blaðið - 11.10.2005, Blaðsíða 2

blaðið - 11.10.2005, Blaðsíða 2
2 I IWMLEWDAR FRÉTTIR ÞRIÐUDAGUR 11. OKTÓBER 2005 blaöi6 Yfirlýsing frá Baugi í ljósi dóms Hæstaréttar í dag, þar sem máli ákæruvaldsins gegn stjórnendum Baugs Group hf. og fleirum var að mestu vísað frá dómi, vill stjórn Baugs Group hf. skora á yfirvöld að hætta frekari áreitni í garð fyrirtækisins. Það á að heita fórnarlamb hinna meintu afbrota en hefur fremur orðið fórnarlamb lögreglurannsóknar- innar sem hefur staðið í þrjú ár og valdið fyrirtækinu ómældu tjóni. Nú er mál að hnni. Hreinn Loftsson. Ákærurnar sem stóðust: Villandi bók- hald og tolla- svik með bíla Ákæruliðirnir, sem Hæstiréttur telur rétt að héraðsdómur fjalli efnislega um, snúast annars vegar um villandi bókhald og hins vegar tollasvik vegna innflutnings á einkabílum sak- borninga frá Bandaríkjunum. Ákæruatriði 33-36 snúa að því að Jón Ásgeir Jóhannesson hafi, með tilstuðlan og aðstoð Tryggva Jónssonar, sett fram rangar og villandi skilgreining- ar á liðum skammtímakrafna í efnahagsreikningi Baugs árin 1998 til 2001 þar sem fjárhæð lána til hluthafa, stjórnar- manna, framkvæmdastjóra og aðila þeim nátengdum var ekki sérstaklega getið heldur felldar undir liðinn aðrar skammtíma- kröfur í efnahagsreikningi og ekki getið í skýrslu stjórnar eða í skýringum ársreikn- ingsins eins og bar að gera. Endurskoðendunum Stefáni Hilmari Hilmarssyni og Önnu Þórðardóttur, sem þá störfuðu bæði hjá KPMG, er gefið að sök að hafa áritað ársreikninga með þessum röngu og villandi sérgreiningum án fyrirvara. Samkvæmt ákæruatriðum 37-40 er Jóni Ásgeiri, Jóhannesi Jónssyni og Kristínu Jóhann- esdóttur gefið að sök að hafa framið tollsvik og rangfært skjöl með því að gefa rangar upplýsingar um kaupverð fjögurra bíla sem keyptir voru f Bandaríkjunum í nafni fyrirtækjanna Baugs og Bónus á árunum 1998 til 2000. Blaðið/Gúndi Akcerur í Baugsmálinu Hæstiréttur visar 32 liðum frá en 8 fara fyrir dóm Alvarlegustu ákceruliðunum vísaðfrá héraðsdómi. Ákceruvaldið harðlega gagnrýnt fyrir að hafa kastað til höndunum við útgáfu ákceranna. Hæstiréttur vísaði í gær öllum ákæruatriðunum nema átta frá dómi í Baugsmálinu. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður vísað allri ákærunni frá. Var ákæruliðum 1-32 vísað frá, en héraðsdómi var gert skylt að taka ákæruliði 33 til 40 til efnislegrar meðferðar. í dómi Hæstaréttar segir að slíkir annmarkar séu á 1. til 32. lið ákæru að vísa verði málinu frá héraðsdómi að því er þá varðar. Þó Hæstiréttur gangi þannig skemur en héraðsdóm- ur, sem vísaði öllu málinu frá dómi, er óhætt að segja að Hæstiréttur gangi skrefinu lengra í umfjöllun sinni um ákæruna. Þar er sagt að sumt sé „nánast óskiljanlegt" og ann- að „sundurlaust". Þessi gagnrýni er gegnumgangandi, en í dómnum seg- ir Hæstiréttur að gera verði þá kröfu til ákæru að af henni og henni einni skiljist í hverju meint sakarefni eigi að felast, hvaða lög þau eigi að brjóta í bága við, með hvaða hætti brotin hafi verið framin og hvernig tiltekn- ir sakborningar tengist þeim. Hæstiréttur telur að ýmist sé verknaðarlýsingu í ákæru ábótavant eða að heimfærsla til refsiákvæða eða tilgreining ætlaðs brots sé ekki í samræmi við verknaðarlýsingu og jafnvel í mótsögn við hana. Lög- menn, sem Blaðið ræddi við, töldu að dómur Hæstaréttar væri strang- ur og setti jafnvel ný fordæmi hvað varðaði hlutdeild. Þá þótti í mörg- um tilvikum ekki skýrt í hverju þátt- taka hvers og eins hinna ákærðu í hinum ætluðu brotum átti að felast, auk þess sem verulega þótti skorta á skýrleika í framsetningu ákæru að öðru leyti. Öðru máli þótti gegna um 33. til 40. lið ákærunnar. Síðastnefndu liðunum sé skipað í tvo kafla, sem standi ekki í tengslum við hina kafl- ana sex í ákærunni varðandi þær sakir, sem bornar séu á varnaraðil- ana. Sé því engin nauðsyn að vísa málinu í heild frá dómi vegna ann- marka á hluta þess. Hæstiréttur segir, að með þess- ari niðurstöðu standi eftir í málinu ákæruliðir, sem einn eða fleiri varði alla varnaraðilana sex. Því ljúki mál- inu ekki með dómi þessum gagnvart neinum þeirra. Ákvæði úrskurðar héraðsdóms um sakarkostnað, þar með talin málsvarnarlaun, eru því felld úr gildi og ákvörðun um þau at- riði látin bíða efnisdóms í málinu. ■ Verjandi Jóns Ásgeirs: Falleinkunn fyrir saksóknara Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar forstjóra Baugs, segir úrskurð Hæstaréttar áfall fyrir ákæruvaldið, sem veki upp grafalvarlegar spurningar um vinnubrögð þess. „Þetta er falleinkunn fyrir ákæruvaldið og það ákæruvald, sem hér hefur verið að verki. Það á að skýra það út fyrir sakborningum og íslensku þjóðinni hvernig svona lagað gat gerst,“ segir Gestur. „Niðurstaðan er sú að nánast allt málið sé í þeim búningi að það sé ekki hægt að leggja það fyrir dóm,“ segir Gestur, en vill ekki velta vöngum yfir því hvert eðlilegt framhald málsins væri ,Það er eðlilegast að menn spyrji ríkislögreglustjóra og ákæruvaldið hvernig þessi staða getur komið (i Heiðskírt 0 Léttskýjað Skýjað Alskýjað Rigning, litilsháttar Rigning 9 9 Súld Snjókoma Amsterdam 19 Barcelona 21 Berlín 17 Chicago 12 Frankfurt 15 Hamborg 16 Helsinki 15 Kaupmannahöfn 16 London 19 Madrid 16 Mallorka 23 Montreal 12 New York 16 Orlando 23 Osló 14 París 19 Stokkhólmur 16 Þórshöfn 09 Vín 16 Algarve 21 Dublin 10 Glasgow 10 SJJ Slydda \JJ Snjóél ^j -2° * JÞ * * o° * * * * * * JD** -2° -2° * -1° * * /// /// /// /// /// /// 4© 2° ^ * JjB 2C -v Veðurhorfur í dag kl: 18.00 Veðursíminn 902 0600 Byggt ð upplýsingum ,rá Veðurstofu (slands A morgun ^ * go % 'F' * ** 1° 2°*

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.