blaðið - 06.09.2005, Side 24
32 I MENNING
ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2005 blaöiö
O Afnot af Suzuki Swift
5 heilt ár.
oMedion Black Dragon
, fartölvurfrá BT.
o l-pod frá Apple
búðinni
o 25.000.- kr úttekt í
Office one
oNuddtæki frá Heilsu-
húsinu
oGjafakarfa frá Osta
og Smjörsölunni
o Árs Áskrift að
Skólavefnum
Klipptu út seðilinn hér að neðan og sendu okkur hann
(Blaðið, Bæjarlind 14-16, 201 Kópavogur) eða sendu okkur tölvupóst
(með nafni kennitölu og símanúmeri) á netfangið skoli@vbl.is
Dregið úr innsendum svörum á mánudögum
Ath. Þú mátt taka þátt eins oft og þú vilt, því fleiri innsendir seðlar, þeim mun meiri vinningslíkur
Þátttökuseðill
Fyrirsogn:
Fullt nafn:
Kennitala:
I ^ crrd)
Simi:
bSaðió
Sendist á - Blaöiö, Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur
i€ilsuhúsið ys kolavefurinn.is
25.000,-
Officelsupersiore
n 91
Tenórmn
íer norður
Oliver Twist
í leikstjórn
Polanskis
Leikstjórinn Roman Polanski hefur
gert kvikmynd eftir hinni frægu
sögu Charles Dickens, Oliver Twist.
Polanski segir að börn hans, 13 ára
og 7 ára, hafi átt þátt í því að hann
ákvað að gera myndina en hann seg-
ist hafa viljað gera mynd sem þau
geti horft á. Polanski segir Oliver
Twist uppáhaldsbók sína eftir Dick-
ens og að hann hafi lesið hana marg-
oft og stöðugt fundið eitthvað nýtt
í henni. „Ég vissi hvernig það var
sem barn að eiga ekki fast heimili
og alast ekki upp hjá foreldrum sín-
um“, segir Polanski en móðir hans
lést í útrýmingabúðum nasista þeg-
ar hann var níu ára.
Hann segist vilja fá börn til að
finna til samkenndar með Oliver
og elska söguna jafnvel þótt þau viti
ekkert um Charles Dickens og bók
hans. „Af öllum þeim myndum sem
ég hef gert vona ég að menn muni
minnast þessarar með mestri hlýju',
segir Polanski.
Frumsýning er áætluð eftir mán-
uð. Ben Kingsley fer með hlutverk
Fagins og Barney Clark leikur mun-
aðarleysingjann Oliver.
Leiksýningin Tenórinn eftir Guð-
mund Ólafsson er nú að hefja sitt
þriðja leikár og mun á næstunni
verða á fjölum Freyvangsleikhúss-
ins. Tenórinn var á sínum tíma
frumsýndur á Berjadögum norður
í Ólafsfirði í ágúst 2003. Síðar það
Guðmundur Ólafsson í hlutverki sínu f
Tenórnum.
sama haust var hann tekinn til sýn-
inga í Iðnó þar sem hann var sýndur
í tvö leikár við frábærar undirtektir
áhorfenda sem og gagnrýnenda.
Gagnrýnandi Morgunblaðs-
ins sagði meðal annars. „Það er
skemmst frá því að segja að Tenór-
inn er ein sú besta skemmtun í leik
og söng sem gagnrýnandi minnist
að hafa séð.“ f umfjöllun á Rás tvö
kom meðal annars fram að Tenór-
inn væri „... frábært verk, frábær
sýning! Besta íslenska sýningin um
árabil.“
Leikarar í sýningunni eru Sigur-
sveinn Kr. Magnússon, sem leikur
undirleikarann og Guðmundur
Ólafsson í hlutverki tenórsins. Leik-
stjóri er Oddur Bjarni Þorkelsson.
Þess má geta að þessir þremenning-
ar eru allir Norðlendingar - og auð-
vitað tenórar.
Vegna annarra verkefna leikar-
anna verða aðeins örfáar sýningar
í Freyvangsleikhúsinu.io., 16., 17. og
23. september.
Roman Polanski hefur verið að vinna að
kvikmyndinni Oliver Twist.
fkleAtXir ovtAf « brcir^tj alhvafó