franklín
eða Farsæld eftir O. S. Marden. Eru hvor-
tveggja ágætar bækur.
Þeir sem útvega 10 nýja kaupendur fá
annaðhvort báðar þessar bækur eða þrjá af
eldri árgöngum blaðsins eftir eigin vali.
Peir sem útvega 15 nýja kaupendur fá
annaðhvort Æfisögu Franklíns, Farsæid og
tvo af eldri árg. blaðsins eða Nonna og
Manna eftir Jón Sveinsson. Bókin er í vönd-
uðu bandi og kostar hjá bóksölum kr. 7,50.
Peir sem útvega enn fleiri kaupendur fá
hærri verðlaun. Verða þau ákveðin í næsta
blaði. — Þeim, sem flesta kaupendúr útveg-
ar, ætlar U. ísl. að gefa mjög eigulegan
hlut. Verður það nánar auglýst síðar. —
Blaðið mun geta þeirra smált og smált, sem
duglegastir verða að útvega nýja kaupendur.
Verðlaunapraulir ætlar U. ísi. að flytja við
og við og kemur sú fyrsta í næsta blaði.
Til verðlauna verða hafðar ýmsar góðar
bækur eða aðrir eigulegir munir.
Vandað jölahefti ætlar U. ísl. að gefa öil-
um skilvisum kaúpendum sinum fyrir næstu
jól. í því verða sögur, kvæði og greinar eft-
ir ýmsa þjóðkunna menn og fjöldi mynda.
Yfirleitt verður vandað mjög til þessa heftis
og væntir U. ísl. þess, að það verði kaup-
endum blaðsins kærkomin jólagjöf. Pað mun
verða prentað svo snemma, að það geti
komist til allra kaupenda fyrir jói.
Sýnið vinum ykkar og kunningjum Unga
ísland og bendið þeim á, hve hjer er margt
og gott í boði fyrir lítið verð.
Styðjið að útbreiðslu Vnga íslands!
Þeir, sem fá þetta blað og ekki hafa verið
kaupendur áður, eru beðnir að láta vila sem
fyrst, hvort þeir vilja gerast áskrífendur.
Unga ísland kemur úí einu sinni í mán-
uði. Verð árg. kr. 2,50. Gjalddagi 1. apríl.
Ritstjóri: Finnur Sigmundsson cand. phil.
Afgreiðsla hjá Sveinabókbandinu Laugav. 17.
Utanáskrift á brjef er snerta ritstjórn blaðs-
ins, verðlaun eða kaupbætirer: Unga ísland
Pósthólf 715 Rvík. Á brjef er snerta af-
greiðslu eða innheimtu skal rita: Afgreiðsla
Unga íslands, Pósthólf 327 Rvik.
Prentsmiðjnn Gutenberg.