Dagsbrún - 01.12.1975, Blaðsíða 9

Dagsbrún - 01.12.1975, Blaðsíða 9
Um uppsagnarfrest verkamanna Þegar verkamaður hefur öðlast rétt til fasts vikukaups, þ. e. hefur unnið 6 mánuði eða lengur hjá sama vinnu- veitanda, er gagnkvæmur uppsagnarfrestur 1 vika, miðað við vikuskipti, þar til viðkomandi hefur öðlast rétt til eins mánaðar uppsagnarfrests samkv. lögum nr. 16, 1958. Mánaðarkaupsmenn eiga ávallt eins mánaðar uppsagnarfrest, miðað við mánaðamót, sé ekki annað ákveðið í samningum. Þegar verkamanni er sagt upp vegna samdráttar, skal liann, ef um endurráðningu er að ræða innan 6 mánaða, lialda áunnum réttindum, svo sem starfs- aldurshækkunum, föstu vikukaupi og rétti til kaup- greiðslu í veikinda- og slysatilfellum. Næturvinnukaup á dagvinnutímabili o. fl. Nú hefur verkamaður unnið 6 klst. eða meira samfellt í næturvinnu og skal liann þá fá minnst 6 klst. hvíld, ella greiðist áfram næturvinnukaup, þó komið sé fram á dagvinnutímabil. Þetta ákvæði skerðir þó eigi rétt til greiðslu á óskertu viku- eða mánaðarkaupi sé viðkomandi á föstu viku- eða mánaðarkaupi. Þegar verkamaður er kvaddur til vinnu, eftir að næturvinnutímabil er hafíð, skal hann fá greitt kaup fyrir minnst tvær klst., nema dagvinna hefjist innan tveggja klst. frá því hann kom til vinnu. Þó skal greiða minnst 4 klst. fyrir útkall á tímabilinu kl. 24,00 —04,00. Tryggingar Samkvæmt samningum Alþýðusambands íslands og vinnuveitenda frá 26. febrúar 1974 ber öllum vinnu- veitendum að slysatryggja allt verkafólk, sem hjá þeim vinnur, á eftirfarandi hátt: A. Miðað við dauða: Frá kr. 200.000,00—700.000,00 eftir því hvort um einhleypan mann eða kvæntan er að ræða og að auki kr. 100.000,00 fyrir livert barn, sem hinn látni hafði á framfæri sínu. 9

x

Dagsbrún

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagsbrún
https://timarit.is/publication/936

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.