Skátaforinginn - 01.01.1985, Side 9
skíðasamband
Fyrsta dag aprílmánaöar árið 1984 var stofnað
Skióasamband Skáta. Markmió þess er að:
1. Efla skiðaáhuga skáta,"áðurstarfandi"skáta og
almennings.
2. Gera fjölskyldum kleyft aö taka þátt i skáta-
starfi, þó svo einhverjir fjölskyldumeólimir
hafi ekki áður tekið þátt i starfsemi skáta-
hreyfingarinnar.
3. Gefa skiðaáhugafólki tækifæri á að taka þátt
i félagsstarfi áhugamanna um að efla skiða-
iþróttina sem almenningsiþrótt.
4. Gefa skátum sem einhverra hluta vegna hafa
ekki aóstöóu til að taka þátt i hinu almenna
skátastarfi kost á skemmtilegum félagsskap
og heilbrigóu útilifsstarfi.
Vonir standa til að Skiðasambandið geti staðið
fyrir gönguskióaferðum, svigskiðaferóum, fjalla-
feróum og almennum vetrarferðum. Þá er og stefnt
að framhaldi á afsláttartilboðum á ýmsum útilifs
og skiðavörum til félagsmanna svo og að bjóóa
félögum upp á námskeið i hinum ýmsu greinum skiða
og vetrariþrótta. Hugmyndin er að i framhaldi af
stækkun skiðasambandsins verði stofnaðar skiða-
sveitir i öllum skátafélögum landsins.
Stefnt er að þvi að l.april 1985 verði félagar
orðnir 5000. Til þess að svo megi verða þarf
verulegt átak sem þú getur tekið virkan þátt i,
með þvi aó gerast félagi og hvetja alla skáta til
að gera slikt hið sama. Aldurstakmörk eru engin
og félagsgjald litlar 100 krónur. Félagsmenn fá
félagsskirteini og merki sambandsins sent um hæl,
auk afsláttartilboðanna i skátaforingjanum.
5 000
4 000
3 000
2 000
1 000
félagar