Bændablaðið - 13.11.1996, Side 18
18
Bœndablaðið
Miðvikudagur 13. nóvember 1996
Leið fil að
halda viðhalds-
kostnaði niðri
“Hús þurfa stöðuga
aðgæslu og viðhald. Ef
ekki er gert við þar sem
skemmd á sér stað, hættir
húsið að vera gott og við-
haldskostnaður eykst með
hverju árinu sem líður,”
segir í fréttatilkynningu frá
umboðsmanni Rainseal á
íslandi. “Það eru til ýmsar
leiðir til þess að draga úr
þessum viðhaldskostnaði
og er til dæmis hægt að
nefna eitt dæmi því til
sönnunar.”
í tilkynningunni segir m.a.:
“Árið 1980 var gerð tilraun
með efni sem heitir Rainseal
undir glugga utanhúss yfir
málningu. Þetta efni var sett
yfir málninguna 1980 og 12
árum seinna var þessi sylla og
veggurinn undir syllunni eini
staðurinn á allri blokkinni sem
var í lagi 12 árum seinna, en
þetta hús sem þessi tilraun var
gerð á er með sex íbúðum.
Ef þetta Rainseal efni hefði
verið sett á alla blokkina og
það hefði reynst svona vel á
allri blokkinni eins og það
reyndist á þessari syllu og und-
ir glugganum þá hefðu eig-
endur blokkarinnar getað
sparað sér 840 þúsund krónur á
12 árum, eða 140 þúsund á
hvem íbúðareiganda.
Rainseal efnið er hægt að
setja yfir hvaða lit sem er af
málningu, vegna þess að það er
jafn glært og vatn.
Þeir sem hafa fengist við
byggingarstörf á íslandi vita að
landið og veðurfar þess er afar
erfitt fyrir hús og ýmis önnur
mannvirki. Tíð skipti milli hita
og kulda, mikillar úrkomu og
miklum vindum, valda því að
vissara er að verja húseignir
sínar þannig að kostnaðurinn
verði ekki óyfirstíganlegur.
Fjöldi fyrirtækja og ein-
staklinga hafa notað þessi efni
með mjög góðum árangri.
Sími/fax 553 7966, sími
581 4909 og sími/fax 557
4552.”
Markaðsmál
Umsjón: Jón Ragnar Björnsson
Vatnið og markaðsmál búvara
Á morgun, miðvikudaginn 13.
nóvember hefst í Róm ráðstefna
FAO, Matvæla- og landbúnaðar-
stofnunar Sameinuðu þjóðanna um
matvælaöryggi í heiminum. Allir
helstu ráðamenn heimsins mæta á
ráðstefnuna, sem stendur til 17.
nóvember.
“Matur handa öllum” er þema
ráðstefnunnar, en meginefni
hennar snýst um baráttu við
næringarskort og hungur í
heiminum.
Síðasta stóra
matvælaráðstefn-
an á vegum FAO
var haldin í
Róm fyrir 22
árum. Þá var
ályktað að hungri
og næringarskorti
yrði útrýmt innan
tíu ára. Við vitum
betur í dag.
Fólksfjölgun hef-
ur verið ör á
þessum tíma en
matvælafram-
leiðslan hefur
einnig vaxið.
Fyrir tuttugu
árum voru um
2.400 hitaeiningar til
ráðstöfunar á hvem jarðarbúa á
dag. Nú eru þær 2.700. Fræðilega
séð er því næg orka í matvælum
handa öllum. Þrátt fyrir það þjást
nú um 800 millj. manna af nær-
ingarskorti í heiminum að mati
FAO. Þar af em 200 millj. bama.
Á hverju ári deyja um 11 millj.
bama yngri en fimm ára beint eða
óbeint af völdum hungurs og
næringarskorts.
Vatnið er undirstaða
Vatnsskortur er nær óþekktur á
íslandi og við lítum á nægt vatn til
drykkjar, vökvunar, þvottar og raf-
magnsframleiðslu sem sjálfsagðan
hlut. Ef eitthvað er þá kvarta menn
helst yfir of miklu vatni á íslandi.
Vatnsskortur er þó talin meiri
ógnun við jarðarbúa en matvæla-
skortur.
Á jörðinni em um 1,36
milljarðar m3 af vatni. Um 97% af
því er sjór, sem inniheldur 3,5%
salt. Aðeins 3% em ferskvatn. Af
skv. þessari skilgreiningu er í 26
löndum með um 232 millj. íbúa.
Ellefu þessara landa em í Afríku
og átta í Mið-Austurlöndum. Talið
er að árið 2020 herji vatnsskortur á
íbúa 35 landa.
Hreint vatn bjargar
mannslífum
Vatnskreppan hefur ljórar hlið-
ar, þ.e. vegna vatnsmagns, vatns-
ferskvatninu em um 77%
bundin í jöklum, um 22% em
gmnnvatn, sem erfitt er að nýta.
Það er því aðeins um 1% af
vatninu í heiminum sem unnt er að
nýta af gróðri, dýrum og mönnum.
Þrátt fyrir þetta ætti að vera
nægt ferskvatn fyrir alla, ef því
væri jafnt skipt. Frá því er hins
vegar langur vegur. Vatnið skiptist
mjög misjafnt milli landa, land-
svæða og árstíða.
Ef nýtanlegt vatn er minna en
1.000 m3 á íbúa á ári er talað um
vatnsskort. Stöðugur vatnsskortur
gæða, þétt-
býlisþarfa og vegna
hnignandi gæða akurlendis.
• Magnkreppan er til komin
vegna takmarkaðs framboðs af
vatni og vaxandi eftirspurnar.
Hœtta er á erjum og óróa því 40%
af íbúum jarðarfá neysluvatn sitt
frá vatnakerfum fljóta. Fljót sem
renna á landamœrum eru var-
hugaverð að þessu leyti og þetta á
einmitt við um a.m.k. 214 stórfljót í
heiminum.
Gœðakreppan kemur til
vegna mengunar vatns af ýmsum
völdum. Einn milljarð manna
skortir hreint drykkjarvatn. Talið
er að unnt vœri að bjarga lifi
tveggja milljóna barna sem látast
af niðurgangi, ef þau hefðu að-
gang af drykkjarhœfu vatni.
Þéttbýliskreppan verður
vegna þess að fólksjjölgun er óvið-
ráðanleg i mörgum stórborgum
þriðja heimsins. Fjölgun og vax-
andi fátœkt ásamt vatnsskorti get-
ur valdið óeirðum. Gert er ráð
fýrir að fólks-
jjöldi stórborga
muni tvöfaldast í
fimm milljarða
fram til ársins
2025. Þar sem
pólitísk völd og
fármagn safnast
í þéttbýlið og auk
þess vatnsskortur
má búast við því
að rikisstjórnir
þeirra landa
neyðist til að
taka vatn frá
landbúnaðinum
þrátt fyrir að
eftirspurn eftir
matvœlum vaxi
hratt.
■ Þverrandi gæði akurlendisins
koma m.a. fram i þverrandi
bindingu vatnsins. Uppblástur vex
og aðgangur að vatni til rœktunar
minnkar. Það leiðir svo af sér
minni búvöruframleiðslu sem
kemur fram í matvælaskorti.
Hér er aðeins gripið á örfáum
þáttum þess mikla vanda, sem við
blasir. Vonandi ná menn saman á
ráðstefnu FAO um raunhæfa fram-
tíðarsýn og aðgerðaáætlun, sem
hefúr raunhæf áhrif á ástandið.
/JRB
WMSMSii
Zefor
Afmælistilboð!
Zetor 6340 4x4 68 hestöfl með vendigír. Verð
aðeins kr. 1.390.000 án vsk.
Zetor 7340 4x4 78 hestöfl með vendigír. Verð
aðeins kr. 1.490.000.
Það hefur ekki verið jafn hagstætt verð á Zetor
í mörg ár.
Aðeins örfáum vélum éKS
óráðstafað á þessu hagstæða verði.
VELAVER
Lágmúla 7, 108 Reykjavík
Sími: 588 2600, fax: 588 2601
mælistilboóAfmælistilbo
mælistilboðAfmælistilbo