Bændablaðið - 13.11.1996, Page 8

Bændablaðið - 13.11.1996, Page 8
8 Bœndablaðið Miðvikudagur 13. nóvember 1996 Framleiðslustjórn á mjólk í Ontariofylki í Kanada M fylki í Kanada er sjðlfstæð eining og úheimitl eð flyfla kvöta ð milli beirra Öll mjólkurframleiðsla í Kanada er undir framleiðslustjórn. Hvert jylki er sjálf- stœð eining og óheimilt að flytja kvóta milli þeirra. Þó að reglur séu svipaðar eru þœr ekki eins í öllum fylkjum. Hér verður ein- ungis minnst á þær reglur sem gilda í Ontario fylki. Kvótinn er byggður á fitumagni eða kg af smjöri. Þessu verður vœntanlega breytt innan tíðar. Dœmi: 10.000 kg kvóti er = 256.000 Itr. Kvótinn er eign félags kúabœnda í þessu jýlki. Kvóta má ekki lána né leigja. Mjólk má ekki leggja inn til annarra en mjólkursamlaga. Kvóta má breyta hjá bœndum en þá hlutfallslega jafnt á alla. Kvótaárið er 1. ágúst til 31.júli. Kvótaárinu er skipt í tvennt, 1, ágúst til 31.jan. og l.feb. til 31.júli. Leggja þarf inn 45 % af kvótanum á hvoru tímabili. Aó öðrum kosti verður kvótinn skertur tíma- bundið. Bœndur tala oft um dagskvóta. Ef ársframleiðslan nœr ekki 90 % af kvóta er hann skertur um það magn. Bóndinn má selja ónotaðan kvóta, ef hann sér fram á skerðingu. Við jarðakaup fylgja 85% af kvótanum. Mjólkurframleiðslu verður að halda áfram nœstu 24 mánuði án verulegra breytinga á viðkomandi jörð. Nýr eigandi má þó selja 25% afkvótanum á þessum tíma. Kvótaeign kaupanda, sem lögð er til þessarar eignar, er undanþegin þessum ákvæðum. Margar reglur gilda um flutning milli hlutafélaga eða sameignarfélaga. Einnig eru í gildi ýmsar minniháttar reglur, t.d. að í upphafi kvótaárs mega ekki vera meira en fjórar mjaltir í tanki. Kvótasala Sala og kaup geta farið fram á; 1. Kvótamarkaði 2. Innan fjölskyldu 3. Jarðasölu 4. Samruna eininga með stofnun annarra rekstrarforma. Sala á ónotuðum kvóta getur farið fram i síðasta lagi á uppboði 7. júlí, til þess að taka gildi 1. júlí. Lágmarksmagn er 100 kg eða 2560 Itr. Við kvótasölu er tekið 15 % af kvótanum i varasjóð. Kvótinn er annars vegar seldur sem notaður eða ónotaður kvóti. Framleiðendur þurfa samþykki fyrir kaup á kvóta, þegar kvótakaupin eru yfir 50. 000 kg eða 1.282.000 Itr. síðan við hverja aukningu um 25.000 kg eða 641.000 Itr. Kvótamarkaður Hann er undir stjórn félags kúabœnda. Sala fer fram 11 mánuði ársins. 1. ónotaður kvóti sept. - júlí 2. notaður kvóti okt. -júlí. Enginn kvótamarkaður er í ágúst. Kvótamarkaðurinn er tilboðsmarkaður. Öll tilboð um sölu eða kaup verða að fara fram um simaþjónustukerfi. Símarödd spyr 6 spurninga. Síðan eru svörin lesin fyrir við- komandi aðila. Að hámarki eru 10 tilboð leyfð í einu simtali. Önnur leið til að gera tilboð í kvóta er ekki leyfð. í tilboði skal tilgreint verð á kg. Öll til- boð skulu gerð fyrir kl. 11.30 sjöunda dag hvers mánaðar. Sendi bóndi tilboð fyrr get- ur hann breytt tilboði. Hann þarf að geyma tilboðsnúmer. Hvert tilboð kostar um 600 kr. með símaþjónustu. Tilkynning um það hvort kaup eða sala fórfram eða ekki er send bréflega. Framleiðandi má gera mörg tilboð með mismunandi verði og magni. Ymsar tak- markanir eru, t.d. að ekki má bjóða til sölu og gera tilboð um kaup í sama mánuði. Framleiðandi fær greitt fyrir kvóta mánuði síðar eða um svipað leyti og mjólkin er greidd. Kaupandi kvóta skal greiða með órvisun eða með peningum fyrir mjólkurinn- legg. Ef eitt mánaðarinnlegg nœgir ekki eru reiknaðir 2%> vextir á mánuði. Þetta gildir ekki um stórar sölur, þá þarf bankaábyrgð. Notaður kvóti verður virkur 1. nœsta mánaðar en ónotaður 1. viðkomandi mánað- ar. Þannig verður að kaupa ónotaðan kvóta í síðasta lagi 7. júlí til þess að fá greitt fyrir umframmjólk. Þó að gert sé tilboð er ekki víst að kaup náist, þar sem það ræðst af til- boðsverði og verðkröfu seljanda. Kvóta- markaðurinn hefur heimild til að hafna kauptilboði, ef það er ekki í neinum tengslum við framleiðslugetu býlisins. Þetta mun vœntanlega vera sett til að hindra kvótabrask, þ.e. að kaupa þegar verð er lágt en að selja þegar verð er hátt. Nýir framieiðendur Nýr framleiðandi þarf að hafa fram- leiðsluleyfi og vottaóa aðstöðu fyrir fram- leiðslu á mjólk fyrir gæðaflokk A. Hann þarf einnig viðurkennda framleiðsluaðstöðu Fé- lags kúabænda, t.d. mjólkurtankur verður að vera fyrir hendi fyrir tveggja daga mjólk og margt fleira. Hann verður að byrja framleiðslu 90 dögum eftir kaup á kvóta o.fl. Verð á notuðum kvóta er um 50 kr. á Itr. en verð til bænda um 35 kr. á Itr. Þetta eru ekki mjög nákvæmar tölur. Enginn virðis- aukaskattur er á matvœlum í Kanada. Ketill A. Hannesson Dagana 8. til 11. september sl. var haldin í Aberystwyth í Wales ráðstefna rannsóknamanna á sviði votheysgerðar og votheysfóðrunar. Þar voru kynntar niðurstöður ýmissa rannsókna á þessu sviði. í þessari grein verður sagt frá nokkru af því sem þar bar fyrir augu og eyru. Ellefta ráðstefnan Ráðstefnur af þessu tagi hafa nú verið haldnar um liðlega aldar- fjórðungs skeið. í fyrstu voru þær aðeins ætlaðar votheysfræðingum á Bretlandseyjum til þess að sam- ræma votheysrannsóknir og skiptast á niðurstöðum og kynna þær. Með árunum hafa fúlltrúar annarra landa bæst í hópinn. Ráð- stefnan í Wales var sú fjöl- mennasta til þessa. Hana sátu nær 250 manns frá 27 þjóðum auk þeirra er Bretlandseyjar byggja, allt frá Bandaríkjunum austur um til Kóreu og Japan. Flutt voru yfir- litserindi og erindi um einstök rannsóknaverkefni auk þess sem niðurstöður voru kynntar á tugum veggspjalda. Þá gafst ráðstefnu- gestum góður tími til óformlegra samræðna. Farin var kynnisferð um nágrannasveitir og litið á búskap veilskra bænda. Votheysgerðin vex í flestum löndum hefur vot- heysgerð farið vaxandi á undan- fomum árum samkvæmt rækilegu yfirliti sem kynnt var i upphafi ráðstefnunnar. Þurrheysgerð er á undanhaldi. Þó rúllubaggaverkun færist víða í vöxt má segja að ís- lendingar séu efst í töflu hvað varðar hlutdeild rúllanna við verkun á grasi. Hvergi er hún jafh- mikil að tiltölu. Þá er það sérkenni á íslenskri rúlluverkun að við for- þurrkum heyið til muna meira en nágrannar okkar gera. Helst eru það Svíar og Þjóðverjar sem nálgast okkur í því efni. Þykir ýmsum skrítið að á þessari vætu- sömu smáeyju í Norðurhöfúm skuli menn stunda forþurrkun í svo ríkum mæli. Sennilega njótum við þar langrar hefðar fyrir hey- þurrkun, ríkulegs vinds og auð- þurrkanlegra grasa. Notkun gerlasmits til að bæta verkun I allmörgum erindum var greint frá niðurstöðum rannsókna á notkun gerlasmits og annarra líftæknilegra aðferða til þess að bæta verkun votheys og nýtingu þess við fóðrun. Til smitunarinnar eru notaðir ýmsir stofhar mjólkursýrugerla. Lengi vel voru áhrif smitsins óljós en með vaxandi þekkingu á hæfni ein- stakra gerlastofha virðist svo sem árangur- inn sé að verða ein- dregnari en áður. Efhi til smitunar eins tonns af heyi kostar um það bil 100 kr. Mest gagn er jafnan af smiti í nýslegið eða lítið eitt forþurrkað hey (með 20-30% þurrefni) en nú hafa menn rekist á stofna mjólkursýrugerla sem starfað geta í þurrara umhverfi. Kæmi til greina að reyna áhrif þeirra í forþurrkuðu rúlluheyi hérlendis, og kanna hvort þeir gerðu verkunina einsleitari og heyið lystugra. Þá hafa rannsóknir beinst að notkun annarra íblöndun- arefna en notkun þeirra þykir nær ómissandi við hefðbundna vot- heysgerð í nágrannalöndunum. Votheysát - fóðurnýting Það er sameiginlegt einkenni hefðbundinnar búfjárræktar nágranna- landanna að lögð er mikil áhersla á að nýta fóður búsins til ffam- leiðslunnar - að komast sem mest af án aðkeypts fóðurs. Suð- lægari nágrannar eiga að sjálfsögðu fleiri kosta völ en við. Má þó nefna að maís teygir sig til dæmis sífellt norðar. Nú reyna frændur okk- ar írar hann í nokkrum mæli. Heyát og nýting fóðurefnanna eru mikilvægar hlið vot- heysgerðar. Á ráð- stefnunni var sagt frá rannsóknum á notkun próteingjafa með votheyi, t.d. fiskmjöls, sem og því hvemig segja má fyrir um líklegt heyát á grundvelli gæða heysins. Menn ætla ekki að una því einu að geta sagt til um efnamagn heysins og fóðurgildi heldur vilja einnig geta sagt fyrir um það hvemig það muni nýtast best í dagsgjöfmni. í yfirlitserindi var með hvössu orðalagi bent á að á síðustu þremur ámm hafi Evrópubúar dregist aftur úr í ffam- forum hvað snertir skilning á fóðurlfæði jórturdýra. Bent var á að t.a.m. í Bandaríkjamenn væru nú að koma sér upp fóð- urfræðikerfum þar sem í meira mæli en í hinum evrópsku orku- og próteinkerfum væri unnið með einstök næringarefni, aðgengi vambarflómnnar að þeim og meltingu þeirra í mjógimi. í því efni þykir kolvetna- og prótein- kerfi Comell-manna í USA (CNCPS-kerfið) lofa góðu. Framlag frá íslandi Við vomm tveir íslensku þátt- takendumir, Bjöm Þorsteinsson deildarstjóri á Hvanneyri og skrifarinn. Bjöm flutti erindi um sykrur í grösum og hæfni grasa til votheysgerðar. Var það byggt á þriggja ára rannsóknum hans, Bjama Guðmundssonar og Rík- harðs Brynjólfssonar á efnamagni og verkun fjögurra grastegunda: vallarfoxgrass, vallarsveifgrass, túnvinguls og beringspunts. Áhersla var lögð á að kanna sykm- magn grasanna og hvað af sykmn- um yrði við votheysgerjunina. Samanborið við erlend grös em þau íslensku fremur sykrurík og auðgerjanleg, ekki síst vallarsveif- gras og vallarfoxgras. Þá hafa rannsóknimar á Hvanneyri sýnt að náin tengsl em á milli sykmmagns og lystugleika súrsaðs heys (rúllu- heys). Að lokum Það var afar fróðlegt að kynnast því sem helst er að gerast um þessar mundir í votheysrann- sóknum nágrannaþjóðanna. Ein- kenni rannsóknastarfsins er ekki síst hópvinna, bæði einstaklinga úr mismunandi fræðigreinum og ein- staklinga af ólíku þjóðemi. Af einstökum hópum var það ekki síst framlag Norður-íra sem athygli okkar vakti en líka Finna. Þessir hópar em mikilvirkir í rann- sóknum á sviði verkunar og fóðmnar á votheyi. Af þeim má margt læra. Að okkur setti líka þann gmn að ýmsum vanda mundu nágrannar sneiða hjá ef Þeir forþurrkuðu votheyshráefni sitt að hætti íslenskra bænda. En forþurrkun geta líka fylgt vanda- mál sem rannsaka þarf. Bjarni Guðmundsson, búvlsindadeild, Hvanneyri

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.