Þjóðvörn - 21.10.1946, Side 1
1. árgangur.
Mánudagur 21. o'któiber 1946.
3. tölublaö.
Þjóðvarnafélagið var stofnað á tveim fundum hinn*
30. september og 1. október þ. á., sem haldnir voru í 1.!
kennslustofu Háskóla íslands.
Tilefni félagsstofnunarinnar var fyrst og fremst samn-
ingsuppkast það, sem forsætis- og utanríkisráðherra hafði
lagt fyrir Alþingi og nefndi „Samning um niðurfellingu
herverndarsamningsins o. fl.“, en sem í raun og veru var
herstöðvasamningur við Bandaríkin.
Félagið ásetti sér frá upphafi að vinna gegn sam-
þykkt þessa hættulega samnings. I -öðru lagi að vaka yfir
því að ekki yrði frekar gengið á rétt Islendinga með fram-
kvæmd samningsins, ef samþykktur yrði, og beita sér fyrir
því að hann yrði ekki endurnýjaður.
Ennfremur skyldi félagið vinna gegn hverskonar á-
sælni erlendra þjóða á land eða réttindi Islands sem sjálf-
stæðs ríkis.
Hér fara á eftir bráðabirgðalög Þjóðvarnafélagsins.
1. gr.
Félagið heitir Þjóðvarnafélagið. Heimili þess er í
Reykjavík.
2. gr.
Markmið félagsins er:
a) Að vinna gegn því, að samningstilboð það, sem nú
liggur fyrir frá Bandaríkjunum, verði samþykkt.
b) Ef samningstilboðið verður samþykkt og fullgilt,
þá að vinna að því, að gætt sé réttar Islendinga í
framkvæmd samningsins í öllum greinum.
c) Að vinna gegn hvers konar ásælni annarra ríkja
á land vort eða réttindi sem sjálfstæðrar þjóðar.
3. gr.
Markmiði sínu liyggst félagið að ná með þvi:
a) Að safna saman öllum þjóðræknum Islendingum,
sem er ljós sú liætta, er lítilli þjóð hlýtur að stafa
frá erlendum þjóðum, sem seilast til lilunninda í
landi hennar.
b) Með fyrirlestrum, útgáfustarfsemi og annarri
kynningarstarfsemi.
4. gr.
Félagar geta allir Islendingar orðið. Ársgjald er kr. |
50.00 fyrir fullorðna, en kr. 10.00 fyrir unglinga innan 16
ára aldurs.
5. gr.:
Stjórnina skipa 7 menn, þar af minnst 2 konur. Stjórn-
in er kosin á aðalfundi ár hvert og skiptir hún sjálf með
sér verkum.
6. gr.:
Aðalfundur skal haldinn fyrir 1. desember næstkom-
andi.
7. gr.:
Þessi lög gilda til aðalfundar.
Svo ógiftusamlega hefur nú tekist til, að Alþingi sam-
þykkti samningsuppkastið og hefur það veriö gert að bind-
andi samningi fyrir íslendinga.
Þjóðvarnarfélagið hefur því ærið verkefni fyrir hönd-
um. Fyrst og fremst að fá þjóðholla íslendinga til þess að
taka höndum saman til varnar sjálfstæði landsins, því að
horfast verður í augu við þá staðreynd, að svo getur farið,
að það verði afmáð með öllu, ef íslenska þjóðin sjálf er
andvaralaus.
Allir eitt fyrir sjálfstæði og framtíð íslands.
Hinn 5. okt. 1946 verður
vafalaust skráður í sögu þess-
arar þjóðar, sem einn af henn-
ar stærstu óheilla og harma-
dögum. Þann dag brugðust 32
alþingismenn skyldum sínum
við sjálfstæði hins unga ís-
lenzka lýðveldis með því að
veita erlendu herveldi umráða-
rétt og bækistöð á islenzku
landi, án þess að þjóðinni væri
gefinn þess nokkur kostur að
láta í ljósi sitt áiit. Nú má
segja aö cliappaverkío hefur
verio unnið cg verður eiiki aft-
ur tekið, ekki um næstxi 6 ár
að minnsta kosti. Hið eina sem
sé að gera sé því það, að vera
á verði og reyna að gæta þess
að óhappamennirnir og hið er-
lenda vald, sem á bakvið þá
stendur, haldi ekki áfram að
mylja utan úr sjálfstæði þjóð-
arinnar, þar til þeim smátt og
smátt hefur að fullu tekizt að
innlima oss Bandaríkum Norð-
ur-Ameriku. En í sambandi við
þessar varnir og atkvæða-
greiðsluna um herstöðvasamn-
inginn þ. 5. okt. eru ýmis at-
riði, sem vert er að taka til
athugunar og þjóðin verður að
gera sér vel skýr nú þegar,
vegna þeirrar framtíðarbar-
áttu, sem liáð verður um þetta
mál.
Það er öllum lýðum Ijóst að
j undanfarna áratugi hefur
flokksagi hinna ýmsu pólitísku
flokka hér á landi verið svo
strangur, að í öllum þeim mál-
um, sem flokkarnir álíta að
skipti þá nokkru verulegu máli,
hafa einstakir alþingismenn
ekki fengið að greiða atkvæði
eftir sannfæringu, ef hún er
önnur en sannfæring flokksins.
Þetta er staðreynd, sem hér
skal livorki dæmd eða réttlætt.
Hitt er líka staðreynd, að fyrir
Alþingi hefur aldrei legið að
talia mikilvægari ákvörðun, en
þá sem tekin var laugardaginn
þ. 5. okt. 1946, ef til vill að und-
anskilinni ákvörðuninni um
stofnun lýðveldis á Islandi og
samþykktir í sambandi við
sjálfstæðisbaráttu vora við
danslia ríkið. Það er því mjög
fróðlegt að atliuga afgreiðslu
þessa stórmáls á Alþingi sam-
kvæmt flokkaskiptingu þess.
Einn flokkur stóð ósliiptur
um rétt íslands og sjálfstæði,
og sýnist það ekki nema eðli-
legt, að heill flokkur geti fylkt
sér um slíkan málstað. Annar
flokkur stóð lília óskiptur —
með afsali réttinda vorra —
nokkuð napurt að sá flokkur
skuli kenna sig við sjálfstæði
íslands. Hér sýnist flokkskúg-
unin á Alþingi hafa verið alger,
því það er á allra vitoroi að
fjöldamargir fylgismenn þessa
flokks voru afsalinu fullkom-
lega andvígir og börðust gegn
því utan þingsins, svo það virð
ist ógerningur að álykta að 20
þingmenn flokksins hafi ánægð
ir og með góðri samvizku léð
málinu fylgi sitt — en atkvæði
sitt létu þeir að minnsta liosti.
Hinir tveir flokltarnir voru
skiptir um málið, annar til
helminga, hinn að % og% og
brutu þannig öll venjuleg
flokkalög, enda sýnist ekki
vera liægt að láta flokkssam-
þykktir ráða, þar sem gengið
] er til atkvæða um framtíðar-
frelsi og réttindi þjóðaríimar.
Sjálfstæðisbaráíta Islaiul er
gömul, hún hefur verið háð
allt frá árinu 1262 fram að lýð
veldisstofnun 1944. Alían þann
tíma frarn til 1918, þegar ís-
laml var viðurkennt fullvalda
ríki skiptust íslendingar fyrst
og fremst í tvo fiokka, þá, sem
vildu frels íslands, og hina,
sem vildu hin erlendu yfirráð
og notuðu þau sjálfum sér til
framdráttar á ýmsan hátt. Eft-
ir því sem frelsi íslands og
sjálfstæði jókst, komst á eðlilegt
flokkaskipting um innanlands-
mál og hefur orsakað myndun
hinna mörgu flokka, sem nú
sitja á Alþingi. Atkvæðagreiðsl
an á Alþingi um herstöðvamál-
ið þ. 5. okt. s.l. bendir til þess,
að hér mun aftur verða breyt-
ing á. Sjálfstæði íslands hefur
verið skert, hér á eftir verður
það mál málanna fyrir alla þá
íslendinga, sem sjá og skilja
hvert stefnir. Allt annað verð-
ur að lúta í lægra haldi, kosn-
ingar til Alþingis hljóta að snú-
ast fyrst og fremst rnn þetta
Framh. af 7. síð'".
5. októfoei’ 1M@
Vakna þjóð mín!
Þú sem sofið hefur við nægtabrunna,
meðan löðrandi hafrót og æðisgengnir byljir
hafa geisað.
Hlustaðu. —
Heyrirðu ekki vábresti innan þinna eigin dyra?
Það er komin helköld vargöld,
hold þitt sundurtætt og sárin sollin.
Rís upp! þú stolta þjóð! Nem fúann burt!
Láttu ekki smjaðrandi tungur gjöra þig hrokafulla,
né gullið blinda augu þín.
Vertu íhugul á gleðistund og eigðu gott og
hógvært hjarta.
Þú yngst og minnst meðal systkina þinna,
taktu þér blys í hönd og lýstu hrjáðu mannkyni
inn í lönd friðar, sannleika og réttlætis.
Ó, þú ástkæra þjóð, sem vaknar við nágust Heljar.
VER MERKISBERI LÍFSINS!
Kona og méðir
------------------------------------------------