Dagsbrún - 01.05.1989, Blaðsíða 26
HÓPTRYGGING
DAGSBRUNAR
Gengiö hefur veriö frá nýjum samningi viö Brunabótafélag íslands um
hóptryggingu Dagsbrúnarmanna.
1. Hóplíftrygging (Gildir frá 01.04.1989)
Hóplíftryggingin nær til allra fullgildra félagsmanna Dagsbrúnar sem
ekki hafa náð 70 ára aldri.
Dánarbætur eru kr. 168.305,00 fyrir hvern félagsmann sem skilur eftir
foreldra.
Viðbótargreiðsla til maka er kr. 168.305,00 og kr. 100.981,00 fyrir
hvert barn hans, sem ekki hefur náö 21 árs aldri.
Dæmi:
Dagsbrúnarmaður lætur eftir sig konu og tvö börn, dánarbætur
alls kr. 538.572,00.
UPPSAGNARFRESTUR VERKAFÓLKS
Starfstími Uppsagnarfrestur Hvar unnið
Fyrstu tvo mánuðina Eftir tvo mánuði enginn 1 vika í sömu starfsgrein
Eftir 1 ár 1 mánuður í sömu starfsgrein
Eftir 3 ár 2 mánuðir hjá sama atvinnurekanda
Eftir 5 ár 3 mánuðir hjá sama atvinnurekanda
Mánaöarkaupsmenn eiga ávallt minnst eins mánaðar uppsagnarfrest.
Meö ári er hér aö ofan átt við 12 mánaöa tímabil og samfelld vinna telst ef unnið er á
12 mánaðatímabili a.m.k. 1550stundir, þaraf a.m.k. 130 stundirsíðasta mánuðinn. Fjar-
vistir vegna veikinda, slysa, orlofs, verkfalla og verkbanna teljast jafngilda unnum stund-
um og skal miða við 8 stundir fyrir hvern fjarvistadag.
Allar uppsagnir skulu vera skriflegar og miðast við vikulok eða mánaðamót.
UPPSAGNARFRESTUR ER GAGNKVÆMUR.
26