Gandreiðin

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat

Gandreiðin - 04.02.1925, Qupperneq 2

Gandreiðin - 04.02.1925, Qupperneq 2
2 GANDREIÐIN ,,Grandreiðin“. Gamanblað með myndum, kemur út einu sinni eða tvisvar á viku, eftir þörfum þjóðar og þingvilja. Afgreiðsla á Laugaveg 67, allra neðstu hæð. Opin frá kl. 10—1 og 2—6 flesta' daga, en mjög sjaldan á nóttunni. í lausasölu kostar blaðið 15 au. eint. Auglýsingaverð eftir sam- komulagi. Afgreiðsla og ritstj.: sími 1477. Innreið „öandreiðariunar“. (Re is u p a s s i). Skoðið þið nú vel höfuðið á »Gand- reiðinni«, þá sjáið þið nokkuð, sem þið hafið aldrei séð fyr. Hausinn er stefnuskráin. Það er ekki margra arka bók, en hún er það sem hún sýnist vera. »Gandreiðin« er ekki við eina fjölina feld, og það erum við ekki, hvort heldur við göngum á fjór- um eða tveimur fótum. Þess vegna munu verða miklar byltingar í höfði Gandreiðarinnar þ. e. a. s. stefnuskrá hennar. Ef til vill fellur sumum það illa að stefnan skuli vera í höfðinu en ekki í fótunum, en ég get ómögulega farið að jagast við menn út af sliku. Það fer sjálfsagt alt eftir því á hvorum endan- um mönnum er tamara að ganga. — Um sjálfan mig er það að segja, að ég er enginn heimskingi, upp á það megið þið hengja ykkur i allra mestu róleg- heitum ef þið hafið hug og lyst til. Ég er stórgáfaður maður, eins og t. d. Þor- bergur Lárubréfsfóstri, Gísli bú, Oddur, Jón krukk, Ólafur og Jónas og er þá langt jafnað. Ég get bæði lesið og skrif- að heila bók um lággengi án þess að sofna. Ef þið rengið mig, þá er ykkur guðvelkomið að koma og skoða mig. en með því skilyrði að þið étið mig samt ekki með augunum. í*vi í trún- aði sagt, þá er ég hreinasti hátíðamat- ur eins og hásumarskyrið í Grafningn- um, sauðaket frá Selalæk og síldarráð- herra. Ég skal fórna mér fyrir hina íslenzku þjóð i framtíðinni eins og bolsar og burgeisar hafa lofað í nafni sjálfstæðis, byltingar og kvenfrelsis, því bak við mig standa íhaldsframsóknarsjálfstæðis- kvenfrelsiskratverjasinnaðir byltinga- menn i herrans nafni og 40. Platskver. Molar úr þátíd eða eftirmaeli. Mikið var um dýrðir í Reykjavík ár- ið 1809 þegar Jörundur hundadagakon- ungur braust til valda og lét lausa alla sökudólga. Álíka fögnuður fylti hjörtu gullrassa eyjanna þegar Skjaldargull hóf göngu sína. Þá skeði margt, sem elztu menn höfðu eigi heyrt getið um áður. Þá voru allir sem bræðnr, háir sem lágir. Gullrassar sýndu mikla kurteisi. Gengu um götur bæjarins með illa bún- um verkamönnum og bjöluðu hljóðlega við þá um þing, stjórn, gull, gersemar, kjöt og brennivín. Bifreiðar þutu um bæinn með nýkristnuðum körlum og konum. Afbrýðisamir eiginmenn hrædd-

x

Gandreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gandreiðin
https://timarit.is/publication/914

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.