Dagsbrún - 01.12.1951, Síða 3
DAGSBÚN
3
KRAFA DAG5BRÚNAR:
Togararnir leggi aflann hér á land
—
DAGSBRÚN
Utgefandi Verkamannafélagið Dagsbrún
Utanáskrift: Verkamannafélagið Dagsbrún,
Reykjavík — Pósthólf 792
V íkingsprent
____________________________________
Atvinnukúgun
Það er gamalþekkt ráð hjá atvinnu-
rekendum af verstu gerð að beita at-
vinnukúgun gegn þeim mönnum, sem
gengið hafa fram fyrir skjöldu í hags-
munabaráttu verkalýðsins. Með því að
flæma þessa menn úr vinnu og svelta
þá átti að lama forustuna og hræða aðra
frá þátttöku í baráttunni. Á uppvaxtar-
árum verkalýðshreyfingarinnar voru
slíkir atburðir daglegt brauð, en eftir
að verkalýðshreyfingin varð að sterku
valdi í landinu og þó sérstaklega hin
síðari ár þegar næg atvinna hefur verið,
hefur lítið á þeim borið.
Atvinnuleysið er nauðsynlegur og
kærkominn bandamaður yfirstéttarinn-
ar í átökum hennar við verkalýðinn um
skiptingu arðsins af striti hins vinnandi
manns. Það er því engin tilviljun að eirí-
mitt núna, þegar atvinnuleysið er að
verða alvarlegt böl skuli þessi gamli
draugur vakinn upp að nýju.
1. október s.l. var 7 vagnstjórum hjá
Strætisvögnum Reykjavíkur að tilefnis-
lausu vikið úr starfi og aðrir ráðnir í
þeirra stað. Mál þetta er öllum al-
menningi kunnugt þar sem mikið hef-
ur verið um það rætt og ritað, en það er
almannarómur að vagnstjórarnir hafi
verið látnir gjalda þáttttöku sinnar í
kjarabaráttu strætisvagnstjóranna á s.l.
vetri, þó aðrar ástæður séu færðar fram
að yfirvarpi. Það verður að teljast sér-
lega vítavert, að ráðamenn bæjarfélags-
ins skuli ganga fram fyrir skjöldu í að
beita slíkum aðferðum.
Trúnaðarráð Dagsbrúnar ræddi þessi
mál á fundi sínum 15. okt. Samþykkt
voru einróma harðorð mótmæli gegn
brottrekstrinum og þess krafizt, að
mennirnir yrðu ráðnir að nýju í sín fyrri
störf. Sérstök athygli var vakin á þeim
óvenjulegu aðferðum, sem beitt var við
brottvikninguna, þar sem fengnir voru
menn úr sömu starfsstétt til að njósna
um vinnufélaga sína. Fundurinn for-
dæmdi þá menn, sem taka að sér slík-
ar njósnir fyrir atvinnurekendur og skor-
aði á öll verkalýðsfélög að vera vel á
verði gegn þess háttar starfsaðferðum
og þola ekki slíka menn innan sinna
vébanda. Þá skoraði fundurinn á stjórn
Ályktun sú, sem hér fer á eftir var
samþykkt á Dagsbrúnarfundi 31. okt.
s.l. Með henni er mörkuð sú stefna, sem
félagið hefur fylgt í atvinnuleysisbar-
áttunni. Málinu hefur verið fylgt eftir
1 bæjarstjórn og bæjarráði. Varaformað-
ur félagsins, Hannes M. Stephensen,
hefur flutt tillögur á þessum grundvelli
á tveimur bæjarstjórnarfundum og í
bæjarráði hefur Guðmundur Vigfússon
beitt sér fyrir málinu.
Nokkur árangur er nú orðinn af þess-
ari baráttu þar sem ákveðið er að nokkr-
ir togarar leggi afla sinn hér á land til
vinnslu og einn þeirra þegar lagt hér
upp.
Krafa félagsins er sú, að möguleikar
frystihúsanna og annarra verkunar- og
vinnslustöðva hér í bænum verði að
fullu nýttir, og eins margir togarar og til
þess þarf verði látnir leggja upp afla
sinn hér.
Ályktun félagsins er svohljóðandi:
„Þar sem töluvert atvinnuleysi hefur
verið meðal verkamanna í bænum að
undanförnu og gera verður ráð fyrir að
það vaxi verulega á komandi vikum, ef
ekkert verður að gert, þá telur fundur-
inn nauðsynlegt að þegar í stað verði
gerðar ráðstafanir af hálfu opinberra að-
ila til þess að koma í veg fyrir atvinnu-
leysi verkamanna.
Fundurinn vill vekja athygli á því að
rekstri stórvirkustu atvinnutækja bæj-
arbúa, nýsköpunartogaranna, er nú
Alþýðusabandsins og Fulltrúaráð verka-
lýðsfélaganna að láta málið til sín taka
og beita sér fyrir ráðstöfunum til að
rétta hlut vagnstjóranna og hét fund-
urinn fullum stuðningi Dagsbrúnar við
slíkar ráðstafanir.
Það er mjög nauðsynlegt að verkalýðs-
hreyfingin svari ofsóknum sem þessum
á viðeigandi hátt svo þær verði kæfðar
strax í fæðingunni, en sú barátta byggist
mjög á stéttvísi og þroska verkalýðsins
og öruggri forustu. Ef bílstjóramir á
strætisvögnunum hefðu allir sem einn
lagt niður vinnu þegar félagar þeirra
voru reknir hefði mál þetta fengið skjót-
an og góðan endi.
Ennþá hafa vagnstjórarnir sjö ekki
verið ráðnir í sín fyrri stÖrf og meðan
svo er verður að halda áfram barátt-
unni fyrir rétti þeirra.
þannig háttað að þeir skapa litla sem
enga atvinnu í landi, þar sem þeir leggja
afla sinn upp erlendis. Fundurinn tel-
ur að raunhæfustu atvinnubæturnar fyr-
ir verkafólkið í bænum væru þær, að
togararnir legðu afla sinn hér á land
til vinnslu, enda þjóðhagslega séð aug-
ljós ágóði að vinna sem mest úr hráefn-
unum innanlands í stað þess að flytja
þau út óunnin.
Fundurinn skorar því á bæjarstjórn
Reykjavíkur að hafa forgöngu um að
togarar bæjarins, hvort heldur eru 1 op-
inberri eign eða einstaklinga, leggi afla
sinn hér á land svo að möguleikar frysti-
húsanna og annarra verkunar- og
vinnslustöðva til að vinna úr aflanum
verði nú þegar nýttir að fullu.“
Frá félaginu
Fundarstarf er nú hafið að nýju eftir
algert hlé á slíkri starfsemi yfir sumar-
mánuðina. Það virðist vera 'orðin venja
í verkalýðshreyfingunni, sem öðrum fé-
lagssamtökum, að halda ekki félags-
fundi yfir sumarið nema sérstaklega
standi á og mætti sjálfsagt segja bæði
gott og illt um slíka siði.
Trúnaðarráðið hélt fyrsta fund sinn
á haustinu 15. okt. og ræddi ýms félags-
mál. Á fundinum voru samþykktar 78
inntökubeiðnir í félagið.
Félag'sfundur var haldinn 31. okt. í
Iðnó. Fundurinn fjalaði fyrst og fremst
um atvinnumálin og samþykkt var á-
lyktun sú, sem birt er á öðrum stað í
blaðinu. Á fundi þessum mættu allt
of fáir félagsmenn. Verkamenn ættu
að festa sér í minni, að með því að sækja
ekki félagsfundi eru þeir að vinna sjálf-
um sér og þeim málstað, sem félagið
berst fyrir, hið mesta ógagn.
Uppstillinganefnd hefur nú verið kos-
in af félagsfundi og trúnaðarráði. I
nefndinni eru þessir félagsmenn: And-
rés Wendel, Ari Finnsson og Ingólfur
Pétursson. Varamenn eru: Guðbrandur
Guðmundsson, Kristinn Sigurðsson og
Sigurjón Jónsson.
Kjörstjóm félagsins fyrir næsta ár er
þannig skipuð: Jón G. Einis, kosinn af
félagsfundi, Guðmlundur Vigfússon,
kosinn af trúnaðarráði og Hannes M.
Stephansen, skipaður af stjórninni.