Dagsbrún - 01.05.1989, Blaðsíða 28
UM FRÍTT FÆÐI OG DAGPENINGA
Þegar verkamenn eru sendir til vinnu utan bæjar og þeim ekki ekið heim
á máltíðum eða að kvöldi, skulu þeir fá frítt fæði og annan dvalarkostn-
að. Ef verkamönnum, sem vinna í borgarlandinu utan flutningslínu, er
ekki ekið heim á máltíðum og þeim er ekki séð fyrir fæði á vinnustað,
skulu þeim greiddir dagpeningar fyrir fæðiskostnaði er séu kr. 461,90 á
dag sé verkamönnum ekið heim fyrir kvöldmatartíma, en kr. 808,87 fari
heimkeyrslan fram síðar. Þegar að jafnaði er matast á vinnustað, skulu
bæði vinnuveitendur og verkafólk fylgja fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda
um aðbúnað, hreinlætisaðstöðu og umgengni á matstað.
TJÓN Á FATNAÐI OG MUNUM
Verði verkamaður sannanlega fyrir tjóni á algengum nauðsynlegum
fatnaði og munum við framkvæmd vinnu sinnar, svo sem úrum, gler-
augum o.s.frv., skal það bætt skv. mati.
Sama gildir, ef verkamaður verður fyrir fatatjóni af völdum kemiskra
efna, þar á meðal rykbindiefna (calciumcloride).
Verði verkamaður fyrir tjóni (missi á hlífðarfatnaði o.fl.) er orsakast af
bruna á vinnustaðnum, skal það bætt eftir mati.
ÚTKALL
Þegar verkamaður er kvaddur til vinnu, eftir að yfirvinnutímabil er hafið,
skal hann fá greitt fyrir minnst 4 klukkustundir, nema dagvinna hefjist
innan tveggja klukkutíma frá því að hann kom til vinnu.
Kvaðning til vinnu að morgni eftir að dagvinnutímabil er hafið vari
alltaf til hádegis og minnst 4 klst.
REGLUR UM FAST VIKUKAUP
Hafi verkamaður unnið hjá sama atvinnurekanda samfellt í 2 mánuði
eða lengur skal honum greitt óskert vikukaup þannig, að samnings-
bundnir frídagar aðrir en sunnudagar, séu greiddir.
VEIKINDI BARNA
Foreldri skal eftir fyrsta starfsmánuð, heimilt að verja samtals 7 vinnu-
dögum á hverju 12 mánaða tímabili, til aðhlynningar sjúkum börnum
sínum undir 13 ára aldri, enda verði annarri umönnun ekki við komið og
halda þá dagvinnulaunum sínum, svo og vaktaálagi þar sem það á við.
28