Gamanvísnablaðið - 06.10.1928, Page 2
Lag: Þá kom fröken Arason með indisbros á vör.
1.
Hann Jónas hringdi til mín, og bauð mjer frían bíl,
sem blaðamanni frægum, en engum götuskríl.
Og Hjeðinn, Jón og Tryggva og Tímasritstjórann,
sem talað geta ekki nema hreinan sannleikann.
2.
Og þar var líka Hallbjörn okkar, seytján landa sýn
sóma maður talin, og Gvendur Hagalín,
og Valtýr fjólufaðir og fleiri með honum,
við fórum alt að rannsaka, í Mentaskólanum.
3.
Og Hagalín, sem minstur var, og mælskastur af oss,
og meinlausastur, það veit guð, og engan hafði kross.
Hann gekk á undan okkur, þar eins og fórnarlamb,
sem ekki hefði viljað þekkja, þetta íhaldsdramb.
4.
Þar má líta Guðjón, þennan góða teiknismið
og Grímsnesinginn, núverandi skóla áhaldið.
Flestir höfðu á sjer þarna vindlinga og vín,
en vitaskuld var staurblankur hann Gvendur Hagalín.
5.
Og Gvendur smaug sem fluga, inn í flestar skonsurnar
og fylkingin á eftir, svona rjett til skemtunar.
Alstaðar var þefur, og ekkert »betrekk« sást
og illa lýstar stofurnar, en loftin reyndust skárst.