Bændablaðið - 13.11.1996, Side 17

Bændablaðið - 13.11.1996, Side 17
Miðvikudagur 13. nóvember 1996 Bændablaðið 17 Kraftlýsi á Djúpavogi framleiðir iyf úr fjallagrösum og sölvum Verksmiðjufæl kallar fram útfmabæra sjúkdúma í fólki Fjallagrös eru merkileg nytjaplanta sem hefur verið notuð í aldaraðir bæði til manneldis og í heilsubótarskyni. Fyrstu heimildir á Islandi um fjallagrös er að finna í Jónsbók en þar var bannað að tína grös á landi annarra bænda. Erlendis hafa fjallagrös verið nýtt frá dögum Róma- veldis. Nú hefur fyrirtækið Kraftlýsi á Djúpavogi hafið framleiðslu á heilsubótar- lyfi úr fjallagrösum - en einnig úr sölvum. Auk þess framleiðir fyrirtækið hákarlalýsi og ýmsilegt fleira sem finna má í náttúru- iækningabúðum og víðar. Framleiðsla á vegum Kraftlýsis hófst í upphafi árs 1990 en upphaflega flutti fyrirtækið út óunnið þorskalýsi í gámum. Flákarlalýsisperlur Kraftlýsis komu fyrst fram 1993 og nú er meira að segja hægt að fá hákarlakrem! Blóðberg er að finna í þessu kremi. Þeir Kjartan Garðarsson og Gunnlaugur Frið- bjarnarson starfa hjá Kraftlýsi. Þeir eru einnig hluthafar í fyrirtækinu en aðaleig- andi þess er norskt lýsisfyrirtæki. Kjartan sagði fyrirtækið kaupa þurrkuð fjallagrös frá Höfn í Hornafirði. Sölin konta hins vegar frá Hrauni í Ölfusi. “Þetta er ekki mikið magn. Við erum fyrst og fremst að athuga viðbrögð markaðarins,” sagði Kjartan, “en við eigum fullt af öðrum jurtum sem við þurfum að rækta og nýta. Vandamálið við fæði nútíma- mannsins er sú stað- reynd er að i það vantar mörg snefil- efni en víða erlendis er búið er að þraut- pína jarðveginn þannig að hann er ófær að gefa mörg bráðnauðsynleg efni í fæðuna. Við getum tekið kom sem dæmi en við vinnslu á þeim er búið að taka mörg bæti- og snefilefni úr þeim. Þar sem verk- smiðjufæðið, sem ég kalla svo, gerist æ út- breiddara eru að koma fram allskonar kvillar í fólki. Það er Bændablaðsmynd/ÁÞ Kjartan og Gunnlaugur fyrir framan nýtt husnœði Kraftiýsis. til dæmis farið að fá ellisjúkdóma langt fyrir aldur fram og sem dæmi má nefna bein- þynningu í ungum stúlkum.” “Samkeppnin er hörð. Á markaði em til dæmis þaratöflur sem kosta mun minna en við getum hins vegar boðið þetta sem vörur úr hreinni náttúm. Á því munum við fljóta,” sagði Kjartan og bætti því við að Islendingar þyrftu ekki stóran bita af heilsumarkaðskökunni til þess lifa góðu lífi. “Möguleikar okkar ís- lendinga takamarkast fyrst og fremst við það sem okkur dettur í hug. Hvað varðar íslenskan landbúnað í framtíðinni þá tel ég að hann fari inn á svið sem við þekkjum ekki í dag. Við munum hefja framleiðslu á plöntum og hugsan- lega dýrum og dýraafurðum sem ekki em framleidd hér á landi um þessar mundir. Við getum litið á landbúnaðinn eins og hann hefur verið á undanfömum árum. Annars vegar hefur verið framleidd mjólk og hir.s vegar lambakjöt. Nú er fólk farið að huga að ýmsu öðm og má nefha lífrænt ræktað í því sambandi. Lífríkið hér er vissulega fáskrúðugt en það gefúr okkur líka alveg nýja möguleika í ræktun. Grasalæknum hefur fjölgað á undanfömum ámm á íslandi og það er hægt að gera ýmisleg fæðubótarefni úr grösum. Þangað eigum við líta á komandi árum.” Fjallagrös em fléttur en þær myndast við sambýli svepps og þömngs og em ein tegund þeirra. Fjallagrös vaxa víða á norðurhvelijarðar þó þau séu sérstaklega kennd við Island, samanber latnesk heiti þeirra sem er “Cetraia is- landica”. Fjallagrös eru algeng á íslandi og vaxa einkum inn til fjalla og á hálendinu. Einna þekktust er notkun þeirra í fjalla- grasaseyði og fjallagrasamjólk. Fjallagrösin innihalda 40-70% sterkju og vom þess vegna notuð í stað mjöls í brauð þegar skortur var á mjöli. Hér á íslandi hafa Qallagrösin lengi verið notuð til að styrkja heilsuna og það var vegna þess hve hóstastillandi, vatns- og blóðaukandi þau eru. Auk sterkjunnar er í grösunum mikið af slími sem verkar vel gegn þurri slímhúð, einnig inni- halda þau barkandi efni sem er gott fyrir magann og stilla einnig uppköst. Um miðjan 17. öldina var farið að nota fjallagrös við meltingartmflunum og öndunarsjúkdómum og eru enn í notkun í nokkrum löndum þrátt fyrir að mörg lyf séu komin á markaðinn til sömu nota. Söl hafa um langan aldur verið eitt helsta fæðubótaefni hér á landi. Neysla á sölvum hefur ávallt verið talin holl. Söl sem notuð voru í grauta vom söxuð og þá var notað jafnt af hvoru, bankabygg eða haframjöl. Einnig þekktust sölvakökur en þær voru gerðar úr rúg- mjöli og sölvum. Sölin vom notuð til að drýgja mjöl í brauð, voru þau þá soðin fyrst í vatni, voru þau svo söxuð smátt oftast með tóbaks- eða káljámi og þannig hnoðuð saman við brauðið. Sölvabrauð voru sögð líkjast seyddu rúgbrauði. Söl innihalda eins og aðrir þörungar fjöl- breytta flóm af málmum og málm- söltum sem þau taka upp í sjónum. Fjallagrös í slátur og te Þess má geta að notuð séu fjallagrös í slátur morkna þau tiltölulega lítið og haldast lengi sem ný í súr. Hægt er að nota þau hvort heldur sem er í blóðmör eða lifrarpylsu. Fjallagrasate er auðvelt að búa til. Þá er sett ein teskeið (1-2 g) í bolla. Fjallagrösin eru sett út í kalt vatn, suða látin koma upp og soðið við hæga suðu í fimm mínútur. Drykkurinn verður beiskur og því er gott að sæta með hunangi eða ávaxtasykri. Timburmanna- pillurl Fjallagrös em til margra hluta nýtanleg. Byrjað er að framleiða ljallagrasakrem og hálstöflur úr ljallagrösum og Kjartan sagði að lyfjaframleiðendur væru farnir að skoða þau. “Hvað varðar sölin þá er rétt að minnast þess að krem hefur verið búið til úr þarablöðum. Spurningin er bara hvað fólki dettur í hug að búa til.” Því má skjóta inn að sagan segir að söl séu góð við timburmönnum... Hvemig væri að hefja framleiðslu á timburmanna- pillum? Samvinna brádnauðsynleg Kjartan sagði að sístækkandi hópur grasalækna, bændur og framleiðendur þyrftu að hefja samvinnu og samstarf. “Það sem takamarkar möguleikana er hugmyndaflugið.” Valmet Sími5675200 Krókháls 10 Minkabú sem hafa leyfi til lífdýrasölu (flöú) Á lista yfir svokölluð A bú sem birtur var í síðasta Bændablaði vantaði eftirtal- in minkabú: Blábjörg, Djúpavogshr. 765 Djúpivogur Feldur h.f (Guðjón Jónsson) 780 Höfn Þórustaðir, Ölfushr. 801 Selfoss Miðhóp,Þorkelshólshr. 531 Hvammstangi Viðkomandi minkabændur eru beðnir afsökunar á þessum mistökum Eggert Gunnarsson Fnndir um sauðfjárrækl á Murlandi Ræktunarfélag Norðurlands boðar til funda um sauðfjárrækt á Norð- urlandi. Frummælendur Stefán Sch. Thorsteinsson, Ólafúr Vagnsson og Jóhannes Rík- harðsson. UMRÆDUEFNI: Sauðfjársæðingar í vetur og til- raunaniðurstöður frá Hesti. FUNDARSTADIR: Mánud. 18. nóv.: Breiðumýri kl. 13.30, Sláturhúsiið Kópaskeri kl. 20. Þriðjudagur 19. nóv.: Félags- heimilið Ljósheimar, Skagafirði kl. 13.30 ogHótel KEA kl. 21. Miðvikudagur 20. nóv.: Ás- birgi, Miðfirði kl. 13.30 og Sveitasetrið Blönduósi kl. 21. HELLA kynnir nýja gerð aukaljúsa Um þessar rnundir er HELLA að kynna víðs vegar um heim, nýja gerð aukaljósa svokallaða “Lumin- ator” línu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Bílanausti hf. sem er umboðsaðili fyrir Hella. Áður en ljósin voru sett á markað, undirgengust þau mjög erfið próf, þar sem reyndi á getu þeirra til að þola titring allt að 750 sveiflum á mínútu, mikinn vatns- þrýsting(4 bar), hita- og kulda- sveiflur og þéttleika gegn óhrein- indum. Speglar ljósanna byggjast á svokallaðri FF-tækni, þar sem tölva hefur reiknað út lögun spegilsins, þannig að ljósinu er stýrt mjög markvisst á þann stað, sem því er ætlað, og ljósið því laust við flækings- geisla, sem einkenna margar eldri gerðir ljósa. Þessi tækni var fyrst kynnt í Rally 3000 ljósunum frá Hella, sem löngu hafa sannað ágæti sitt. Mikið var lagt upp úr hönnun ljósanna hvað varðar útlit, þannig að þau færu sem best við hin ýmsu farartæki, í nútíð og framtíð. Sjálft ljósið er allt úr málmi, og er sérlega mikið lagt upp úr stöðugleika og styrk. Ljósin munu fást bæði krómuð og svartmött. Ennfremur verður hægt að velja á milli mismunandi ljós- geisla, þoku-, dreifi-, öku- og kastljósa. I ljósin er notuð H-3 halogen pera, sem fáanleg er 1 mis- munandi styrkleik- um, jafnframt því að fást sem svokölluð gulpera, sem gefúr gylltan geisla sem reynst hefur sérlega vel við vetraraðstæður. A sýningunni björgun ‘96, sýndi Bílanaust, umboðsaðila Hella, 1 fyrsta sinn á íslandi, einnig sérstaka gerð “Luminator” ljósa, svokölluð háspennuljós og vöktu þau verðskuldaða athygli meðal björgunarmanna og hálendisfara. Ljósin byggja á svokallaðri Xenonperu og spenni er gefur frá sér 25.000 volt, til að kveikja á perunni. Orkunotkun þessa ljóss er mjög lítil eða 45 wött. en áhrifm því Hkust, að ljósin við Laugardalsvöllinn hafi verið skrúf- uð ffaman á bílinn. Ljósin eru eins og fram hefur komið alveg ný, og verða því ekki alveg strax til sölu en sýnishom hafa nú þegar borist 1 verslanir Bílanausts, þar sem hægt er að skoða þau.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.