blaðið - 23.09.2005, Blaðsíða 30
30 I ÍPRÓTTIR
FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2005 blaöi6
A
Formúla i í Brasilíu um helgina
Um helgina fer Formúla í kappakstur-
inn ffam á Interlagos brautinni sem
er í um 15 kílómetra fjarlægð frá Sao
Paulo. Brautin er ekin rangsælis, ein
þriggja slíkra brauta í heimsmeistara-
keppninni í Formúlu 1. Það reynir
þvi óvenju mikið á líkamlegan styrk
ökumanna og þá sérstaklega undir
lok keppninnar. Þær fréttir að Fehpe
Massa frá Brasilíu fari til Ferrari 2006
hljóta að kveikja áhuga heimamanna
á kappanum í keppninni á Interlag-
os. Landi hans og vinur, Rubens Bar-
richello fer til BAR Honda, en hann
hefur aldrei náð sama flugi í hugum
Brassa og Ayrton Senna gerði. Senna
var þjóðarhetja þegar hann lést 1994.
Emerson Fittipaldi er önnur hetja í hug-
um heimamanna ásamt Carlos Reut-
erman. Einnig var Carlos Pace kappi
sem heillaði heimamenn og brautin
dregur nafn sitt af honum. Interlagos
Carlos Pace heitir brautin, en Pace lést
í flugslysi eftir fyrsta og eina sigur sinn
í Formúlu 1. Fyrsta beygjan á Interlagos
brautinni er vandasöm og í ræsingu er
betra að fara með gát. Beygjan dregur
nafn sitt af Ayrton Senna og er S-laga.
Nokkuð er um hóla og hæðir á braut-
inni sem reynir á skarpskyggni öku-
mannaogkjark.
Alonso getur tryggt sér
titilinn um helgina
Minnsti hraði i brautinni er 90 km á
klukkustund, en fer upp í tæplega 300
km hraða á beinasta kafla brautarinnar.
Brautin er 4.3 km og oft hafa ökumenn
kvartað yfir mishæðóttu malbiki sem
kastar bílunum út úr réttri aksturslínu.
Ökumenn kunna að meta áhuga heima-
manna á Formúlu 1, þó áhuginn sé ekki
eins yfirþyrmandi og þegar Senna var
oghét.
Juan Pablo Montoya vann á Interlag-
os í fyrra, en árið áður fór fram kapp-
akstur sem verður lengi í minnum hafð-
ur. Giancarlo Fisichella vann á Jordan
eftir að fjölmörg óhöpp höfðu orðið á
brautinni i hellirigningu.
Kapphlaupið um titílinn verður i for-
grunni á Interlagos þar sem Femando
Alonso getur tryggt sér heimsmeist-
aratitilinn. Honum nægir þriðja sætið
í Formúlu 1 heimsmeistaramótínu í
Brasilíu um helgina, til að verða yngstí
meistari sögunnar. En McLaren félag-
arnir Kimi Raikkönen og Juan Pablo
Montoya stefna á tvö efstu sætin og
spurning hvort aðrir keppendur geti
gert Alonso lífið leitt. Raildcönen er ann-
ar á stígum og sá eini sem getur ógnað
Alonso í stígakeppninni.
Michael Schumacher og Rubens Bar-
richello á Ferrari vona að ný Brigdge-
stone dekk fleyti þeim framar en til
þessa. Ferrari slæst við Toyota um
þriðja sætí í keppni bílasmiða, bæði
virðing manna og fjármunir eru i húfi
fyrir þriðja sætið. BMW Williams hef-
ur verið heillum horfið í ár, en Antonio
Pizzonia verður á heimavelh, rétt eins
og Barrichello og Fehpe Massa.
Pizzonia keyrði Montoya út úr keppn-
inni á Spa og kostaði það McLaren dýr-
mæt stig í titilslagnum. Pizzonia berst
fyrir sætí hjá Wihiams og spurning
hvort bfll hans er nógu góður tfl að gera
toppmönnunum skráveifu.
Utsending RÚV á morgun ffá tíma-
tökunni hefst klukkan 15.50 og bein
útsending ffá keppninni sjálffi á sunnu-
dag hefst klukkan 16.30. ■
Heilsunudd þegar þér hentar
Með fullkominni tölvustýringu og hátækni nuddbúnaði framkallar Rongtai
RT-H09 nuddstóllinn áhrifaríkt nudd frá toppi til táar. Með því að styðja á hnapp
á meðfylgjandi fjarstýringu velur þú það nuddkerfi sem þér hentar hverju sinni.
Stóllinn nuddar þig líkt og fagmaður þegar þú vilt og þar sem þú vilt. Rongtai
nuddstóllinn er hannaður með þig og þínar þarfir í huga. Við bjóðum þér að
koma í nudd í verslun okkar að Skúlagötu G3 til að sannfærast.
www.ecc.is
ECC Skúlagötu 63
Sími 5111001
Þér er boðið í hudd!
5érstök kynning á föstudag og
laugardag, komdu í kaffi og nudd
í verslun okkar að Skúlagötu 63
milli 10 og 18 (12 og 16 laugardag)
Leifur þjálfar Fylki
í gær skrifuðu Fylkismenn undir
samning við Leif Sigfinn Garðars-
son um að hann verði þjálfari liðs
þeirra í Landsbankadeildinni á
næstu leiktíð. Leifur hefur undan-
farin ár verið aðstoðarþjálfari FH
með góðum árangri og vfst er að
missir FH er mikill. Leifur sagði
í samtali við útarpsþáttinn Mín
Skoðun á XFM 91.9 í gær að honum
litist mjög vel á þetta hjá Fylki. Þar
væri gott starf unnið og nægur væri
mannskapurinn. Leifur sagði að
samningamálin við Fylki hafi tekið
stuttan tíma og gengið mjög fljótt
fyrir sig. Hvað varðar leikmanna-
mál liðsins sagði Leifur að þau mál
skýrðust á allra næstu dögum hvað
varðar þá leikmenn sem eru með
lausa samninga. Leifur Sigfinnur
skrifaði undir þriggja ára samning
við Fylki eða eins og hann orðaði
það: „Það má segja að þetta séu þrír
eins árs samningar“. _
Heimir verður aðstoðarþjálfari FH
í gær var haldinn fféttamannafund-
ur í Kaplakrika í Hafnarfirði þar sem
tilkynnt var um ráðningu Heimis
Guðjónssonar sem aðstoðarþjálfara
FH á næstu leiktfð. Heimir hefur verið
fyrirhði FH undanfarin ár og tilkynnti
fýrir nýafstaðna leiktíð að hann hyggð-
ist leggja knattspyrnuskóna á hflluna
eftír Íeiktíðina. Sögusagnir hafa verið
á kreiki að undanförnu að FH-ingar
kæmu tfl með missa marga af sínum
bestu mönnum fyrir næstu leiktíð. Á
fundinum í gær var slegið á þennan orð-
róm þegar 5 af stjörnum félagsins skrif-
uðu undir tveggja ára samning. Þetta
eru Daði Lárusson markvörður, og
útfleikmennirnir Davið Þór Viðarsson,
Freyr Bjarnason, Hermann Albertsson,
Baldur Bett og Tommy Nielsen.
Þá endurheimtu FH-ingar nokkra
leikmenn sem voru í láni hjá öðrum hð-
um í sumar. Pétur Óskar Sigurðsson og
Heimir Snær Guðmundsson eru komn-
ir ffá ÍBV.
Ath Guðnason, Tómas Leifsson, Birg-
ir Jóhannsson, Magnús Ingi Einarsson
og Sigmundur Pétur Ástþórsson sem
voru í láni hjá í.deildarhði Fjölnis eru
einnig komnir heim í Krikann og verða
með FH á næstu leiktíð.
Af þessu er ljóst að FH-ingar ætla
ekki að slá slöku við í boltanum á næstu
leiktíð og ætla sér að veija titihnn enn
og aftur. ■