Bændablaðið - 13.11.1996, Page 6

Bændablaðið - 13.11.1996, Page 6
6 Bœndablaðið Miðvikudagur 13. nóvember 1996 íslenskir landbúnaðarmenn í Ameríku íslenskir ráðunautar kynna sér landbúnað í Bandaríkjunum Nýlega fór 18 manna hópur ráðunauta, kennara og rann- sóknamanna í náms- og kvnnisferð til fíandaríkjanna til að fræðast um ýmsa þætti sem snerta nautgriparækt í Bandaríkjunum. Ferðin var farin að frumkvæði Hags- munafélags héraðsráðunauta. Farið var í heimsóknir á kúabú, tilraunastöðvar og leiðbeiningamiðstöðvar. Auk þess var farið á landbúnaðarsýninguna World Dairv Expo í Madison í Wisconsin. I Bændablaöinu munu á næstunni birtast nokkrir pistlar um ferðina og fer sá fvrsti hér á eftir. Itarleg frásögn mun síðan birtast í Nautgriparæktinni. Síðastliðið ár var mun minni komuppskera í Bandaríkjunum en undan- farin ár. Jafnframt höfðu þurrkar í ýmsum fylkjum Bandaríkjanna valdið mörgum bændum erfið- leikum, meðal annars kúa- bændum. Þetta olli því m.a. að allmargir kúabændur drógu úr framleiðslu með því að farga gripum eða hættu jafnvel alveg búskap. Þessar aðstæður hafa leitt til þess að heildarframleiðsla mjólkur hefur minnkað en eftirspum er svipuð og áður. Þetta heftir ýtt á verðhækkun til þeirra kúabænda sem eru nú í framleiðslu, samhliða hækkaði komverö síðastliðinn vetur, sem smám saman leiðir til verðhækkana á afurðum. Greinilegt er að verð á mjólk er nokkuð mismunandi eftir fylkjum og innan fylkja. Algengt verð til bænda virtist vera 23 til 25 krónur á mjólkurlíter. Verulegur munur virðist vera á verði mjólkur til neytenda, bæði milli verslana og væntanlega einnig fylkja. Allt frá því að vera svipað og er hér á landi niður í 40 til 45 kr/1. Athygli vöktu ummæli eins starfsmanns í mjólk- urbúi sem við komum í, að verð á lífrænni mjólk væri tvöfalt hærra og jafnvel enn hærra en á hefð- bundinni mjólk. Kúabúin fara stækkandi og í Wisconsinfylki var okkur sagt að meðalbústærðin væri nú 55 til 60 kýr en samt sem áður eru mörg bú- in með 100 til 700 kýr. Algeng nyt á búi er frá 8.000 til 10.000 lítrar á kú á ári. Kynið Holstein er ráðandi á þessu svæði, svartskjöldóttar og mun stærri en íslenskar kýr. Beit er mjög lítið notuð en oft fóðrað á heilfóðri, blöndu af maís- votheyi, sojabaunum, maís o.fl. Með hækkandi komverði hafa menn farið að skoða möguleika á að nota beitina í auknum mæli. Vió einstaklmgstilraunir í lausa- göngufjósi ber hver kýr örmerki og kemst hún bara ú einum stað aö fóðurgangi.________________________ Heimsókn á kúabú með 1.350 mjólkurkýr Farið var í heimsóknir á nokk- ur kúabú sem flest voru með 100 til 300 kýr og yfirleitt rekin sem fjölskyldubú en öll þó með ein- hverju aðkeyptu vinnuafli. Einnig heimsóttum við kúabú með um 1.350 kúm. Það bú er rekið af tveimur bræðrum og þremur son- um þeirra en alls vinna á búinu að jafnaði 25 til 30 manns. Fram- leiðslan á ári er um 12 milljónir lítra og til að átta sig betur á stærðinni þá þyrfti eingöngu 8 til 9 slík bú til að sinna íslenska markaðnum. Kúnum er skipt upp í fóðrunar- flokka, oft 90 til 100 kýr í hverjum og fóðrað á heilfóðri að mestu leyti. Mjólkað er á tveimur vöktum í 34 tækja mjaltabás og eru tveir starfsmenn sem vinna í mjalta- básnum hverju sinni. Fyrstu 4 til 5 mánuðina eftir burð eru kýmar mjólkaðar þrisvar á sólarhring. í þessari heimsókn sem og í öðrum heimsóknum á minni bú vakti það athygli hversu lítil vinna var lögð í undirbúning fyrir mjaltir, einnig að vinnubrögð við mjaltir voru allt önnur en við eigum að venjast hér á landi, t.d. að við ásetningu mjaltatækja var lítt sinnt því hvort mjaltatækin drægju loft en aftakan var sjálfvirk. Þá var hormónið oxytocin notað við mjaltir ef þörf var á til að örva niðurstreymi mjólkur úr júgri. Frumutala, hvað er nú þaó ? Athygli vakti að bændur sem við heimsóttum virtust ekki hafa miklar áhyggjur af gæðamálum eins og frumutölu. Algeng fmmu- tala á þeim búum sem við heim- sóttum var á bilinu 150 til 250 þúsund frumur í ml. Oneitanlega vakti þetta athygli okkar því, eins og áður kom fram, em vinnubrögð við mjaltir og daglegt eftirlit ekki í samræmi við það sem við þekkjum í íslenskum ljósum. Hormónanotkun í mjólkurframleiðslunni A flestum búunum sem komið var á, voru notuð hormón til að auka framleiðsluna hjá kúnum. Það hormón sem notað er heitir BST (Bovine somatotrophin hor- mone) og er yfirleitt notað þannig að kýmar em sprautaðar hálfs- mánaðarlega frá 60 dögum eftir burð þar til líður að geldstöðu. Áhrif hormónsins er meiri fram- leiðsla og aukið át. Þessi hormóna- notkun er leyfð í Bandaríkjunum þar sem ekki hefur verið hægt að greina, enn sem komið er, óheppi- leg áhrif þessarar notkunar í af- urðum. Greinilegt er að menn eru enn að prófa sig áfram með notkun þessa hormóns, m.a. kom fram hjá einum bónda að hann vildi að kýmar væru búnar að festa fang áður en hann byrjar að sprauta kýmar. Samanburður við íslenskar aðstæður Eftir að hafa kynnst örlítið að- stæðum mjólkurframleiðenda í Wisconsin er fróðlegt að bera saman aðstæður við íslenska fram- leiðslu. Erfitt var að átta sig á heildarafkomu mjólkurframleið- Erfitt er að ímynda sér að hægt sé að keppa við svona framleiðslu Jyrir hinn íslenska kúabónda, bœði með tilliti til magns, verðs og aðfanga. Jafnframt hlýtur svona framleiðsla að vekja spurningar um siðferðileg gildi og dýravernd. Er réttlætanlegt að notkun þau hjálparejhi sem greinilega eru algeng í eldinu í USA ? Tilgangurinn er vœntanlega að geta boðið vöru á sem lægstu verði en ekki verið líta á hvernig nautasteikin er tilkomin enda í Wisconsin en þó er greinilegt að menn leita allra leiða til að ná meiri framleiðslu á hvern grip, m.a. með notkun hormóna enda eru engar framleiðslutak- markanir á mjólk. Búin eru flest mun stærri en við eigum að venjast og daglegt eftirlit með gripum tak- markað. í máli rannsóknamanna sem við hittum í ferðinni kom m.a. fram að auknar kröfur eru gerðar um meðferð og nýtingu á búfjár- áburði. Þetta mun að einhverju leyti koma fram í auknum kostnaði fyrir bændur. Einnig kom fram að ef hækkanir verða áffam á komverði þá verði samkeppnis- A eldisstöð fyrír lömb skammt frá Fort Collins t Colorado. Þar eru 55 þúsund lömb á fóðrum og trukkar notaðir við gjaftr.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.