Unga Ísland - 01.03.1935, Side 13
UNGA ISLA'ND
39
líkami Hjálmars hvílist eða sefur, vinnum við
svo hægt og rólega að við hvilumst nægilega.
(Annar sendill kemur inn).
Sendillinn:
Hjálmar er að hlaupa upp stiga. Meira blóð.
Fljótar, fljótar. (Hjartslátturinn eykst mjög.
Vöðvarnir verða að taka á öllu sínu að hafa
við). Svona, svona þetta nægir. Hægið á
ykkur. Liður ykkur vel vöðvar.
Karlvöðuinn:
Við erum þreytt. Liklega eftir kappleikinn i
gærkveldi. Hjálmar var allt af á hlaupum og
við höfðum varla við, að dæla nógu fljótt.
Sendillinn:
Heilinn bað mig áð spyrja um líðan ykkar.
Hann hefir áhyggjur. Það er eitthvað, sem ekki
er eins og það á að vera.
Kvenvöðvinn:
Hjálmar er þó ekki að veikjast? Hann hefir
vonandi ekki smitast af neinum sjúkdómi?
£
Sendillinn:
Við vonum að svo sé ekki. Það er bara
eitthvað í hálsinum. Kverkarnar eru aumar og
kirtlarnir að bólgna. Sendið þið sérstaka her-
deild þangað upp eftir. Það riður á að bæta
úr þessum vandræðum sem fyrst.
Vöðvarnir:
Já, já. Við skulum annast það. (Sendill-
inn fer).
Karlvöðvinn:
Bólgnir eitlar. Ekki er mér um það. (Gestur-
inn hlær).
Kvenvöðvinn:
Þetta er nlls ekki hlægilegt.
Gesturinn
(hæðnislega): Eg var að hlægja að sérstöku
herdeildinni. Eins og þið hafið nokkrum her-
deildum á að skipa.
Karlvöðvinn:
Jú, það höfum við vissulega.
Gesturinn
(hissa): Hafið þið herlið?
Kvenvöðvinn:
Fleiri miljónir af hermönnum.
Gesturinn:
Miljónir. Hvar eru þær?
Kvenvöðvinn:
Hér í blóðinu. Hermennirnir eru hvítublóð-
kornin. Þau eru allt af reiðu búin að berjast
við sýkla, hvar sem er í líkamanuin.
Gesturinn
(hræddur): Já, en þeir sigra ekki allt af, gera
þeir það?
Karlvöðvinn:
Nei, því miður vinna þeir ekki allt af. Stund-
um sigra sýklarnir. Líkamanum batnar ekki. —
(hressilegri) En mjög oft, afar oft eru það sýkl-
arnir sem »liggja í því« og eru drepnir.
Gesturinn
(mjög hræddur): Koma þessir hermenn ykkar
nokkurn tíma hingað inn?
Kvenvöðvinn:
Jú, jú þeir fara allstaðar, þar sem blóðið fer,
því þeir eru i blóðinu.
Sendillinn
(kemur inn mæðulega): Ég hefi illar fréttir að
flytja. Það er difteri— barnaveiki — sem að
Hjálmari gengur.
Vöðvarnir
(skelfdir): Barnaveiki! — difteri!
Kvennvöðvinn:
Er það áreiðanlegt?
Sendillinn:
Já, gráhvít skán er komin í hálsinn, kverk-
arnar eru aumar og Hjálmar á bágt með að
kyngja. Læknirinn segir, að ef Hjálmar hefði
verið bólusettur gegn barnaveiki þá hefði þetta
ekki getað komið fyrir.
Gesturinn
(fyrirlitlega): Bólusettur gegn barnveiki. Hvaða <
gagn ætli það hefði gert?
Karlvöðvinn:
Ef hann hefði verið bólusettur, hefði hann
alls ekki getað veikst af barnaveiki. Hvítublóð-
kornin hefðu þá verið viðbúin, að veita árás
þessari viðnám. Sýklarnir hefðu ekki getað neitt