Þjóðvörn - 21.10.1946, Blaðsíða 5
Mánudagur 21. október 1946.
ÞJÓÐVÖRN
5
Mega Islendingar sitja aðgerðar-
lausir, unz íjötrarnir kafa lokazt
uni fætur þeirra?
Síðastliðinn laugardag vann
Alþingi Islendinga það verk,
sem óvinsælast hefur verið
unnið með þjóðinni um margar 1
aldir og á ef til vill eftir að
reynast mesta óhappaverk, sem
það hefur framið síðan 1662,
er þeir Árni lögmaður Oddsson
og Brynjólfur biskup Sveins-1
son kiknuðu hryggir og hyggju
þungir undir ofurþunga erlendr I
ar áleitni og ágengi við Islend- j
inga og réttindi þeirra.
Flestum mun það, sem Al-
þingi aðhafðist síðastliðinn
laugardag, í ferskara minni og
kunnara en svo, að þörf sé að
rif ja það upp í þessari grein. —
En eru nokkrar líkur til, að Al-
þingi láti liér staðar numið um
þjónkun við Bandaríkjamenn
meðan það er skipað sem ná
er? Ekki nema þjóðin bindist
samtökum um að spyrna við
íotum og reyni að koma í veg
fyrir enn meiri vandræði.
Islendingum er kunnugt um,
að þannig hefur verið c fjár-
málum þeiira haldið í tið uúver
andi stjórrrr, að mjög er nú
gengið á iunstæður þe.ira í
Bretlandi, þótt geysuniklar
væru í styijaldarlok og inn-
stæður þe'rra í Bandarikjun-
um þrotnar með ö'lu. nema
nokkur upphæð, sem tekin lief-
ur verið frá til viðreisnar at-
vinnuvegunum (og hefur þó
eitt Reykjavíkurblaðanna 'iald
ið því fram, að nokkru af henni
hafi verið eytt í heimildar-
leysi). Engan þarf heldur að
furða, þótt svona sé komið, þeg
ar þess er gætt að verrli.nar-
jöfnuðunnn við úUönd’ hefur
suma mánuði þessa árs verið
óhagstæður um tugi milljóna
króna, þótt dregið sé frá það
fé, sem farið hefur til kaupa á
framleiðslutæk jum.
Stjórnin hefur róleg og
furðuánægð með sjálfa sig
horft á innstæðurnar eyðast,
en dýrtíðina vaxa mánuð i'rá
mánuði án þess að hreyfa
hönd eða fót til að spyrua gegn
þessari fjárhagslegu helstefnu.
Hún hefur horft á það með
úrræðaleysi og tómlæti, að
framleiðslukostnaður íslenzkr-
ar útflutningsvöru er orðinn
svo gífurlegur, að hún er að
verða óseljanleg erlendis fyrir
það verð, sem framleiðendur
þurfa að fá fyrir hana, til þess
að framleiðslan beri sig. Stjórn
in veit, að sænsku vélbátarnir
eru bundnir, jafnóðum og þeir
koma til landsins, af því að það
borgar sig ekki að halda þeim
úti. Jafnvel hafa sumir ráðherr
arnir mælt dýrtíðinni bót, enda
hefur hún verið vel þokkuð af
allsk. braskaralýð, og væri þar
efni í langa og Ijóta sögu.
Það eru því varla miklar lik-
ur til, að þeir Alþingismenn,
sem samþykktu samninginn
við Bandaríkin, sjái eða vilji
sjá nema tvær leiðir út úr fjár
málaöngþveitinu: annaðhvort
að verðfella krónuna, sem er
þegar orðin verðlítil, eða taka
lán í Bandaríkjunum eða hvort
tveggja.
Lítum á þessar tvær leiðir.
Verðfelling krónunnar jafn-
gildir því, að óráðvandur mað-
ur kæmist í sparisjóðsbækur
manna og tæki út úr þeim jafn-
mikinn hluta innstæðnanna og
verðfellingunni nemur. Munur-
inn væri að eins sá, að krónatai
an væri söm og áður, en kaup-
máttur innstæðnanna þyrri í
hlutfalli við verðfellinguna, að
minnsta kosti úr því að nokkrir
mánuðir væru liðnir. Og hverj-
ir mundu einkum eiga þær inn-
stæður, sem eftir yrðu í bönk-
um og sparisjóðum um það
leytl, sem verðfelling yrði að
lögum? Fyrst og fremst fátæk
ari hluti þjóðarinnar, sem safn-
að hefur nokkrum þúsundum
eða tugum þúsunda, meðan
góðærið var, því að hinir, sem
mikið hafa grætt, hafa breytt
gróða sínum í fasteignir eða
komið honum undan með ýms-
um hætti eða munu gera það,
þegar þeir sjá, hvert stefnir.
Metí verðfellmgu ltrónunnar
mundi því viðskiptaaðstaða
þjóðarinnar verða bætt — um
skamma hríð Á KOSTNAÐ
HINNA FÁTÆKARI OG FÁ-
TÆKUSTU í ÞJÓÐFÉLAG-
INU. — Enn fremur ylli verð-
felling krónnnnar óbeinni kaup
lækkun, þar sem öll erlend
vara mundi hækka í verði um
það bil eða alveg jafnmikið og
verðfellingunni næmi.
Síðari leiðin, lántaka í
Bandaríkjunum, mundi gera Is-
lendinga svo háða Bandaríkja-
mönnum, að þeim yrði illkleift
eða alls ókleift að nota sér rétt
inn til að segja samningnum
upp, þegar að því kæmi, þvi að
ólíklegt er, að Islendingar gætu
staðið skil á erlendu láni, þeg-
ar frá liði, ef þeir geta ekki
lifað á gæðum landsins og eig-
in framleiðslu, meðan geysihátt
verð er á henni sökum harðær-
is á meginlandi Norðurálfu. —
Mundu íslendingar verða þess
umkomnir að segja upp samn-
ingnum við lánardrottininn,
þegar svo er komið? Eg spyr,
en þið svarið, lesendur góðir.
Ber því ekki íslezkri alþýðu
að leysa dýrtíðarvandamálið,
áður en forráðamenn hennar,
þeir er sögðu já laugardaginn,
5. kot., taka til þessara ráða?
Geta ekki laiuiþegar og bændur
komið sér saman nrn að lækka
verð innlendra afurða og' —
kaupgjakl jafnmikið, — svo
mikið, að nægilegt sé til þess,
að íslendingar geti haldið á-
fram nauðsynlegum viðskiptum
við aðrar þjóoir? -— Mundu
þessir aðilar ekld jafnvel vilja
fórna nokkrum hagsmunum
til þess að komast hjá því að
lenda í eins konar skuldafang-
elsi hjá erlendri þjóð, skulda-
fangelsi, sem óvíst væri, að
þcir slyppu nokkurn tíma út
úr ?
Islendingar, ef þio sitjið auð
um höndum og vinnið ekki
sjálfir að því að leysa- dýrtíð-
armálin með hcilbrigðum að-
ferðum, getur svo farið, að
skuldafjötrarnir hafi verið
reyrðir um fætur ykkar, áður
en þið fáið færi á að neyta
uppsagnarréttarins.
Reykjavíg, 8. okt. 1946
Magnús Finnbogason.
Vér skulum koia í lópavog
Wífo gfoyldi Mmiíii vina
Samningurinn við Bandarík-
in hefur nú verið samþykktur
af meiri hluta alþingismanna.
Ötulustu formælendur hans
ná því, að hann verði til mik-
llar blessunar fyrir íslenzka
þjóð. klegi 'gifta Islands gefa
að svo verði.
Með samningi þessum er lok-
að þeim hleklc, sem tengir her-
námsárin hér á landi við fram-
tíðina. Enn verður einn mikils-
verðasti blettur lanösins und-
ir áhrifum og að vissu leyti
stjórn erlends stórveldis. Þar
eru leifarnar af víðtækri kröfr
um herstöðvar í heila öld.
Þeirra kröfu vísaði þjóðin á
bug. Leifar þessar eru að sönnu
eklci stórar, en þær eru þarna
samt.
Andmælendum þessa samn-
ings hefur verið borið á brýn,
að þeir væru að sýna Banda-
ríkjunum fjandskap með mót-
stöðu sinni við samninginn. Eg
fullyrði, að þetta er alrangt um
meiri hluta þess fólks, sem
mælti samningnum í mót. Veit
ég vel, að til er hópur manna
á Islandi, sem lítur Bandaríkin
óhýru auga, en ekki má draga
alla í sama dilkinn. Það spillir
þessu máli og er sízt til heilla
fyrir þá, sem mest hafa alið
önn fyrir samningnum.
Nei, meiri hluti andstæðinga
hans hugsar til Bandaríkja-
manna með hlýju og vill lialda
Eg hef ávallt hugsað mér að
það hafi verið í hægu dumb-
ungsveðri, en með bliku í lofti,
að sá atburður gerðist, sem mér
jafnan hefur þótt einna átakan-
legastur í sögu vorri. Aðrir
mundu ef til vill telja atburð
eins og lát Jóns Arasonar og
sona hans ennþá átakanlegra.
En blóð hraustra bardaga-
manna fyrir málstað þann, er
þeir fórnuðu sér fyrir, er inn-
sigli sögunnar á afrekum þeirra
Tár aftur á móti — tár á fölv-
um kinnum einmana gamal-
mennis, sem fórnað hefur kröft
um langrar ævi í stríoi fyrii
rétt gegn röngu, og má eigi
rönd við reisa, þó hin forn
helgu réttindi séu fótum troð-
in — slík tár orka á sálina cir.
og blæðandi und, eins og sár,
sem opnast og blæðir á ný í
hvert sinn, er líkir atburðir
gerast og rétti þjóðarinnar ei
þröngvað ....
Henrik Bjelke var kominn oi
seint út til að taka erfðahyll-
ingareiðinn, sem gera skyld:
Friðrik þriðja cinvaldann, aí
landsmönnum á Alþingi. Hani:
stefndi því biskupi, lögmanni ce
nokkrum öðrum höfðingjunr.
sunnanlands til þings í Kópa-
vogi, þar skyldu þeir vinna eið-
inn gegn öllum íslenzkum rétt-
arvenjum.
Honum er sjálfum ljóst,
það, sem hann fer fram á, koll-
varpar í raun og- veru fornr'
réttarstöðu íslands. Þyss vegnc
hefur hann haft viðbúnaS
Vopn hafa verið flutt á SCclO-
inn og fallbyssum komið fyrir
og þegar hinir íslenzlru Iiöfð
ingjar koma, eru þeir látni:
ganga inn í hring af byssu
skyttum og lensuhermönnum.
Þar ber Henrik Bjelke fran
boðskap konungsins, herre
síns, og krefst þess að þeir, ís-
vináttu þeirra. Okkur er það
svo Ijóst, að ekki þarf að skýra
fyrir okkur nánar, að okkur
eru nauðsynleg vinsamleg við-
skipti við Bandaríkjaþjóðina.
Við þurfum að sækja þangað
vörur og selja þangað afurðir.
Og menningartengslin milli
landanna eigum við fremur að
trevsta en veikja.
En til er greiði, sem menn
geta jafnvel ekki gert fyrir
vini sína. Fjörður skyldi milli
frænda og vík milli vina. Við
getum verið vildarvinir, hvaða
þjóðar sem er, þótt við skák-
um eklci sneið af landi okkar
undir yfirráð hennar.
• Bandaríkjamenn hafa líka
sýnt í mörgu, að þeir eru okk-
ur vinveittir. En sínum augum
lítur hver á silfrið. Þeir hafa
stórveldissjónarmið, en við er-
um dvergþjóð og hljótum að
vera það um allar aldir. Stór-
veldunum hættir oft til að líta
svo á, — og það þótt lýðræðis-
þjóðir séu, að smáþjóðirnar
séu bezt komnar undir vernd
þeirra og umsjá. En smáþjóðin
verður í lengstu lög að berjast
við að sitja ein á koti sínu, þótt
það sé næðingssamara en sitja
í skjóli höfuðbólsins.
Hver sá blettur á íslandi,
sem ekki er undir óskoruðum
og skýlausum yfirráðum Is-
lendinga sjálfra er eymslablett-
ur í sjálfstæðisvitund þjóðar
innar og veikur hlekkur í vörn-
inni gegn erlendri hagsmunaá-
gengni. Einn slíkur blettur er
nú suður á Reykjanesi.
Ekki skal borið á móti því
að þessu máli fylgdu margii
góðir fulltrúar þjóðarinnar, seir
sýnt hafa, að hægt var að sýr.c
traust í öðrum málum, — mál-
um, sem voru til heilla landi og
lýð. Það skal heldur ekki dreg-
ið í efa, að þeir menn hafi tal
ið sig vera að gera rétt hór.
En jafnvel Njáll var misvit-
ur.
Félagið Þjóðvörn var stofu-
að til þess meðal annars ac
sanna almenningi, að mótblást-
urinn gegn samningnum ci
ekki runninn undan rifjum
eins stjórnmálaflokks. Flestum
stofnendanna er það mjög ó-
ljúft og finnst það jafnvel ó-
viðunandi að láta klína á sig
marki annars stjórnmálafloklu
en þess flokks, sem þeir eru í.
Þess vegna meðal annars stofn-
uðu þeir Þjóðvarnarfélagið og
tók það upp forustuna í and-
stöðu málsins út á meðal þjóC-
arinnar .
En höfuðmarkmið þessa fc-
lags cg þessa blaðs hlýtur að
verCa það að standa á verði um
ráít 'íslenzka lýðveldisins gagn-
vart öðrum ríkjum, hvort sem
jiau liggja í vestri eða austri.
Ragnar Jóhannesson.
lendingar, sem viðstaddir eru,
sverji eiðinn fyrir alla lands-
menn.
Brynjólfur biskup Sveinsson
gengur fyrstur fram og svarar
einarðlega fyrir klerkastéttina.
Hann bendir á að þessi krafa
samrimist á engan hátt lands-
lögum og fornum rétti Islend-
inga, sem þeir muni aldrei af-
sala sér.
Henrik Bjelke svarar með
því að benda á fallbyssur sín-
ar og hermenn, sem þarna eru
til að sjá um að boði Hans Há-
tignar sé hlýtt, en talar hins-
vegar líka mjúkum orðum og
heitir hlýðnum þegnum hylli
konungs og ævarandi vernd og
vináttu.
Bislcup skilur þá, að hér skal
velja um hlýðni eða dauða,
bliknar hann við og hörfar aft-
ur í hóp prestanna. Þar er and-
staðan þegar brotin á bak aft-
ur. En eftir eru veraldlegu
höfðingjarnir undir forustu
Árna Oddssonar.
Hann gengur nú fram, lot-
inn af elli og hvíthærður, en
öruggur og mikilúðlegur og tal-
ar fyrir hönd landsmanna.
Hann sýnir fram á, hvað lög er
og réttur í landinu og vísar
kröfunni um erfðahyllinguna á
bug. Henrik Bjelke grípur fram
í, og beitjr sem fyrr bæði hót-
unum og blíðmælum. Árni sér
að allt er tapað, en hann vill
ekki gefast upp, og enn hefur
hann' upp raust sína og talar
fyrir réttindum íslands, talar
þangað til liann brestur í grát
og tárin renna niður fölar og
hrukkóttar kinnarnar. Hann
slcýrskotar til allsvaldandi
Guðs og biour Islandi vægðar.
Sagan segir, að í raun og
veru hafi Henrik Bjelke verið
drengur góður, þó hann ræki
erindi það, sem fyrir hann
hafði verið lagt. Hann kemst
við af orðum og tárum öldungs
ins, gengur til hans, og biður
hann ao láta undan og undir-
rita eiðstafinn svo að hann
neyðist ekki til að beita harð-
ræði, í staíian lofar hann og
leggur við drengskap sinn, að
þetta skuli ekki bi’eyta neinu
um forn lög og landsréttindi
Islendinga í framkvæmd. Árni
litast um og sér ekkert nema
ugg og ótta í augum félaga
sinna.
Þá lætur Árni undan og sór
eiðinn grátandi.
Henrik Bjelke hélt loforð
•sitt, meðan hans naut við, cn
það var aðeins um skamma
hríð, og þegar hann var far-
inn, gleymdu valdhafarnir
skjótt, að íslandi hafði verið
gefið drengskaparheit.
Eg ætla ekki að draga nein
dæmi af þessari sögu. En á
tímum þeim, sem nú ganga yfir
hygg ég, að vér höfum gagn
af að vera minnugir vissra at-
burða úr sögu lands og þjóðar.
Sá sem er minni máttar verður
oft að sætta sig við, að heit,
sem honum eru gefin, falli í
gleymsku. — Og tárin, sem
Árni Oddsson felldi í Kópa-
vogi, ættu að brenna í hjörtum
sannra íslendinga um allar ald-
ir í hvert sinn, sem réttur Is-
lands er fyrir borð borinn.
F. A. B,