blaðið - 06.09.2005, Page 11
blaðiö ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2005
ERLEMDAR FRÉTTIR I 11
Hátt hreykir
heimskur sér
Tveir bandarískir sálfræðingar
fólu 65 sjálfboðaliðum að leysa
ýmis verkefni og báðu þá síðan að
meta frammistöðu sína. Niðurstað-
an varð sú að því verr sem menn
stóðu sig því líklegri væru þeir til
að ofmeta hæfni sína. Sálfræðing-
arnir segjast hafa komist að þeirri
niðurstöðu að skortur á greind sé
tvöföld bölvun. Þeir heimsku eru
svo heimskir að þeir trúa því að þeir
séu ekki heimskir. ■
Seinheppnir
ræningjar
Þrír argentínskir ræningjar voru
heldur seinheppnir á dögunum. Þeir
voru að stela gróðuráburði en gripu
í leiðinni farsíma sem lá á glámbekk
og notuðu til að taka myndir hver
af öðrum. Þeir gerðu sér enga grein
fyrir því að síminn var stilltur inn
á það að senda myndir samstundis
á persónulegt netfang manns sem
kom myndinni í hendur lögreglunn-
ar og hún hafði fljótlega uppi á þjóf-
unum. ■
John Roberts var í gær útnefndur forseti
hæstaréttar Bandaríkjanna af George
W.Bush.
Roberts skip-
aður hæsta-
réttardómari
George W. Bush, Bandaríkjaforseti,
tilnefndi í gær dómarann John Ro-
berts forseta hæstaréttar Bandaríkj-
anna í stað William Rehnquist sem
lést á laugardag. Roberts, sem þykir
hófsamur íhaldsmaður, var áður að-
stoðarmaður Rehnquists. Öldunga-
deild Bandaríkjaþings þarf að stað-
festa tilnefningu forsetans en búast
má við ítarlegri pólitískri rannsókn
í kjölfar hennar enda um að ræða
afar valdamikið embætti. Talið er
að demókratar muni vilja yfirheyra
Roberts um umhverfismál, aðskiln-
að ríkis og kirkju og fóstureyðingar
svo nokkuð sé nefnt. Engu að síður
telja fréttaskýrendur að tilnefning
hans verði að öllum líkindum ekki
mjög umdeild.
Turner er
eftirlæti Breta
Breska útvarpið Radio 4 gekkst á
dögunum fyrir skoðanakönnun um
eftirlætismálverk Breta. Skilyrði var
að málverkið væri til sýnis á bresku
safni. Sérfræðingar tóku að sér að
velja tíu myndir sem almenningur
gat síðan greitt atkvæði um. Um
120.000 manns greiddu atkvæði. Úr-
slitin urðu þau að málverk eftir Turn-
er, The Fighting Temeraire, hlaut
flest atkvæði. í öðru sæti varð The
Hay Wain eftir Constable, í þriðja
sæti mynd af stúlku á bar í Folies
Bergeres eftir Manet og í fjórða sæti
varð málverk Van Eyck af Arnolfini
hjónunum.
Bretar völdu þessa mynd eftirTurner sem eftirlætismálverk sitt á bresku safni.
•t 2
mwf
P
Þegar kemur að því að velja tölvubúnað...
...skipta gæði og þjónusta höfuðmáli!
SKOLADAGAR I HP BU
hp sempron nx6125
*sprun
2ja ára
neytendaábyrgð
3.100 kr. á mánuði
(meðaltali)
*
"K,
99.900 kr.
15"SXGA
1024 X 768
- ATl X300 skjákort
60GB 4200rpm
EM
Lithium rafhlaða.
Endinq allt að 3.45
klst. (8.45 með ferð-
arafhlöðunni)
Windaws*15
- service pock 2 y
hp turion nx6125
*spnm
2ja ára
neytendaábyrgð
4.390 kr. á mánuði
(meðaltali)
*
+
I «p
1291900 kr.
AMD.
TbrionM
512 MB
asi
W.
DVD+/-RW
í jKJÁH 1 15"SXGA 1400X1050 v - ATIX300 skjákort í laHKIlrfafid L 80GB 5400rpm Lithium rafhioða. Ending aöt að 3.45 klst. (8.45 með ferð- L arafhlöðunni)
Windows ^ - service pock 2 ^ I'^Tfíí ^ Þráðlaust netkort m
hp nc6120
hp nx8220
fm *sprm
3ja ára alþjóðleg
ábyrgð á vinnu
og varahlutum
4.490 kr. á mánuði
(meðaltali)
*
159.900 kr.
*spran
2ja ára
neytendaábyrgð
4.990 kr. á mánuði
(meðaltali)
*
179.900 kr.
Lithium rofhlaða.
Endinq aHt að 3.45
Wst. (8.45 með ferð-
arafhiöðunni)
Opið:
mán-fös frá 10-18
lauftá 12-16
r *spran
BUÐIN * M.v. 48 mánuði og vaxtatöflu Spron
i n v e n t
ÞAR SEM FAGMENNSKA OG GÆÐI KOMA SAMAN
HP er eini framleiðandinn í heiminum sem bíður upp á heildarlínu í tölvubúnaði. HP fartölvumar
eru margverðlaunaðar og hp prentarar mest seldu prentarar í heimi.
hp BÚÐIN ehf - business partner á íslandi - Brautarholti 10 - 14 - s: 568 5400 - www.budin.is
Tilboöin ailda I áaúst 2005 eöa á meða biroðir endast Birt með fyrlrvara um myndbrengl og prentvillur. - Verö og mánaöargreiðslur eru án ábyrgðar