blaðið


blaðið - 06.09.2005, Qupperneq 16

blaðið - 06.09.2005, Qupperneq 16
16 I VÍSINDI ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2005 blaöiö ■T Gerilsneyðing rýrir nœringargildi Gerilsneyðing er sú aðferð kölluð þegar t.d. vökvi er hitaður og síðan snöggkældur með það fyrir augum að útrýma gerlum. Það var Frakkinn Louis Pasteur sem lagði grundvöllinn að þessari aðferð á síðari hluta 19. aldar. Rannsóknir hans á gerjun bjórs og víns leiddu hann að þeirri nið- urstöðu að ákveðnir gerlar gætu valdið rangri gerjun. í framhaldi af þessum rannsóknum upgötv- aði hann að með gerilsneyðingu væri hægt að fjarlægja þessa gerla úr vökvanum. Seinna fóru menn að nota þessa aðferð til að ger- ilsneyða fleiri vökva eins og t.d. vatn og mjólk. Markmiðið að útrýma hættulegum gerlum íslendingar þekkja kannski helst til gerilsneyðingar í sambandi við mjólkurvörur. Þegar mjólkurvörur eru gerilsneyddar eru þær hitaðar uppí 72 gráður í tæplega 15 sekúnd- ur og síðan snöggkældar. Með þessu eru skaðlegir gerlar fjarlægðir úr mjólkinni. Byrjað var að gerils- neyða mjólk á fsíandi á árunum 1934 til 1935 þegar hin svokölluðu mjólk- ursölulög gengu í gildi. Markmiðið var að útrýma hættulegum gerlum úr mjólkinni eins og t.d. berklabakt- eríum, staphylococcer og listeriu sem getur valdið blóðsýkingu og seinna jafnvel heilahimnubólgu. Einnig veld- ur gerilsneyðingin því að geymsluþol mjólkurvara eykst til muna og hætt við að ef hennar nyti ekki við væru vörurnar nokkuð dýrari. Franski vísindamaðurinn Louis Pasteur uppgötvaði að með gerilsneyðingu mátti útrýma skaðlegum gerlum úr matvælum. Pasteur var f rumkvöðull í rannsóknum á örverum og lagði grundvöllinn að nútíma læknavísindum. Næringargildi tapast Á seinni árum hafa margir gagn- rýnt þessa aðferð og telja að með gerilsneyðingunni sé ekki aðeins verið að útrýma skaðlegum gerlum heldur einnig gerlum sem geta ver- ið hollir fyrir mannskepnuna. Þeir benda á að með auknu hreinlæti við framleiðslu sé hægt að fyrirbyggja að skaðlegir gerlar nái að festa ræt- ur og að í ógerilsneyddri mjólk sé alls ekki gefið að hættulegir gerlar finnist. Ennfremur segja þeir að við gerilsneyðingu tapi mjólkin hluta af næringargildi sínu. Um þetta eru þó skiptar skoðanir en almennt viðurkennt að B-vítamín í mjólk skerðist sem og að ákveðin ensími verði óvirk við þetta ferli. Þeir sem drekka ógerilsneydda mjólk taka þó alltaf vissa áhættu þó erfitt sé að meta nákvæmlega hversu mikil hún sé. Eitt er víst að gerilsneyðing átti mikinn þátt í því að hefta útbreiðslu sjúkdóma sem plagað höfðu mannkynið um þús- undir ára. Foreldrar nýta sér tæknina til eftirlits Pað er ekki stóri bróðir sem fylgist með þér heldur mamma eða pabbi. Foreldr- ar í Bandaríkjunum eru í auknum mæli farnir að nýta sér tæknina til að fylgjast með hegðunar- og neyslu- mynstri barna sinna. Sem dæmi má nefna að hægt er að nota farsíma til að rekja ferðir barnanna, snjallkort sem hörnin nota í mötuneytum skóla til að komast að því hvað þau borða og ökuritar gefa foreldrunum ekki aðeins upplýsingar um hraða og ekna vegalengd heldur einnig hvort hemlað hafi verið snögglega eða þjösnast á bílnum á annan hátt. Þetta eftirlit hefur sætt mikilli gagnrýni enda finnst mörgum sem verið sé að ráðast inn á friðhelgi einkalífs barnanna. Foreldrar bera því aftur á móti við að þeir hafi fyrst og fremst velferð barna sinna að leiðarljósi þegar þeir fylgjast með þeim. Ted Schmidt notar til dæmis bæði farsíma og ökurita til að fylgj- ast með börnum sínum fjórum. Hann varaði þau við eftirlitinu áður en það hófst fyrir um ári síðan. „Ég veit hvar síminn ykkar er 24 tíma sólarhrings, alla daga vikunnar. Ég get komist að því hve hratt þið ak- ið. Ég get jafnvel athugað stöðuna mörgum dögum síðar og séð að þið hafið ekið á tæplega 130 km hraða á þjóðveginum klukkan tvö að nóttu“, sagði Schmidt börnum sínum. Þó að þetta virðist vera hnýsni í margra augum er Schmidt viss um að með þessu stuðli hann að auknu öryggi barna sinna, meðal annars vegna þess að þau gera sér grein fyrir því að fylgst er með þeim. siattuueiamapKaðurinn Nú uersiun í Feiismúia S Electrolux 4 Hö m/drifi Verð kr. 27.900,- Verðáöurkr. 39.900,- 4 hö án drifs high wheel m/safnara Verð kr. 21.900,- .Verð áður kr. 34.900,- 15,5 Hö Verð kr. 149.000,- Verð áöur kr. 199.000, NYTT Briggs & Stratton orf 4 gengis (Þarf ekki að blanda olíu við bensín - minni hávaði) Tilboðkr. 19.900,- Verð áður kr. 34,900.- Verð 6.900,- Verð áður kr. 9.900, Partner1850w Flymo loftpúðavélar 30% afsl. 4,75 Hö án drifs Verð kr. 22.900,- Verð áðurkr. 34.900,- Slattuueiamarhaðurinn Fellsmúla s: 517 2010

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.