blaðið - 23.09.2005, Side 6
6 I IWNLENDAR FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2005 blaöiö
+
Skipulag Vatnsmýrar:
Allir landsmenn hvattir til að taka þátt
Almenningi verður gefinn kostur á að leggja sín lóð á vogarskálina við skipulag
Vatnsmýrarinnar. Samráðsdagar verða haldnir í Hafnarhúsi á næstunni.
Einn þáttur í undirbúningi alþjóð-
legrar hugmyndasamkeppni um
skipulag Vatnsmýrarinnar er sá
að gefa almenningi í landinu færi
á að leggja fram sínar tillögur að
skipulagi svæðisins. I því skyni hef-
ur verið boðað til Samráðsdaga í
Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi.
Fimmtudaginn 29. september og
laugardaginn 1. október mun öllum
áhugasömum standa til boða að
koma í safnið, taka þátt í umræð-
um og koma sínum sjónarmiðum á
framfæri. Samráðið er öllum opið
og er landsbyggðarfólk sérstaklega
hvatt til að taka þátt.
„Við munum fá arkitekta frá öllum
heimshornum til þess að taka þátt í
keppninni og að mínu mati skiptir
gríðarlegu máli að almenningur lýsi
L
:
I
w
Pantið tíma
í síma
511-1551
Hársnyrtistofa Villa Þórs
Lynghálsi 3
fyrst sinni sýn á þetta svæði,“ seg-
ir Dagur B. Eggertsson, formaður
stýrihóps um skipulag Vatnsmýr-
arinnar. „Síðan verður unnið úr
þessum hugmyndum og þær teknar
til greina þegar keppnislýsing sam-
keppninnar er gerð.“ Dagur segir
að verkefnið „Akureyri í öndvegi"
sé í raun fyrirmynd að þessari hug-
mynd. Ragnar Sverrison skipulagði
það verkefni, en þegar nýr miðbær
Akureyrar var skipulagður bárust
15 þúsund tillögur sem voru svo not-
aðar þegar forsendur arkitektanna
voru settar. „Svona íbúalýðræði er
gríðarlega mikilvægt,“ segir Ragnar.
„Ef stjórnmálamennirnir taka ekki
mark á íbúunum, þá taka íbúarnir
ekki mark á stjórnmálamönnunum.“
Dagur bætti svo við að málið hafi
verið komið ofan í skotgrafirnar á
vissan hátt. „Við vonumst til að ná
fólki upp úr þessum skotgröfum,
og svona samráðsferli er vel til þess
fallið að mínu mati.“ ■
Gott uppgjör
Hagnaður
sparisjóðanna
rúmir 4,5
milljarðar
Methagnaður varð á rekstri
sparisjóðanna og Sparisjóða-
bankans á fyrri hluta ársins
2005, en alls nemur hagnað-
urinn 4.582 milljónum króna
eftir skatta. Þetta kemur fram
í milliuppgjöri sparisjóðanna.
í tilkynningu frá Sambandi
íslenskra sparisjóða segir að
hagnaður á fyrri hluta ársins
sé aðeins um 6% minni en á
öllu síðasta ári.
„Sparisjóðirnir á Islandi eru
alls 23 og starfsmenn þeirra
um 900 talsins. Sparisjóðirnir
þjóna á milli 60 og 70 þúsund
einstaklingum eða sem nemur
fjórðungi allra viðskiptavina
á einstaklingsmarkaði“ segir
ennfremur í tilkynningunni.
Þeir Dagur og Ragnar virtu fyrir sér Vatnsmýrina af svölum Perlunnar i gær.
BlaÖiÖ/Steinar Hugi
H
E
L
G
A
R
w
B
L
Ó
M
V
Ö
N
&Ítt6v4Í)
*tuf
D
U
R
I
N
N ISLENSK BLOM
Erlendir starfsmenn starfsmannaleiga:
Njóta lakari
* kjara en íslensklr
starfsbræður
Samtök atvinnulífsins ráðleggja fyrirtœkjum inn-
an samtakanna að sniðganga kjarasamninga segir
framkvœmdastjóri Starfsgreinasambandsins.
Erlendir starfsmenn starfsmanna-
leiga hér á landi hafa að öllum lík-
indum lakari réttindi en íslenskir
samstarfsmenn samkvæmt túlkun
Samtaka Atvinnulífsins (SA). Þessi
túlkun kemur fram í bréfi sem sam-
tökin sendu Verkalýðsfélagi Akra-
ness á dögunum.
Forsaga málsins er að fyrirtækið
fstak réði til sín 12 danska smiði í
gegnum þarlenda starfsmannaleigu.
Verkalýðsfélag Akraness kallaði ný-
verið eftir upplýsingum um launa-
kjör þessara manna. SA svöruðu
stéttarfélaginu fyrir hönd fyrirtæk-
isins. í bréfi þeirra segir.
„...lög um starfskjör launafólks
gildi um þessa starfsmenn að því
er varðar lágmarkslaun, yfirvinnu-
greiðslur, réttindi til orlofs, hámarks-
vinnutíma og lágmarkshvíldartíma.
Önnur ákvæði þeirra laga gilda því
ekki...“. Þetta þýðir að reglur um
t.d. uppsagnarfrest, veikindarétt og
greiðslur í lífeyrissjóði eiga ekki við
um þessa starfsmenn að mati SA.
„Að öðru leyti fer um þeirra mál-
efni eftir reglum sem gilda í þeirra
heimalandi“ segir Ari Edvald, fram-
kvæmdastjóri SA um málið. „Veiga-
mestu atriðin sem snúa að lágmarks-
kjörum er hinsvegar tryggð" segir
Ari ennfremur.
Verkalýðshreyfingin ósammála
„Þeir virðast vera að segja að ákvæði
íslenskra kjarasamninga eigi ekki
við að öllu leiti“ segir Skúli Thorodd-
sen, framkvæmdastjóri Starfsgreina-
sambands fslands um málið.
„Það sem mér finnst merkilegast í
þessu er það að SA eru að ráðleggja
fyrirtækjum innan SA að sniðganga
kjarasamninga sem gerðir hafa ver-
ið við Starfsgreinasambandið i skjóli
afar þröngra lögskýringa. Málið er
ný komið inn á mitt borð og verður
skoðað gaumgæfilega á næstu dög-
um“ segir Skúli ennfremur. ■
TAKMAmÐ
ÁRA ÁBVRGÐ i
Cytronix 42” Plasma sjónvarp
svan)
42” Plasmassjónvarp
16:9 breiðtjaldsskjár
852x480 upplausn
3000:1 skerpa
1000 cd/m2 birta
S-Video, Loftnetstengi
2x Scart, component,
VGA, Serial
13.724r
STAÐGREITT:
159.9
VERÐ AÐUR:
cfífBULxscixi Baaxo.
SÍÐUMÚLA 37 - SÍMI 510 6000 - WWW.SVAR.IS