Unga Ísland - 01.06.1927, Síða 3

Unga Ísland - 01.06.1927, Síða 3
UNGA ISLAND 43 Maður hjet Auðun, íslenskur og vestfirskur að ætt. Hann var maður fjelítill og að góðu kendur. Auðun fór utan á einu sumri vestur þar i fjörðunum með norrænum inanni, er Þórir hjet, og með umráði Þorsteins, búanda góðs, er Þórir hafði þegið vist af um veturinn. Auðun var og þar og starfaði fyrir honuin Þóri, og þá þessi laun af honum: utanferðina og hans umsjá. En er Auðun fór utan, lagði hann mestan hluta fjár þess, er hann átti, fyrir móður sína, og var kveðið á þriggja vetra björg. Og nú fara þeir út hjeðan og ferst þeim vel og tóku Noreg, og var Auðun veturinn ei'tir með Þóri stýrimanni. Hann átti bú á Mæri. Og um smnarið eftir fara þeir út til Grænlands og voru þar vetur annan. Þess er við getið, að Auðun kaupir þar bjarndýri eitt, vel vanið. Gaf hann þar við alt það, er hann átti í fjemunuin. Var dýr það hin mesta gersimi þess kyns. Á næsta sumri eftir fóru þeir aftur til Noregs og urðu vel reiðfara. Þórir stýrimaður fór þá til bús síns, en Auðun fjekk sjer far austur til Víkur og hafði dýr sitt með sjer. En er hann kom til Ósló gekk hann á land með dýr sitt og leitaðist um herbergi, meðan hann dveldist þar; ætlaði síðan suður til Danmerkur og gefa Sveini konungi dýrið. En þá var sem mestur agi með þeim Haraldi konungi og Sveini. Har- aldur konungur var þar í hænum, og var honum skjótt sagt, að þar væri kominn íslenskur maður af Grænlandi með allspakt bjarndýr. Konungur sendi þegar eftir Auðuni. Hann kom fyr- ir konung og kvaddi hann vel. Kon- ungur tók vel kveðju hans og mælti: >»Áttu bjarndýr það, er mikil ger- simi er?“ Hann sagði, að svo var. Konungur mælti: „Viltu selja oss dýrið við slíku verði sem þú keypt- ir?“ „Eigi vil jeg það, herra“, seg- ir Auðun. „Viltu“, segir konungur, „að jeg gefi þjer fyrir tvö verð slík og mun það rjettara, ef þú gafst þar við alla eigu þína“. „Eigi vil jeg það herra“, sagði hann. „Viltu gefa mjer þá?“ seg- ir konungur. „Það vil jeg eigi“, segir íslendingur. Konungur mælti: „Hvað viltu þá af gera?“ Auðun svarar: „Það, sem jeg hefi áður ætlað: fara suður til Danmerkur og gefa Sveini konungi“. Haraldur konungur mælti: „Hvort er heldur, að þú ert maður svo ófróður, að þú hefir eigi heyrt getið ófriðar þess, sem hjer er milli landa, eða ætl- ar þú giftu þína svo mikla, að þú mun- ir ná að færa Sveini konungi gersimi, er aðrir fá eigi komist klaklaust, þó að nauðsyn eigi til ?“ Auðun svarar: „Herra, það er nú á yðar valdi, en engu játta jeg öðru en jeg hefi nú sagt og áður ætlað“. Þá mælti kon- ungur: „Hví mun eigi það ráð, að þú farir sem þjer líkar; en það vil jeg til skilja, að þú komir til mín, þá er þú fer aftur, og segir mjer, hvernig Sveinn konungur launar dýrið; kann vera, að þú sjert gæfumaður“. „Því vil jeg heita yður“, segir Auðun. Fór hann þá og fjekk sjer far suður til Danmerkur. En er hann kom þar, þá var uppi hver penningur, sá er hann átti. Varð hann þá að biðja matar bæði fyrir sig og fyrir dýrið. Hann kom þá til ár- manns Sveins konungs, þess er Áki hjet. Auðun bað hann vista nokkurra fyrir sig og dýrið, það er hann ætlaði að gefa Sveini konungi. Áki svarar: „Selja mun jeg þjer vistir, ef þú vilt“. „Jeg hefi nú ekki til fyrir að gefa“, sagði Auðun, „en jeg vildi þó gjarna

x

Unga Ísland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.