Unga Ísland - 01.03.1935, Side 9

Unga Ísland - 01.03.1935, Side 9
UNGA ÍSLAND 35 Nú var Stella orðin ein úti í skógi, heimilislaus og hrakin frá manninum sín- um og deyjandi barni sínu. Hrædd hljóp hún þar til hún var yf- irbuguð af þreytu. En sorgin braust nú hindrunarlaust út í viltum hlátri. Þannig reikaði hún um þar til hún hneig niður. Allt í einu stóð gamla tröllkonan yfir henni. »Það er hvergi friður fyrir þér, hættu þessum vilta hamslausa hlátri«, sagði hún og steytti hnefann framan í hana. Þegar Stella þekkti kerlingu, vaknaði ný von í brjósti hennar, og hún bað innilega: »Gefðu mér tár mín aftur, þá skal ég láta þig i friði«. — »Gefðu mér tárin mín aftur, svo ég geti grátið yfir deyj- andi barninu mínu«. »Það get ég ekki«, svaraði gamla nornin. »En ef einhver grætur þin vegna, þeg- ar þú hlærð, þá munt þú losna úr á- lögunum«. Kerling kvaðst nú skyldi ljá henni huliðshjálm, svo að henni tækist að kom- ast inn í höllina á ný, án þess að eftir henni yrði tekið. Stella þáði það, og þar með skildu þær. Þegar Stella kom heim að höllinni sá hana enginn, svo að hún gat gengið þar um óhindruð. Loksins komst hún inn í herbergið, þar sem sonur hennar lá. Konungurinn sat og vakti einn yfir drengnum sínum. Móðirin beygði sig yfir hið veika barn. Hún kysti kinn sonar síns, og hvíslaði nafn hans. Hún hlustaði eftir hjartaslaginu, en heyrði ekkert. Hann er víst dáinn, hugsaði hún, og hún gleymdi öllu fyrir sorg sinni, og hló hátt, án þess að gæta sin 'nið mninsta. En huliðshjálmurinn féll af henni, og konungurinn stóð nú upp og starði á hana. Konungurinn sá hvernig varir hennar titruðu, eins og hún vildi gráta. Hann sá hvernig hún titraði af angist, meðan að hún hló þessum hamstola tryllta hlátri. Þá fann konungurinn hversu sár sorg var fólgin í hlátrinum. „Stella“, sagði hann undur lágt. Hún hrökk við af hræðslu og ætlaði að forða sér, en nam staðar, því þá mætti hún kærleik og samúð í augnaráði hans. Nú var það konungurinn, sem grét hennar vegna. »Fyrirgefðu mér«, sagði hann, og tók hönd hennar og kysti hana. Nú kastaði drottningin sér á ný yfir vöggu drengsins síns. Hnútur perlufestarinnar losnaði, og allar perlurnar hrundu niður yfir andlit litla drengsins og urðu að tárum eins og þær áður höfðu verið. En litli drengurinn vaknaði af dauða- dvalanum, og leit stórum spyrjandi aug- um til móður sinnar. »Mamma«, sagði hann. Batinn var sýni- legur. — Nú þekkti hann móður sína. Veistu. 1. Hvað marga silkiorma þarf til að fram- leiða 1 kg. af silki? 2. Hve lengi geislar sólarinnar eru á leið til jarðarinnar? 3. Hve mikið hár mannsins vex að jafnaði á mánuði hverjum? 4. Hvar stærsta blóm heimsins vex? 5. Hve mörg augu engisprettan hefir? Svör á bls. 44.

x

Unga Ísland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.