Unga Ísland - 01.06.1927, Side 14

Unga Ísland - 01.06.1927, Side 14
54 UNGA ISLAND fyrir peningana, sem jeg fengi fyrir Fjólu. Vinnumennirnir sögðu að jeg skyidi ekki gera mjer mjög glæsilegar vonir í þessu efni. Þær gætu brugðist. En jeg Ijet spádóma þeirra eins og vind um eyrun þjóta. Dagarnir komu og fóru eins og áður. En mjer l'anst þessi vika, sem eftir var til gangnanna, óvanalega lengi að líða. Loks rann þó gangnadagurinn upp. Gangnamennirnir höfðu lagt á stað um nóttina með nesti og nýja skó og voru ekki væntanlegir heim aftur fyr en seint um kvöldið. Jeg vaknaði snemma um morguninn og klæddi mig í mestá flýti þó að ekkert lægi á. En mjer var ómögulegt að sofa lengur. Jeg íor út á hlað og andaði að mjer hressandi morgunloftinu. Sólin var að koma upp og sendi geisla sína ofan á jörðina, sem öll var hrími þakin eftir næturfrostið. Það bólaði ekkert á Páli og var jeg alveg hissa hvað hann gat sofið rólegur á þessum tímum, sem mi íoru í hönd. Mj^r fanst dagurinn aldrei ætla að Iíða. Um kvöldið rjett fyrir myrkrið fórum við að heyra hundgá og smá- fjárhópar sáust renna ofan hlíðina inn- an við bæinn. Fjenu fór óðum fjölgandi og brátt rann það í stórum hópum niðri á sljettlendinu í áttina til rjettarinnar. Allir sem vetlingi gátu valdið hjeldu nú til rjettarinnar til þess að reka fjeð inn, og gekk það ekki þrautalaust. Fólkið hóaði, fjeð jarmaði, en hundarnir geltu, og varð úr þessu öllu saman geysimikill samsöngur, þó að ekki væri beinlínis sungið eftir nótum. Loks tókst að ltoma öllu fjenu í rjettina og var það fallegur hópur. Allir sögðu, að aldrei hefði komið svona margt fje í fyrstu göngum. Mátti sjá þarna marga fallega kind. Mjer þótti ólíklegt að Páli tækist að þekkja Fjólu í öllum þessum kindasæg og vildi að hann færi strax að leita henn- ar. Það varð saint úr að fresta því þar til gangnamennirnir væru búnir að borða. Meðan gangnamennirnir sátu að snæðingi sögðu þeir frá ýmsu, sem þeir höfðu sjeð í göngunum. Einn hafði sjeð hreindýr, annar álftir o. s. frv. Þegar þeir voru búnir að borða var aftur haldið til rjettarinnar. Við Páll hlupum á undan. Nú var sú stund kom- in sem skera átti úr um, hvor okkar ynni veðmálið. Páll stöklc inn í rjettina og at- hugaði alt fjeð í fremsta dilknum. Síðan fór hann inn í næsta dilk og leitaði þar. Það stóð heima, að þegar pabbi og vinnu- mennirnir komu að rjettarveggnum kallaði Páll og sagði að nú væri hann búinn að finna Fjólu. Vinnumennirnir litn á kindina og sögðu að Páll hefði rjett fyrir sjer. Þetta væri Fjóla. Páll lmfði unnið veðmálið. Vinnumennirnir kímdu en sögðu ekki neitt. Svo fórú þeir að draga heimafjeð. Þeir ætluðu að taka það frá um kvöldið, en láta óskilafjeð bíða næsta morguns. Hvernig haldið þið að mjer hafi nú orðið við þegaf jeg varð þess áskynja, að jeg var búinn að tapa veðmálinu og Sóley minni? Jeg þaut heim í bæ og kast- aði mjer upp í rúm há-organdi. Mamma heyrði orgið í mjer og kom inn. „Já, já“, sagði hún, nú hefir þú tapað veðmálinu. Hvernig gastu látið þjer detta í liug að Páll, sem er svo sauðglöggur, þekti ekki kindina sína? Þetta hefir þú nú fyrir mikilmenskuna og mannalætin. Nú getur þú lært af þessu, að það er hyggilegt að vera dálítið gætinn bæði i orðum og verkum, og óráðlegt að sletta sjer fram í það, sem manni kemur ekki við. Mundu þetla nú framvegis“.

x

Unga Ísland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.