blaðið - 09.08.2005, Qupperneq 16
16 I VEIÐI
ÞEIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 2005 blaöið
Veiðitoppurinn:
Eystri Rangá á
bullandi á skriði
Veiðin gengur ágætlega þessa
dagana, vatnið hefur aukist
í laxveiðiánum og laxinn er
farinn að taka agnið betur hjá veiði-
mönnum.
En fiskurinn hefur tekið mjög
tæpt og einn veiðimaður sem var í
laxveiðiá fyrir vestan setti í sjö laxa
og missti sex þeirra.
Staðan á veiðitoppnum núna er sú
að Þverá í Borgarfirði heldur ennþá
toppsætinu með 2750 laxa en síðan
kemur Norðurá í Borgarfirði með
2450 laxa. Eystri-Rangá sækir þó
hart á þær báðar því fyrir tveimur
dögum veiddust yfir 100 laxar á
einum degi í henni. 2350 laxar hafa
veiðst í Eystri-Rangá, síðan kemur
Blanda með 1250 laxa.
„Ég var með erlenda veiðimenn
þarna fyrir nokkrum dögum og við
veiddum vel af laxi sagði Vignir
Björnsson á Blönduósi sem var við
veiðar í Blöndu.
Næst kemur síðan Ytri-Rangá
með 1050 laxa og síðan koma, Langá
á Mýrum, Selá, Haffjarðará og
Grímsá.
„Við vorum að koma úr Fáskrúð
í Dölum og fengum 5 laxa, það var
ekki mikið af fiski í henni, ekkert af
nýjum laxi“, sagði Rögnvaldur Guð-
mundsson sem var á veiðislóðum í
Dölnum.
Fyrstu laxarnir eru komnir á land
i Þórisstaðavatni i Svínadal en veiði-
maður sem var þar fyrir skömmu
veiddi tvo laxa. Eitthvað meira hef-
urséstþaraflaxistökkva. ■
OPIÐ i SUMAR:
laugardaga 10-17, sunnudaga 11-16, virka daga 9-19
Neyðarsimi allan sólarhringinn 844 7000
Síðumúla 11 • 108 Reykjavík
www.utivistogveidi.is
Stöngin á
3000 i Gufuá
Torben Hallengen með fallegan lax úr Norðurá í Borgarfirði.
Gufuá í Borgarfirði er ekki stærsta
laxveiðiá landsins en veiðmenn hafa
lent í góðri veiði neðarlega í henni í
gegnum árin.
Stangaveiðifélag Reykjavíkur hef-
ur tekið ána á leigu og rennur blint í
hana með veiðina á svæðinu.
Fyrir nokkrum dögum veiddu
veiðimenn nokkra laxa neðarlega í
henni eftir að rigna tók en þessa dag-
ana er að rigna meira en vanalega.
Stangaveiðifélag Reykjavíkur er
að bjóða stöngina á 3000 krónur
fyrir daginn í Gufuá og vill að veiði-
menn renni þar fyrir fiska, allavega
reyni það.
Síðustu helgi reyndu veiðimenn
fyrir sér i ánni og héldu á brott með
þrjá laxa eftir að vatn tók að vaxa á
svæðinu. Fengust laxarnir langt fyr-
ir ofan þjóðveg.
Vatnasvæði Lýsu hefur gefið fína
veiði síðustu daga og að sögn veiði-
varðar er bleikjan stærri á svæðinu
en oft áður. Um 80 laxar hafa veiðst
og veiðimaður sem var þarna fyrir
skömmu veiddi 4 laxa og töluvert af
silungi.
Staðará á Snæfellsnesi hefur verið
að gefa helling af sjóbirtingi neðar-
lega í ánni. ■
Eitt kort
20 vatnasvæði
Vi0 reykjum fiskinn
fyrir big
;,. •, <£ _ ir.-
110 -
REYKOFNINN HF.
Skemmuvegur 14 • 200 Kópavogur
Fax 587 2134 • Sími 557 2122