Þjóðvörn - 04.10.1946, Blaðsíða 4
4
ÞJÖÐVÖRN
Föstudagur 4. október 1946
Æ Imœmmww
bwrgmrafwmdwr
verðnr baldiim við Miðbæjarbamaskólann ki 1815 í dag á vegirns Þjóðvamarfélagsins, Alþýðusambands
Isiands og annarra félagasamtaka.
DAGSEBÁ :
Samningurinn við Bandaríkin.
Að loknum fundi munu væntanlegar ályktanir fluttar hr. forsætisráðherra Ólafi Thors.
Af hálfu fundarboðenda er rík áhersla lögð á, að fundurinn fari stillilega og virðulega fram. — Það er
brýnt fyrir þeim, sem andvígir eru samningsuppkastinu, að mæta á fundinn.
jafnvel til að veita nýjum fyrir-
tækjum forstöðu., t. d. var fyrsti
landssímastjórinn erlendurmað-
ur og svo var einnig mn fleiri
sérfróða menn um símalagnir
og símarekstur í byrjim, en þeir
voru allir í þjónustu íslenzku
þjóðarinnar.
Ég rengi það ekki, að Banda-
ríkin þurfi að hafa afnot af
Keflavíkurflugvellinum vegna
herst jórnareftirlits í Þýzkalandi,
en ég skil ekki hvers vegna þau
geta ekki fallizt á, að íslenzka
ríkið eitt annist rekstur vallar-
ins, ef tryggilega er séð fyrir
allri' afgreiðslu.
1. tölublað Þjóðvamar kom út
í 20 þúsimd eintökum. Var blað-
ið borið 1 flestar íbúðir Reykja-
víkur og Hafnarfjarðar. Blaðið
hefur verið sent víða um land,
eftir því sem upplagið entist.
— Prentmótin eru geymd, því
að ætlunin er að senda blaðið á
hvert heimili i landinu.
C
----- E
Vísir í gær heldur að tilvitn- |
animar frá Oppenheim haf i ver- |
ið léðar frá kommúnistum. Til |
upplýsingar skal þess getið, að |
tilvitnanirnar vom teknar úr |
bók, sem Jóhann Hafstein á.
Mene, Mene Tekel!
Alþingismenn þjóðarinnar f
skulu gera sér Ijóst, að þeir |
verða krafnir reikningsskila í I
því örlagaríka máli, sem nú |
liggur fyrir Alþingi. =
Nái samningsuppkastið sam-
þykki þings verður einskis látið
ófreistað og engin vopn látin
ónotuð til þess að knýja fram
nýjar alþingiskosningar strax.
Sannast þá hið fomkveðna:
„Skamma stund verður hönd
höggi fegin.“
Aumingja Vísir varð að játa í
leiðara sínum í gær að Banda-
ríkin myndu öðlast þjóðréttar-
lega aðstöðu á Islandi ef samn-
ingsuppkastið fengi staðfest-
ingu.
Þarf þá frekar vitna við.
Greinargerð meiri hluta utan-
ríkisnefndar birtist í Morgun-
blaðinu í gær. Það er aumt plagg
og illa rökstutt. Er það fullt af-
sakana á illum málstað. Eitt lít-
ið 'dæmi um ranghermi er,
að herveradarsamningurinn var
ekki lagður fyrir utanríkis-
nefnd. Það er á margra vitorði
að allir utanríkisnefndarmenn,
að tveim imdanskildum, vom
kvaddir á fund undir forsæti
ríkisstjóra. Þeir tveir, sem eigi
vom á fundi, voru Garðar Þor-
steinsson og Jóh. Þ. Jósepsson,
en Ólafm’ Thors þorði ekki að
kalla þá á fundinn sakir samúð-
ar þeirra með nasistum, en
kvaddi varamenn þeirra í stað-
inn. Fór þetta svo leynt, að
sennilega vita Garðar og Jó-
hann ekki af þessu fyrr en þeir
lesa það hér.
Fornólfur:
Þeir, sem tólfhundrum sextíu og
tvö sóru eKJ
fyrir tælni og ásælnis vél,
þeir, sem kúgaðir voru i Kópavog
uiidir kvalúingar, meiðing og hel,
hafa afsökun þá, hvernig á þá
var sótt
með erlendu harðræði og prett —
en hvað sýknar oss nú, ef vér
sækjum það fast
að semja af oss foman rétt.
Símskeyti
frá Jóni Helgasyni prófessor
E
* “
til dr. Einars Ol. Sveinssonar.
Þess er skammt að minnast, að mætir Is- f
lendingar voru allt að því sakaðir um landráð, f
af því að þeir löttu hraðskilnaðar við Dani. Við i
* 6
Hafnar-Islendingar fórum þar ekki varhluta. §
Nú sjáum við með undrun og ógeði, hvemig f
sumir þeir, sem voru þar ólmastir, berjast með f
, 5
oddi og eggju fyrir samningi, sem heimilar f
stórþjóð hluta lands vors til hálfgerðra eða al- f
gerðra forráða. Hvað veldur þessum sinnaskipt- f
um? Hvað veldur, að til eru íslenzkir menn, sem \
styðja svo óheillavænlegan samning, vel vitandi, |
að óskýr ákvæði hljóta jafnan að vera þeim í |
vil, sem aflið hefur meira.
Jón Helgason.
iuiiiimmiiiiiMiitiimiiiuimiimiiiiiiiiHHmiifiimitfUMKmtinfiiiraniniiiiMiiititiiuiNiHiimiiiiiiuiiiiiMiiMtiiMiiiiMifiKvv'*
STEXNDÓRSPRENT H.F.